Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð almannavarnarnefndar 32

32. fundur

 

Almannavarnarnefnd Hornafjarðar kom saman til fundar mánudaginn 9. febrúar 2009 kl 12.00 í Ráðhúsinu á Höfn

 

Mættir voru: Björn Ingi Jónsson, formaður, Reynir Arnarson, Páll Björnsson, Ólafur Sigurðsson og Friðrik Jónas Friðriksson.

Einnig:  Hjalti Þór Vignisson.

 

1.      Endurskoðun á aðalskipulagi

Lagt fram tölvubréf frá framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs, dags. 5. janúar 2009, þar sem óskað er eftir ábendingum og tillögum frá almannavarnefnd um kafla um náttúruvá í aðalskipulagi Hornafjarðar.

 

Almannavarnarnefnd samþykkti greinargerð sem send verður starfshópi um breytingar á aðalskipulagi.

 

Almannavarnarnefnd beinir því til bæjarráðs að kortlagðir verði þeir staðir þar sem ár geti ógnað vegum, brúm og öðrum mannvirkjum í sveitarfélaginu.

 

2.      Langtímaviðbrögð við náttúruhamförum

Gerð grein fyrir útgáfu ritsins Langtímaviðbrögð við náttúruhamförum sem er á slóðinni, http://www.ssf.hi.is/page/Frodi_utgafa, sem eru almennar leiðbeiningar til sveitarfélaga varðandi neyðaraðstoð og endurreisn í kjölfar náttúruhamfara.

Lagt fram til kynningar.

 

3.      Önnur mál

·         Björn Ingi ræddi um nauðsyn þess að fá fulltrúa frá Almannvarnardeild Ríkislögreglustjóra til að fara yfir ný samþykkt lög.  Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við embættið og enn sé fyrirhugað að fara í fundarferð um landið.

·         Ólafur Sigurðsson gerði grein fyrir að framkvæmdir við björgunarmiðstöð í Öræfum væru á lokastigi.

 

 

 

 

Fundi slitið kl 12.30

 

 

 

     



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica