Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 79
79. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 21. febrúar 2007 kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Ásgeir Gunnarsson, Þorbjörg Arnórsdóttir, Lilja Hrund Harðardóttir og Björk Pálsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Sigríður Lárusdóttir.
Árni bar fram ósk um að liður 4 Nafnið Skjólgarður verði tekið af dagskrá, engar athugasemdir og var það samþykkt. Björk spurðist fyrir um af hverju liður 4 væri frestað. Árni svaraði að málið væri ekki tilbúið.
1. Fundargerð 78. fundar lögð fram til kynningar
2. Drög að áramótastöðu
Ásta lagði fram drög að áramótastöðu HSSA, þar kemur fram að halli er um 3,6 m.kr. gerði hún einnig grein fyrir að búið er að senda kröfu á ríkið varðandi greiðslu fyrir langtíma veikindi starfsmanna. Ásta vék af fundi kl:16.30
3. Staða í viðræðum ríkis og sveitarfélags varðandi þjónustusamning.
Árni upplýsti stöðu mála varðandi þjónustusamning. Búið er að fara tvær heimsóknir í Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið m.a. heimsótti bæjarráð ráðuneytið. Ríkisendurskoðun er búin að svara beiðni frá bæjarstjóra um úttekt á starfsemi HSSA og er ríkisendurskoðun búnin að tilnefna starfsmann sinn í verkefnið.
4. Önnur mál
a) Spurt var um kynjahlutföll starfsmanna hjá stofnuninni.
b) Einnig var spurt um mönnun lækna og hjúkrunarfræðinga.
c) Jóhanna lagði fram undirskriftalista frá 29 starfsmönnum hjúkrunar- og sjúkradeildar HSSA, þar sem því er alfarið mótmælt að hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA taki upp nafnið Skjólgarður.
Fundi slitið kl. 17:10


