Fundargerð almannavarnanefndar 39
39. fundur
Fundur haldinn í almannavarnarnefnd Hornafjarðar, mánudaginn 11. apríl 2011, kl. 20.00 í Ráðhúsi.
Mætt voru: Björn Ingi Jónsson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Friðrik Jónas Friðriksson, Páll Björnsson og Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Einar Sigurjónsson.
Fundaritari: Ásgerður K. Gylfadóttir
Dagskrá:
Formaður bauð nýskipaða almannavarnanefnd velkomna til starfa.
1. Flugslysaæfing.
Farið yfir lokaskýrslu síðustu flugslysaæfingar frá maí 2006.
Rædd ábyrgðarsvið fyrir flugslysaæfinguna 7. maí 2011:
Leikarar og förðun þeirra - Lögreglan.
Vettvangsstjórn/gæslustjórn: Lögreglan hefur yfirumsjón. Skilgreining hlutverka, sett nöfn við þau fyrir æfingu. Athuga hvort búnaður sé tiltækur. Kalla eftir því sem vantar s.s. vestum.
Skilgreina þarf faratæki til flutninga á fólki, innan svæða og frá slysstað.
Rætt um almenna samvinnu hjálparaðila, að hlutverk breytist eftir þörf hverju sinni og fólk sé tilbúið til sveigjanleika í þeim efnum.
Jónas greindi frá því að eðlilegt væri að fjarskipti gengu illa 2006 þar sem fjarskiptaplani var breytt tveim dögum fyrir æfingu.
2. Fjarskipti.
Komið nýtt fjarskiptaplan þar sem gert er ráð fyrir notkun Tetra stöðva. Björn Ingi lagði til að fengið yrði námskeið í notkun Tetra stöðva frá Neyðarlínunni sem fyrst til að undirbúningur geti hafist. Á það námskeið þarf að fá sem flesta frá öllum hjálparaðilum. Rætt um fjölda Tetra stöðva á svæðinu og hvar þyrfti að bæta við stöðvum.
3. Aðgerðastjórn.
Fundarmenn sammála um að stjórnstöð verður áfram í Slysavarnarhúsinu þrátt fyrir galla í húsnæðinu.
Fulltrúar í aðgerðastjórn: Svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 15 verður að aðgerðastjórn í almannavarnaraðstæðum. Við bætast eftir aðstæðum Páll Björnsson sýslumaður staðgengill lögreglustjóra sem situr á Eskifirði, samkvæmt skilningi formanns. Formaður Hornafjarðardeildar RKÍ, framkvæmdastjóri HSSA, fulltrúi Slysavarnardeildarinnar Framtíðar, fulltrúi frá slökkviliði, Birgir Árnason tæknideild Sveitarfélagsins og fulltrúi almannavarnarnefndar.
4. Önnur mál.
Rætt um fund sem verður með fulltrúum allra viðbragðsaðila á morgun kl. 16:00 í Slysavarnahúsinu. Þar verður farið yfir flugslysaáætlunina og bætt inn því sem vantar frá hverjum og einum hóp.
Vettvangsstjóranámskeið, möguleiki að fá slíkt námskeið hingað austur en ekki tími til þess fyrir æfingu. Það þarf 15 einstaklinga til að grundvöllur sé fyrir námskeiði.
Fundi slitið kl. 21.40


