Fundargerð stjórnar HSSA 29
29. fundur
29. fundur Stjórnar Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands haldinn í heilsugæslustöð, 22. janúar 2013 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Sigríður Guðbjörg Garðarsdóttir aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir aðalmaður
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri sviðs
Ásgerður Kristín Gylfadóttir framkvæmdastjóri sviðs
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Elín Freyja Hauksdóttir starfsmaður HSSA
Fundargerð ritaði: Matthildur Ásmundardóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands.
Dagskrá:
|
1212004F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 28 |
||
|
Engar athugasemdir |
||
|
|
||
|
2. |
201111059 - Rekstrarstaða HSSA |
|
|
Rekstrarstaða stofnunarinnar fyrir árið 2012 bendir til þess að stofnunin sýni rúmlega 3 milljóna króna hallarekstur fyrir árið 2012 sem er minna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. |
||
|
|
||
|
3. |
200712021 - Þjónustusamningur um rekstur HSSA |
|
|
Stefnt er að undirritun nýs þjónustusamnings föstudaginn 25. janúar. |
||
|
|
||
|
4. |
201301071 - Gjaldskrá fyrir mötuneyti og dagvist HSSA |
|
|
Gjaldskrá samþykkt. |
||
|
|
||
|
5. |
201301072 - Gæðastjóri HSSA |
|
|
Landlæknisembættið óskaði eftir tilnefningu gæðastjóra heilbrigðisstofnunarinnar. Framkvæmdastjóri var tilnefndur og fer á fund hjá landlækni í næstu viku. Hlutverk gæðastjóra er meðal annars að hafa eftirlit með skráningu hjá stofnuninni og er tengiliður um málefni er varða gæði skráningar. Síðastliðinn mánudag komu fulltrúar Landlæknisembættisins og fulltrúi EMR sem þjónustar Sögukerfið í heimsókn til að yfirfara skráningu heilbrigðisstarfsmanna ásamt því að kynna fyrir okkur nýja uppfærslu Sögu kerfisins. Ásgerður upplýsti undir þessum lið að HSSA er aðili að lyfjanefnd aðila frá Hrafnistuheimilinum og fleiri hjúkrunarheimilum. Ester sagði frá tilraunaverkefni á vegum Velferðaráðuneytinu sem HSSA var boðin þátttaka í sem hefur það að markmiði að prófa mælitæki sem metur hjúkrunarþörf í heimahjúkrun. |
||
|
|
||


