Fundargerð Almannavarnanefndar 29
29. fundur
Almannavarnarnefnd Hornafjarðar kom saman til fundar .miðvikudaginn 5 .apríl 2006 kl 16.00 í Slysavarnarhúsinu á Höfn
Mætt voru :Páll Björnsson formaður, Steinþór Hafsteinsson, Helgi Már Pálsson,
Albert Eymundsson og Ragnhildur Magnúsdóttir.
1. Rafmagn hjá HSSA
Rætt var um rafmagnsmál HSSA vegna kaupa á vararafstöð og nefndin lagði
áherslu á þau mál komist í gott lag eins og bókað var á síðasta fundi.
Ragnhildur gerði athugunarsemd við tímasetningu fundarins sem rakst á námskeið
vegna flugslysaæfingarinnar sömuleiðis þann drátt sem orðið hefði á fundarboðun.
2. Flugslysaæfing
Páll gerði grein fyrir flugslysaæfingunni. Fyrir 20 apríl þurfa athugasemdir að vera komnar við viðbragðsáætlun æfingarinnar. Rætt um fjarskipti og handstöðvar fyrir heilbrigðis starfsfólk . Formaðurinn ræðir við björgunarsveitina um þessi mál.
3. Skipun aðgerðarstjórnar
Lögð fram tillaga um aðgerðarstjórn sé skipuð fulltrúum frá :
Lögreglu,Slökkviliði, HSSA,Tæknideild Sveitarfélagsins,Björgunarfélagi Hornafjarðar og Björgunarsveitinni Kára sameiginlega og Hornafjarðardeild Rauðakross Íslands,
Hver þessara aðila skal gera tillögu til almannavarnarnefndar um einn mann í aðgerðarstjórn og einn varamann fyrir hvern aðalmann.
Ragnhildur gerði athugasemd við að fulltrúi lögreglunnar væri starfandi lögreglumaður þar sem þeir nýtast betur á vettvangi .
Nefndin telur eðlilegt að lykilmenn í samfélaginu sem nú sitja í almannavarnanefnd en eru ekki í aðgerðarstjórn starfi með aðgerðarstjórninni.
Formanni falið að rita þessum aðilum bréf og óska eftir tilnefningum.
Fundi slitið kl 17.20


