Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 2
2. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fimmtudaginn 23.september 2010 kl. 16:15 í fundarsal Heilsugæslu
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðmundur Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir og Guðlaug Björgvinsdóttir.
1. Fundargerð 1. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir við fundargerð síðasta fundar.
2. Rekstrarstaðan 31. ágúst
Guðrún Júlía fór yfir rekstrarstöðuna og er hún innan marka fjárhagsáætlunar.
3. Flutningur á málefnum fatlaðra yfir til sveitarfélaga
Ásgerður fór yfir málið og greindi frá að sveitarfélagið Hornafjörður hefur óskað eftir að hafa umsjón með málaflokknum áfram, þessi mál ættu að skýrast á næstu vikum. Kom fram að HSSA og málefni fatlaðra Hornafirði hafa haft mikið samstarf síðustu ár og vilja efla það ennþá meira.
4. Ábending ríkisendurskoðunar
Ásgeir greindi frá að óskað hafi verið eftir viðræðum um þjónustusamning við heilbrigðisráðuneytið nýverið. Í samtali við starfsmann í ráðuneytinu, kom fram að unnið sé að sameiningu heilbrigðisráðuneytis og félags- og tryggingamálaráðuneytis í eitt velferðarráðuneyti og telur umræddur starfsmaður ráðuneytisins að það yrði til bóta fyrir málefni Hornfirðinga. Jafnframt kom fram að stefnt sé að því að flytja öldrunarmálin yfir til sveitarfélaga eftir að flutningi málefna fatlaðra lýkur.
Guðrún Ingimundardóttir spurði hvort liggi fyrir ákvörðun hjá núverandi meirihluta bæjarstjórnar um það hvernig staðið verður að viðræðum við heilbrigðisráðuneytið um nýjan þjónustusamning um rekstur HSSA? Mun stjórn HSSA stýra þeim viðræðum eða verða þær í höndum bæjarráðs? Hvenær er fyrsti fundur bæjarfélagsins með fulltrúum ráðuneytisins fyrirhugaður? Spurningum Guðrúnar verður svarað á næsta fundi stjórnar.
5. Verkefni stjórnar HSSA á kjörtímabilinu
Ásgeir lagði fram eftirfarandi um helstu verkefni Stjórnar HSSA. Ásgeir upplýsti að listinn væri síður en svo tæmandi þar sem stjórnarmenn, starfsfólk og aðrir sem hagsmuna eiga að gæta geti komið með tillögur að verkefnum sem stjórnin ynni að og bætti starfsemi sveitarfélagsins. Óskaði Ásgeir eftir umræðum um framlagðan texta:
- Unnið verði að því að tryggja forræði sveitarfélagsins í málaflokknum með endurnýjun á þjónustusamningi eða á grundvelli flutnings verkefna frá ríki til sveitarfélaga.
- Unnið verði að frekari samþættingu í heimaþjónustu.
- Stjórn HSSA hafi frumkvæði af stofnun Hollvinasamtaka HSSA með það að markmiðið að efla tengsl stofnunarinnar við íbúa og veita stjórnvöldum á hverjum tíma aðhald í uppbyggingu mannvirkja og þjónustu stofnunarinnar.
- Hafin verði vinna við stefnumótun í málefnum aldraðra í upphafi árs 2011 í samvinnu við starfsfólk HSSA, félag eldri borgara og aðra sem hagsmuna eiga að gæta.
- Unnin verði forsögn um frekari uppbyggingu mannvirkja til að bæta þjónustu á sviði heilbrigðis- og öldrunarmála í sveitarfélaginu.
- HSSA vinni að bættri lýðheilsu íbúa sveitarfélagsins á þeim sviðum sem snerta starfsemi stofnunarinnar.
- Unnið verði með hugmyndafræði um starfsemi stofnunarinnar í tengslum við stefnumótun í málefnum aldraðra. Sérstaklega verður kannað með innleiðingu á Eden hugmyndafræðinni og með þekkingu sem skapast við þátttöku HSSA í OLE II verkefninu.
- Unnið verði áfram að uppbyggingu samstarfs HSSA við aðrar stofnanir í sveitarfélaginu og leitað eftir samstarfsverkefnum við öldrunarstofnanir á Íslandi til að efla starfsemi HSSA enn frekar.
Guðrún Ingimundardóttir benti á að bæta þarf inn punkti um upplýsingagjöf.
Ásgeir lagði til að unnið verði að stefnumótun HSSA í vetur og ráðinn verði ráðgjafi til að stýra verkefninu. Þetta var samþykkt af öllum fulltrúum stjórnar. Guðrúnu Júlíu falið að auglýsa eftir ráðgjafa í samráði við bæjarstjóra og bæjarráð.
6. Kosning í Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs
Ásgeir Gunnarsson, Guðmundur Gunnarsson og Guðrún Ása Jóhannsdóttir voru kosin í stjórn. Guðbjörg Garðarsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir eru varamenn.
7. Önnur mál
a) 30 sep. nk. verður skrifað undir verksamning milli Sveitamenntar og Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands/Sveitarfélagið Hornafjörður v. málefna fatlaðra.
Sveitamennt leggur til fræðslustjóra í 90 klst, til að greina þörfina á fræðslu og gera áætlanir um námskeið. Myndaður hefur verið stýrihópur til að til að vinna með fræðslustjóranum í honum sitja: Olga Friðjónsdóttir, Pálína Sighvatsdóttir, Gunnhildur Bjarnadóttir, Helena Ingvadóttir og Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir. Fræðslustjórinn er Ragnhildur Jónsdóttir. Stjórn HSSA fagnar þessum samningi.
b) Fasteignir ríkisins ætla að fá hönnuð til teikna upp breytingar á skiptistofu og acut herbergi á heilsugæslu.
c) Guðlaug Björgvinsdóttir spurði um skjólvegginn við Mjallhvít. Ásgerður greindi frá að fara ætti í þessar framkvæmdur um leið og húsið verður klætt, klæðningin er illa farin. Ekki er búið að fá verktaka í verkið.
Fundi slitið kl: 17.25


