Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 4
4. fundur
Fundur haldinn í menningar- og tómstundanefnd miðvikudaginn 12. nóvember 2008 í Nýheimum klukkan 16:15. Fundur haldinn í Nýheimum.
Mættir: Guðrún Ingimundardóttir, Elín Magnúsdóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Helga V. Sigjónsdóttir og Gauti Árnason.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
- Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Fjárhagsáætlun 2009 dreift á fundinum
Farið verður í fjárhagsáætlun í lok desember eða byrjun janúar. Farið yfir áætlanir vegna stofnbúnaðar og viðgerða á húsnæði Menningarmiðstöðvar.
- Vetrardagskrá dreift á fundinum
Vetrardagskrá kynnt. Nefndin leggur til að efnt verði til spurningakeppni milli fyrirtækja og stofnana á Hornafirði og að hún komi til framkvæmdar seinnihluta vetrar.
- Aðsóknartölur 2008 dreift á fundinum
Aðsókn minnkaði milli ára á Byggðasafni og Jöklasýningu/Upplýsingamiðstöð.
- Samningur við Grunnskóla Hornafjarðar
Samningur milli Grunnskóla og Menningarmiðstöðvar kynntur og þær breytingar sem mögulega verða með tilkomu bókasafns í Heppuskóla.
- Samningur við nemendafélag FAS
Samþykkt að nýr samningur verði gerður milli Menningarmiðstöðvar og Framhaldsskólans.
- Reglur um íþrótta- og tómstundakort
Bent á að eðlilegast sé að ræða íþrótta- og tómstundastyrk og samræma textann hvað þetta varðar. Nefndin leggur til að styrkurinn eigi við aldurshópinn 6-18 ára eins og samþykkt var í upphafi. Þá leggur nefndin áherslu á að boðið sé uppá að styrkgreiðslan geti einnig verið eingreiðsla t.d. fyrir þá sem greiða upphæð ársins í einni greiðslu. Þá er lagt til að mögulegt sé að sækja um sérstaklega vegna starfsemi sem nær ekki 10 vikum óháð því hvort hún fari fram að sumri eða á öðrum tíma. Athugasemd er gerð við sérstök samstarfsverkefni, textinn þykir samhengislaus og þarf að umorða þannig að skýrt komi fram að umsjónaraðilar hafi bakgrunn og fagþekkingu til að takast á við starfið.
- Önnur mál
Menningar- og tómstundanefnd lýsir ánægju sinni með þann árangur sem hópar, einstaklingar og fyrirtæki innan sveitarfélagsins hafa verið að ná á undanförnum misserum. Með árangri sínum auka þau hróður sveitarfélagsins og hvetja íbúa til dáða.
Menningar- og tómstundanefnd leggur áherslu á að uppbyggingu verkefna eins og Hafnarvík-Heppa, sem er ekki síður atvinnuskapandi en tengt menningu, sé haldið áfram hér eftir sem hingað til.
Fundi slitið kl. 18:10


