Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32

32. fundur

Suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

 

 

Fundur haldinn mánudaginn 3. september 2012 kl. 20.00 í ráðhúsinu á Höfn. 

 

Mætt voru:  Hjalti Þór Vignisson, Guðrún Ingimundardóttir, Hildur Þórsdóttir, Björn Ingi Jónsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Karl Ingólfsson og Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður.  Hjalti ritaði fundargerð

 

Dagskrá.

 

1.                  Hreindýraveiðar

Regína greindi frá viðræðum starfsmenn Náttúrustofu Austurlands um hreindýrastofn á svæði 9.  Á svæðið var settur 25 kúa kvóti, en aðeins er vitað um 12 kýr þar núna. Undanfarin ár hefur verið lagt til að hluta kvótans megi ekki veiða fyrr en í nóvember, þar sem þá séu dýr allsstaðar að af svæðinu farin að safnast saman þarna. Umhverfisstofnum hefur ákveðið að stöðva veiðar þar tímabundið og skoða opnun aftur í haust.

 

2.                  Umsókn Íslenski Alpaklúbburinn

Íslenski Alpaklúbburinn óskaði eftir viðbrögðum frá Vatnajökulsþjóðgarði við hugmyndum um að koma upp fjallaskýli við Svínafellsjökul.  Rökstuðningur við fjallaskýlið lýtur að því að þarna sé að finna mjög áhugaverðar alpaleiðir og slíkt skýli myndi stuðla að meira öryggi þeirra sem reyna sig við þær. Þarna eru mjög langar dagleiðir og fólk þarf að bera með sér mikinn búnað og hvorttveggja veldur því að menn verða þreyttari og þar af leiðandi eykst hætta á slysum.  Á fundi svæðisráðs 18. janúar var ákveðið að þjóðgarðsvörður legði mat á ofangreint erindi fyrir sitt leyti.

Þjóðgarðsvörður leggst fyrir sitt leyti ekki gegn því að komið verði upp fjallaskýli innarlega við Svínafellsjökul og telur að slíkt skýli myndi auka öryggi þeirra sem reyna sig við Alpaleiðir á svæðinu. Hinsvegar gæti það einnig leitt til þess að fólk sem á ekkert erindi á þessar slóðir myndi freistast til að ganga þangað til að gista í skýlinu. Það þarf því að huga vel að allri kynningu á skýlinu ef af verður til að forðast það. Þá er samþykki landeigenda auðvitað frumskilyrði fyrir því að slíku skýli yrði komið upp og það yrði allt að vera í sátt við þá. Setja þyrfti sérstakar umgengnisreglur um umgengni í nágrenni skýlisins þ.m.t. að allur úrgangur verði fjarlægður en ekkert urðað.

Svæðisráð tekur undir álit þjóðgarðsvarðar.

 

3.         Auglýsingaskilti í Skaftafelli

Regína upplýsti að í vor hafi auglýsingatöflu sem hékk uppi inni í þjónustumiðstöð verið skipt út fyrir auglýsingaskjá. Fyrirtækjum á svæðinu sem bjóða upp á afþreyingu og/eða heimaunnar vörur var boðið að senda inn auglýsingu án endurgjalds.

Til að koma til móts við heimafyrirtæki er nú einnig búið að fá smið til að smíða auglýsingakassa til að setja utan á vegg þjónustumiðstöðvarinnar þar sem hægt verður að auglýsa afþreyingu á svæðinu. Þar verður einnig listi yfir gististaði á suðursvæðinu. Í öðrum slíkum kassa verður veðurspá dagsins, tímatöflur fyrir rútuferðir og fleiri praktískar upplýsingar.

Björn Ingi vék af fundi kl. 20.30.

 

4.                  Starfsemi á Suðursvæði

Regína greindi frá starfsemi á Suðursvæði í sumar.  Kom fram að umfang starfseminnar á suðursvæðinu eykst ár frá ári. Vatnajökulsþjóðgarður tók við rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar á Höfn og alls unnu 4 starfsmenn við landvörslu og upplýsingagjöf þar í sumar. Opnunartími yfir sumarmánuðina var frá 8 – 20 og í september er opið frá 11 – 17. Landverðir buðu upp á gönguferðir alla virka daga á Heinabergssvæðinu og voru þær nokkuð vel sóttar. Þá fóru þeir einu sinni til tvisvar í viku í eftirlitsferðir alla leið að Jökulsárlóni, tíndu rusl á áningarstöðum, sinntu salerninu við Hrollaugshóla ofl.

