Fundargerð almannavarnanefndar 30
30. fundur
Almannavarnarnefnd Hornafjarðar kom saman til fundar fimmtudaginn 30. nóvember 2006 kl 10.00 í Slysavarnarhúsinu á Höfn
Mætt voru: Páll Björnsson formaður,Hjalti Þór Vignisson og Ragnhildur Magnúsdóttir, Einnig: Haraldur Briem sóttvarnalæknir, Guðrún Sigmundsdóttir, Þórólfur Guðnason, Ása Atladóttir frá embætti landlæknis, Þórir Oddsson, Jón F. Bjartmarz, Íris Marelsdóttir og Rögnvaldur Ólafsson frá ríkislögreglustjóra. Auk þess aðilar frá heilbrigðisþjónustu innan héraðs.
Efni fundarins var hugsanlegur heimsfaraldur inflúensu. Gengið var til dagskrár.
1. Þórir oddsson fór yfir aðdraganda og skipulag að verkefni til að bregðast við hugsanlegum heimsfaraldri. Kom fram að hægt sé að kynna sér verkefnið á síðunni http://www.almannavarnir.is/.
2. Haraldur Briem fór nánar yfir verkefnið og m.a. áhættumat varðandi heimsfaraldur inflúensu. Hann fór yfir 5 síðustu heimsfaraldra inflúensu. Kom fram að nú eru liðin 40 ár frá síðustu flensu er langur tími. Þá ræddi hann fuglainflúensu og skaðsemi hennar. Haraldur ræddi um viðbúnað og viðbrögð t.d. að loka landinu,draga úr útbreiðslu ofl. Haraldur greindi frá mismunandi skeiðum eða stigum inflúensu.
Stefán Þórarinsson yfirlæknir HSA spurði um hvenær búast megi við að faraldur breiðist hér út. Svar við því er óráðið en margt bendi til þess að það verði í SA-Asíu og einnig er ekki vitað hversu hratt hann breiðist út.
3. Rögnvaldur Ólafsson fór yfir viðbragðsáætlun og verkefni utan heilbrigðisþjónustunnar. Áætlunin er mjög víðtæk og ekur yfir alla innviði samfélagsins. Rögnvaldur ræddi um samstarf við ???????, banka[ÓG1] , birgja varðandi matvæli og eldsneyti og samstarf við bændur.
Þá ræddi hann um hvernig halda ætti úti almennri þjónustu, t.d. póstþjónustu, skólahaldi og fleira.
SÞ Rætt um lokun vegna sóttvarna og skiptingu í sóttvarnasvæði. Kom fram að hvert landssvæði getur tekið á þessu fyrir sig. Miðaða er við að svæðin séu sjálfbjarga í u.þ.b. 12 víkur.
4. Guðrún Sigmundsdóttir fór yfir verkefni heilbrigðisþjónustunnar. Kom fram í hennar máli að nauðsynlegt sé að aðlaga áætlunina að staðbundnum aðstæðum. Hún fór fyrir ýmis verkefni eins og skráningu, vitjanir í heimahús og sjúkraflutninga.
Spurning:
Er gert ráð fyrir 50% starfsmönnum í virkni?
Svar:
U.þ.b. 50% starfsfólks.
5. Þórólfur Guðnason fór yfir veirulyf gegn inflúensunni sjálfri.Ljóst er að bólusetningarlyf verði ekki til fyrr en að heimsfaraldri verður til. Kom fram að Íslendingar og Danmörk eru í samvinnu um útboð. Einnig hugmynd um sameiginlega verksmiðju fyrir Norðurlönd. Kom fram að Ísland verður í góðum málum varðandi önnur nauðsynleg lyf og dreypilif.
Fór Þórólfur yfir hvernig birgðum yrði dreift. Nauðsynlegt að skilgreina vinnureglur varðandi dreifingu lyfja í héraði. Dreifing út til almennings þar að vera mjög skilvirk og hraðverk, boðleiðir skýrar og ábyrgðaraðilar skilgreindir.
6. Ása Atladóttir fór yfir hlífðarbúnað í heimsfaraldri inflúensu. Hún ræddi um smitleiðir í lofti. Þá ræddi hún um grímur, sloppa og fl.. Gert er ráð fyrir mjög öflugum hlífðarbúnaði.
7. Haraldur Briem átti nokkur lokaorð, ræddi m.a. um boðleiðir í héraði og hlutverk í héraði.
Fundi slitið kl. 12:00
Hjalti Þór Vignisson
Ragnhildur Magnúsdóttir
Páll Björnsson
[ÓG1]Hér vantar mig orð og er banka rétt?


