Fundargerð stjórnar HSSA 7
7. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fimmtudaginn 24. febrúar 2011 kl. 16:15 í fundarsal Heilsugæslu.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Íris Heiður Jóhannsdóttir, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Ólöf Óladóttir.
1. Fundargerð 6. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Endurskoðun á fjárhagsáætlun HSSA 2011
Guðrún Júlía greindi frá breytingum á framlögum ríkis til HSSA, frá því fjárhagsáætlun HSSA 2011 var samþykkt. Helstu breytingar eru að framlög til dvalarheimilis hækka um 1,4 m.kr., til hjúkrunardeildar um 15,5 m.kr. og sjúkra- og fæðingardeildar um 3,2 m.kr. Framlög ríkis til heilsugæslu lækka aftur á móti um 3 m.kr. Endurskoðuð fjárhagsáætlun HSSA 2011 var samþykkt.
3. Starfsmannamál
Auglýst var í Læknablaðinu og Morgunblaðinu eftir yfirlækni við stofnunina.
Engar umsóknir hafa borist um stöðu yfirlæknis.
4. Lóð HSSA, drög að teikningum til kynningar
Fasteignir ríkisins fengu Rannveigu Einarsdóttur hjá Náttúrulega ehf. til að teikna upp lóð HSSA og koma með tillögu um, að ná fram heildar samræmi á útlit lóða HSSA. Fyrstu drög að teikningum eru lögð fram til kynningar.
5. Önnur mál
a) Ester sagði frá eftirfarandi: 12. mars koma aðilar frá neyðarlínunni til að kynna sína starfsemi og fara yfir verkferla, 28. mars verður námskeið fyrir sjúkraflutningsmenn, hjúkrunarfræðinga og lækna til að læra á beinbergsbor sem gefinn er af Rauða Krossi Íslands til að hafa í sjúkrabílunum og 7. maí n.k. verður flugslysaæfing.
Guðrún Júlía vék af fundi kl: 16.45 vegna vanhæfis og formaður tók við fundarritun. Einnig viku Ester og Ólöf af fundi.
6. Stefnumótun HSSA, umsóknir um ráðgjafastarfið
Fjórar umsóknir bárust um ráðgjafastarfið, stjórn telur alla umsækjendur hæfa.
Formaður lagði til að næsta skref yrði að umsækjendur skili inn sínum hugmyndum um verkefnið, tíma og kostnaðaráætlun. Síðan verða umsækjendur boðnir í viðtal og stjórn HSSA verði kölluð saman til að ganga frá ráðningu, náist samningar um verkefnið.
Fundi slitið kl: 17.00