Til að sporna við utanvegaakstri vestan við Jökulsá voru afmörkuð bílastæði á þremur stöðum til viðbótar því sem var þar fyrir og hefur sú aðgerð gefist mjög vel. Regína sagði að eftir að landvörslu hafi verið hætt við Jökulsárlón hafi einstaklingur haft samband við sig vegna utanvegaaksturs.  Slíkt  verður tilkynnt til lögreglu.

Upplýsingagjöf fyrir þjóðgarðinn var sem fyrr í Hólmi, Skálafelli og í Hoffelli.

Farið var í vinnuferð í Lónsöræfi í byrjun júlí. Breytt var nokkuð innviðum skálans og aðstaða landvarðarins löguð.

Í Skaftafelli voru helstu framkvæmdir við Svartafoss. Lokið var við að smíða brú yfir lækinn og tröppur upp hlíðina vestan megin. Þetta eru töluverð mannvirki sem hafa áhrif á útsýni að Svartafossi. Þessar framkvæmdir voru fyrir það fyrsta nauðsynlegar til að stuðla að öryggi alls þess fjölda sem fer um svæðið. Með því að leggja nýjan stíg upp að vestan var hægt að sneiða hjá hættusvæði.  Sagði Regína að sárlega vantaði að tengja heitt vatn í Skaftafelli vegna mikils álags á sturtur á tjaldsvæði.

Sagði Regína í ljósi reynslunnar í sumar og mikils álags á bílastæði að taka þurfi þá umræðu hvort ekki þurfi að setja upp þjónustumiðstöð nær þjóðvegi til að uppfylla væntingar um kyrrð og góða dvöl í útileigu og til að stunda útivist í náttúrunni.  Sagði hún að í ljósi þess þyrfti að skoða deiliskipulagið upp á nýtt.

Karl tók undir orð Regínu um mikilægi þess að hugsa skipulagið upp á nýtt.  Ræddi um að minnsta kosti ætti að færa bílastæði talsvert fjær upplýsingamiðstöð og ætti að skýla því frá umhverfinu með gróðri og mön, eitthvað í líkingu við lausn bílastæða við Bláa Lónið.

Tók Sigurlaug undir hugleiðingar Regínu. 

Svæðisráðið telur mikilvægt í ljósi reynslu sumarsins að skoða kosti og galla ofangreindrar hugmyndar Regína.

Guðrún spurði um hvort heimsóknir í Hólm, Skálafell og í Hoffelli væru skráðar.  Upplýsti Regínu um teljara við skriðjökla en eftir eigi að taka saman skýrslu um starfsemi á þessum svæðum yfir sumarið.

Þá sagði Regína að í ljósi uppbyggingar innviða á austurhluta svæðisins og umfangsmikils starfs í sumar þurfi að marka stefnu um ráðningu starfsmanna þar, m.a. hvort ráða eigi þjóðgarðsvörð sem situr á Höfn.  Formanni svæðisráðs falið að taka málið upp við stjórn þjóðgarðsins.

Upplýsti Sigurlaug um að vitund ferðamanna um tilvist þjóðgarðs á öllu svæðisins væri orðinn almennari og mikilvægt væri að fylgja því starfi vel eftir.

Karl spurði um hvort búið væri að marka stefnu um uppbyggingu nýrra áningarstaða, merkingu þeirra og vísun á þá frá þjóðvegi.  Regína upplýsti um stefnu þjóðgarðsins um uppbyggingu við Hoffell, Skálafell og Heinaberg.

Regínu þakkað fyrir góða yfirferð.

 


 

6.         Önnur mál

Regína upplýsti um að sótt hafi verið um styrk til veglagningar í Heinabergi en ekki fengist.  Komið hafi fram í svörum Vegagerðarinnar að ekki sé von á frekari fjárveitingu til þjóðgarðavega að óbreyttu.

Velti Sigurlaug því upp hvort að hægt sé að sækja um styrk í framkvæmdasjóð ferðamannastaða ef ekki lengur fást fjárveitingar frá Vegagerðinni.  Jafnframt ræddi Sigurlaug um hvort ekki væri ástæða til að hannaðar yrði flokkunarstöðvar umhverfis þjóðgarðinn.  Regína upplýsti að slíkt væri í vinnu og væri búið að setja upp hluta af slíkri stöð í Skaftafelli.

Regína sagði að ástæða væri fyrir sveitarfélagið að fjölga flokkunarstöðvum í sveitarfélaginu einkum í ljósi þess að sorphirðuferðir eru tíðar alla leið í Skaftafell.  Tóku Hildur, Karl og Guðrún undir þetta.

 

 

 

Fundi slitið 21.30.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica