Fundargerð Atvinnu- og menningarmálanefndar 26
26. fundur
26. fundur Atvinnu- og menningarmálanefndar haldinn í ráðhúsi, 26. júní 2012 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Gunnhildur Imsland varaformaður
Maríanna Jónsdóttir aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Björn Sigfinnsson
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) embættismaður
Björn Arnarson fulltrúi starfsmanna
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. |
201205058 - Kynning á mastersritgerð - Höfn- þéttbýli við þjóðgarðinn |
|
|
Árdís Erna Halldórsdóttir kom á fundinn undir þessum lið og kynnti MSc ritgerð sína í ferðamálafræði. Sagði að hún hafi viljað tengja það við heimabyggðina og snemma hafi sjónarhornið beinst að Höfn sem Þjóðgarðsbæ (e. gateway community) og hvernig nýta mætti nálægð við þjóðgarðinn fyrir uppbyggingu atvinnulífs. Rannsóknin hafi leitast við að svara tveimur spurningum, þ.e. hver er ímynd Hafnar sem ferðamannastað og hvort Höfn er þjóðgarðsbær. Rannsóknin sjálf fór fram árið 2009-2010. Í rannsókninni hafi verið teiknuð mynd af hugmyndum ferðamanna til Hafnar þar sem hafi komið fram að afþreying er veikur þáttur í ferðaþjónustu á staðnum en fram hafi líka komið að lifandi hafnarlíf hafi verið á staðnum og framboð á humri virðist vera aðdráttarafl. Þá hafi komið fram að jöklasýnin hafi verið stórfengleg og íbúar vingjarnlegir. Sagði Árdís að ferðabækur framan af hafi verið fremur neikvæðar og vitnaði sérstaklega til bóka sem komu út 1991 og 1997 en umfjöllun batnað þegar tíminn líður fram. Í hnotskurn hefur Höfn veika ímynd hjá ferðamönnum sem nýkomnir eru í bæinn, bærinn hefur sterka ímynd sem sjávarþorp, ferðamenn upplifa sterka tengingu á milli Hafnar og þjóðgarðsins en í framtíðinni hafi Höfn möguleika á að nýta sér bæði tengingu við sjávarþorpið og Vatnajökulsþjóðgarð. Sagði Árdís að rannsaka þurfi betur hvaða afþreying ferðafólk væri helst tilbúið að kaupa. Eins væri mikilvægt fyrir bæinn að vinna meira í umhverfismálum, vottunarkerfum og fleira til að draga fram að íbúar og bæjaryfirvöld hafi metnað í að huga að ásýnd umhverfisins.
Árdísi þakkað fyrir góða kynningu.
|
| |
|
|
| 2. |
201102063 - Íbúaþing |
|
|
Árdís Erna kynnti samantekt sína um vinnu í kjölfar íbúaþings sem unnin var að beiðni bæjarstjóra. Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar fyrir góða samantekt og beinir því til bæjarráðs að taka þau mál til umræðu sem ekki hafa enn verið komið í farveg. |
| |
|
|
| 3. |
201206009 - Ósk um hýsingu hjalls við Gömlubúð |
|
|
Ósk barst frá Ara Þorsteinssyni og Maríu Gísladóttur um að hýsa hjall sem stendur við fyrrum lóð Gömlubúðar. Björn Arnarson ræddi um hvar hjallurinn hafi staðið sem hluti af húsinu Vindheimur. Taldi ákjósanlegt að koma honum í fóstur. Atvinnu- og menningarmálanefnd beinir því til bæjarráðs að þiggja boðið enda beri sveitarfélagið ekki kostnað af flutningi né lagfæringu á hjallinum. Þá áréttar atvinnu- og menningarmálanefnd mikilvægi þess að málið fái afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar áður en ráðist verði í flutning. |
| |
|
|
| 4. |
201204033 - Fjarskiptamál í dreifbýli |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir fundi með RÚV og áframhaldandi skoðun á endurbótum fjarskiptamála í dreifbýli. Atvinnu- og menningarmálanefnd telur það forgangsmál að farið verði út í lagfæringar á fjarksiptakerfi í dreifbýli til að tryggja góð og örugg fjarskipti. Nefndin óskar eftir hugmyndum þar að lútandi og felur starfsmönnum að vinna að málinu. |
| |
|
|
| 5. |
201206033 - Fjallskil |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir lögum um afréttarmál, fjallskil og fl. Til kynningar. |
| |
|
|
| 6. |
201206034 - Safnamál |
|
|
Lögð fram drög að verklýsingu dags. 21. júní 2012 um framtíðarfyrirkomulag safnamála. Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir hana fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs. Jafnframt lögð drög að grein um menningar- og safnamál dags. 24. maí 2012, nefndarmenn verða í samráði um lokafrágang greinarinnar sem verður birt innan skamms. Lögð fram til tillaga um halda næsta fund nefndarinnar í Holti á Mýrum þar sem hugmyndir um uppbyggingu safnastarfs á Mýrum yrðu meðal annars til umfjöllunar. |
| |
|
|
| 7. |
201009044 - Listvinasjóður |
|
|
Starfsmenn véku af fundi. Kristján gerði grein fyrir stöðu sjóðsins. Atvinnu- og menningarmálanefnd óskar eftir frekari gögnum um sjóðinn, upplýsingar um úthlutanir á síðustu árum, skipulagsskrá og önnur gögn er varðar stjórnsýslu Listvinasjóðs. |
| |
|
|
| 8. |
201102011 - Önnur mál |
|
|
Engin. |
| |
|
|
| 9. |
201205065 - Ágangur villtra dýra og fugla á ræktunarlönd bænda á Hornafirði |
|
|
Frestað til næsta fundar. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40