Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 43
43. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss miðvikudaginn 27. ágúst 2003, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir og Kristín G.Gestsdóttir. Einnig Jóhann Ellert Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Formaður gerði tillögur að þriðji liður á dagskrá verði vísað til stjórnar Gjafa og minningarsjóðs, nefndarmenn samþykktu.
1. Staða HSSA júní 2003
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðuna fyrstu sex mánuðina og lagði til að áttamánaðauppgjör verði lagt fyrir á næsta fundi sem verður miðvikudaginn 24.september n.k.
2. Teikningar af garði fyrir heilabilaða við hjúkrunardeild og tilboð í vinnu við gerð garðsins
Framkvæmdastjóri lagði fram teikningu af garði fyrir heilabilaða dags. 8/7 frá Ullu R. Pedersen og tilboð í gerð hans frá Blómalandi ehf. athuga þarf hvort ekki eigi að vera hitalögn í stétt og hvort rétt sé að hafa litaskipar hellur, ekki er hægt að taka afstöðu til tilboðsins núna en tæknideild sveitarfélagsins er falið að gera kostnaðaráætlun m.v. fyrirliggjandi teikningar . Framkvæmdastjóra er falið að ljúka málinu í samráði við tæknideild. Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir framlagðar teikningar og vísar málinu til Gjafa og minningasjóð.
3. Viðhaldsáætlun HSSA
Framkvæmdastjóri lagði fram viðhaldsáætlun dags. 11. ágúst fyrir Hvannabraut 3-5 og Víkurbraut 29, hjúkrunardeild. Framkvæmdastjóra falið að gera viðhaldsáætlun fyrir allar fasteignir sem heyra undir HSSA til næstu ára í samráði við tæknideild sveitarfélagsins.
4. Önnur mál
Spurt var um viðhald á læknabústöðum einnig var spurt um húsæði sem HSSA er með á leigu vegna afleysinga, framkvæmdastjóri upplýsti um málið.
Framkvæmdasjóra falið að ganga í viðræður við ríkið um kaup eða byggingu húsnæðis fyrir lækna.
fundi slitið kl. 18:15


