Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 87
97. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 19. desember 2007 kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Björk Pálsdóttir, Aðalsteinn Ingólfsson, Ásgeir Gunnarsson og Guðrún Ingimundardóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Ester Þorvaldsdóttir, Nína Einarsdóttir og Ágerður K. Gylfadóttir.
1. Fundargerð 86. fundar lögð fram til kynningar.
Engar athugasemdir.
2. Læknamál
Heilbrigðis - og öldrunarráð fagnar framkominni skýrslu ráðgjafar frá Capacent og telur hana mikilvægt innlegg inn í umræðuna um heilbrigðismál á landsbyggðinni. Heilbrigðis - og öldrunarráð hvetur til þess að haldin verði ráðstefna sem fyrst á Hornafirði undir yfirskriftinni "Heilbrigðisþjónusta á landsbyggðinni". Ásgerður benti á að samhliða því að leita væri að nýjum starfsmönnum væri mikilvægt að hlúa að því fólki sem nú þegar starfar á HSSA og gæta þess að það kulni ekki í starfi.
HÖR felur framkvæmdastjóra að leggja fram tillögur um úrbætur í læknamálum út frá framkomnum tillögum ráðgjafa.
3. Þjónustukönnun Landlæknis
Starfsmenn greindu frá helstu niðurstöðum þjónustukönnunar Landlæknis á HSSA. Megin niðurstöðurnar eru þær að á heilsugæslustöð er almenn ánægja með þjónustu stöðvarinnar, en töluverðar kvartanir vegna skorts á fastráðnum læknum. Á hjúkrunarsviði HSSA er almenn ánægja með þjónustuna.
HÖR óskar eftir að sjá þjónustukönnun Landlæknis í heild sinni og samanburð við aðrar stofnanir. Einnig óskar HÖR eftir að sjá tillögur frá Landlækni um úrbætur í læknamálum á HSSA.
Umræður sköpuðust um röntgen tæki og hvernig staðið er að sendingu mynda og úrlestur í samvinnu við aðila á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn gerðu grein fyrir verklagi og sögðu það í góðum málum.
4. Þjónustusamningur
Hjalti Þór Vignisson greindi frá fundi með fjármálaráðherra um greiðslur frá Tryggingarstofnun og sagði frá því í hvaða farvegi málið er á þessari stundu.
5. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl. 17.05


