Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 43
43. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi þriðjudaginn 15. janúar 2008, kl. 17:00
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Gestur Halldórsson, Þórgunnur Torfadóttir, , Stefán Ólafsson, og Haukur Ingi Einarsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Rennibraut og leiktæki í sundlaug
Nefndin var sammála um að velja rennibraut sambærilega og í Kópavogi sem er opin og 5,5 m á hæð, sbr. gráu brautina. Enn fremur leggur nefndin til að rennibrautin verði í öðrum lit en gráum. Starfmanni var falið að afla upplýsinga um leiktæki í vaðlaug í samræmi við umræður á fundinum og senda niðurstöður á nefndarmenn til samþykktar.
2. Staða framkvæmda
Haukur greindi frá stöðu framkvæmda íþróttamannvirkja.
3. Önnur mál
Friðrik leggur til að íþróttavöllurinn afhendist æskulýðs- og tómstundarráði til umsjónar, nefndin tekur undir þessa tillögu.
Fundi slitið kl. 18:10


