Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 29
29. fundur
29. fundur Atvinnu- og menningarmálanefndar haldinn í ráðhúsi, 20. nóvember 2012 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Gunnhildur Imsland varaformaður
Björn Sigfinnsson 1. varamaður
Halldóra Bergljót Jónsdóttir aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) embættismaður
Björg Erlingsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Björg Erlingsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar.
Dagskrá:
|
201009044 - Listvinasjóður |
||
|
Skipulagsskrá fyrir Listvinasjóð Hornafjarðar lögð fram. Guðlaug Hestnes mætti á fundinn undir þessum lið. Hún er ein af stofnendum sjóðsins. Greindi hún frá tilurð sjóðsins og hugmyndum með tilgangi hans. Sagði að eitt meginmarkmiðum hafi verið að stuðla að fjölbreyttum listviðburðum á Hornafirði. Halldóra óskaði eftir upplýsingum um sjóðinn, fjármuni sem í honum eru og velti upp hvort endurskoða þurfi reglur hans. |
||
|
|
||
|
2. |
201206034 - Safnamál |
|
|
Árni Helgason lögfræðingur mætti á fundinn undir þessum lið. Greindi Hjalti frá fundi sínum og forstöðumanns Menningarmiðstöðvar með starfsmanni Safnaráðs. Árni upplýsti að framlögð drög að samningi tæki á faglegri ábyrgð, skyldum aðila og öðru sem gerð er krafa um í lögum og reglum. Halldóra benti á að samningur þyrfti að tilgreina lán á munum í eigu sveitarfélagsins og hvað sé í eigu gagnaðilans, ræddi um hagnað af sýningunni, kostnað við viðhald hennar, gildistíma og uppsagnarákvæði. Upplýsti Árni um að muni eigi að tilgreina í viðauka með samningum, ræddi um uppsagnarákvæði, kostnaðarskiptingu og fleiri álitamálum eins og breytt eignarhald. Nefndi Björg að í samningi yrði kveðið á um samráðsfund í upphafi árs og annað sem virkjaði betur ábyrgðarhlutverk Menningarmiðstöðvar. Atvinnu- og menningarmálanefnd óskar eftir að Árni yfirfari samninginn út frá framkomnum ábendingum á fundinum. Halldóra telur ekki tímabært að fara út í gerð samninga í samræmi við ábendingar sínar á fyrri fundum um þessi mál. Lagður fram grunnur að sýningu í Gömlubúð og arkitektateikningar. Halldóra spurði um kostnað við endurbætur húss, framlagi sveitarfélagsins við uppsetningu sýningar og fleiri álitamál. Hjalti svaraði fyrirspurnum. Árni Rúnar ræddi um verktíma og umræður í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs um þessa leið. Björg sagði að viðbúið væri að fjöldi gesta í Gömlubúð myndi margfaldast og fylgjast þyrfti með ástandi hússins. Hjalti upplýsti um uppbyggingu, lagfæringar á burðarvirki, eingangrun hússins og nýjum lögnum. |
||
|
|
||
|
3. |
200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður - reglur |
|
|
Lagðar fram reglur sjóðsins. Nefndin gerði nokkrar breytingar og samþykkti þær samhljóða. Starfsmönnum falið að auglýsa eftir umsóknum að undangenginni staðfestingu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Umsóknarfrestur verður til 5. janúar. |
||
|
|
||
|
4. |
201208018 - Önnur mál |
|
|
Halldóra spurði um ástæður þess að fundargerðir skili sér seint á netið. Starfsmönnum falið að fara yfir málið. Halldóra spurði um fjárhagsáætlun fyrir menningarmiðstöðina. Upplýst að bæjarráð heldur utan fjárhagsáætlun og gert er ráð fyrir að ljúka henni í desember. Halldóra spurði um vettvangsferð sem nefndin ætlar að fara um sveitarfélagið. Björg og Kristján upplýstu um málið og hugmyndir að tímasetningu. Halldóra spurði um vinnufund í nefndinni. Upplýst að ekkert hefur verið ákveðið um slíkan fund. Halldóra spurði um stöðu mála er varðar ráðningu þjóðgarðsvörð fyrir austursvæði. Hjalti upplýsti að fjöldi landvarðavikna hafi aukist umtalsvert á Suðursvæði á síðustu árum, m.a. síðasta sumar. Ástæður þess að áform um uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs hafi ekki náð fram að ganga eins og lagt var upp með í fyrstu helgist fyrst og fremst af miklum tekjusamdrætti ríkisins í kjölfar efnahagshruns. |
||
|
|
||


