Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 42
42. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss miðvikudaginn 4. júní 2003, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir og Kristín Gestsdóttir. Einnig Jóhann Ellert Ólafsson, Ester Þorvaldsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Ársreikningar HSSA 2002
Framkvæmdastjóri fór yfir ársreikninga stofnunarinnar 2002, en niðurstaða þeirra er jákvæð um tæpa 1 milljón. Stofnunin fékk greiddar rúmar 16 milljónir á aukafjárlögum vegna halla síðustu tveggja ára en peningaleg staða stofnunarinnar er nú neikvæð um 18 milljónir.
Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir ársreikninga HSSA fyrir árið 2002 og vísar til annarar umræðu í bæjarstjórn.
2. Ársreikningar Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 2002
Halldóra fór yfir reikninga sjóðsins. Eigið fé sjóðsins í árslok nam rúmum 13,6 milljónum kr.
Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir ársreikninga Gjafa- og minningarsjóðs fyrir árið 2002.
3. Fjármál – sundurliðun rekstrareininga HSSA
Framkvæmdastjóri fór yfir sundurliðun á kostnaði við rekstrareiningar stofnunarinnar. Samþykkt var að fjármálastjóri, framkvæmdastjóri HSSA og framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs fari yfir greiningu bókhaldslykla og hlutfallslega skiptingu milli deilda og setji fram tillögur um framsetninguna í haust.
Rætt var um gjaldskrá fyrir heimaþjónustu. Framkvæmdastjóri kynnti fyrirkomulag innheimtu fyrir þjónustuna í Skagafirði. Framkvæmdastjóra var falið að afla upplýsinga um málið frá fleiri sveitarfélögum til viðmiðunar.
4. Fyrirkomulag ræstingar – framhaldsumræða frá síðasta fundi
Framkvæmdastjóri fór yfir samanburð á kostnaði við ræstingu á hjúkrunarstofnunum og sjúkrahúsum víðs vegar um landið. Heilbrigðis- og öldrunarráð telur ekki ástæðu miðað við fyrirliggjandi gögn að fara í útboð á ræstingu á stofnuninni.
5. Bæklingur HSSA - framhaldsumræða frá síðasta fundi
Framkvæmdaráði Heilbrigðisstofnunarinnar er falið að vinna að gerð kynningarbæklings.
6. Önnur mál
Framkvæmdastjóri ræddi um beiðni um framlag frá Gjafa- og minningarsjóði. Lögð verður fram formleg umsókn til sjóðsins frá framkvæmdaráði.
Maren telur ástæðu til þess að starfsmönnum HSSA verði falið að skoða hvar mest þörf er fyrir umsóknir úr Gjafa- og minningasjóði til hagsbóta fyrir sjúklinga stofnunarinnar.
Halldóra kallaði eftir viðhaldsáætlun fyrir stofnunina 2003 og áætlun um stofnbúnaðarkaup.
Halldóra spurðist fyrir um símenntunaráætlun fyrir HSSA.
Halldóra sagði frá því að í dag barst Heilbrigðisstofnun Suðausturlands höfðingleg peningagjöf frá einstaklingum í sveitarfélaginu. Heilbrigðis- og öldrunarráð þakkar af heilum hug einstaka gjafmildi. Fjármununum verður varið til að bæta enn frekar aðstöðu vistmanna stofnunarinnar.
Fundi slitið kl. 19:20


