Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 44
44. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi fimmtudaginn 7. febrúar 2008, kl. 12:30
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Gestur Halldórsson, Þórgunnur Torfadóttir, , Stefán Ólafsson, Ragnhildur Einarsdóttir, Svavar M. Sigurjónsson og Haukur Ingi Einarsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Rennibraut
Nefndin samþykkir tillögu frá arkitekt af útfærslu á rennibraut með bremsukeri, sem barst í tölvupósti 4. febrúar 2008, og mælir með að þessi útfærsla af rennibraut verði fyrir valinu. Arkitekt lagði til að litur á rennibraut verði gulur. Nefndin tók ekki ákvörðun um lit þá þessum fundi.
2. Verkfundargerðir
Umræður sköpuðust um fataskápa. Starfsmönnum falið að fara yfir útfærslu fataskápa með verktaka og arkitekt í samræmi við umræður á fundinum. Farið var yfir sjálfsafgreiðsluhlið, ákveðið var að kaupa ekki umrætt hlið. Svavar fór yfir öryggismyndavélamál. Nefndin lagði áherslu á að fyllsta öryggis verði gætt þegar að þessum búnaði kemur. Starfmönnum falið að tryggja þetta sem og endanlega útfærslu á myndavélamálum.
3. Önnur mál
Fundi slitið kl. 14:00
Fundargerð staðfest í tölvupósti


