Fundargerð Bæjarráðs 250
250. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 5. maí 2004, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson. Áheyrnarfulltrúi var Eyjólfur Guðmundsson.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H.Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 16. apríl 2004 til kynningar
2. Braut fyrir motorcrossakstur
• Bréf Áhugafélags um motorcross dags. 23. apríl 2004.
Bæjarráð samþykkir að úthluta tímabundið svæði við Lyngey fyrir motorcross. Bæjarstjóra og starfsmönnum tækni- og umhverfissviðs falið að sjá um útfærslu í samvinnu við umsækjendur.
3. Ósk um staðfestingu sveitarstjórnar setu á jörð
• Bréf Kristins Péturssonar dags. 30. apríl 2004
Afgreiðslu frestað.
4. Innsend erindi og til kynningar
• Afrit af bréfi UST dags. 26. apríl 2004 til Siglingastofnunar Íslands vegna leyfisveitingar fyrir veðurstöð á Ignólfshöfða.
Til kynningar.
• Bréf UST dags. 28. apríl 2004 um Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs. Skýrslan er í pdf skjali á vef UST.
Til kynningar.
• Ályktun 65. fulltrúaráðsfundar Samb. ísl. Sveitarfélaga 23. apríl s.l., um eflingu sveitarstjórnarstigsins.
Til kynningar.
• Umsókn um námsvist við tónlistarskóla utan lögheimilissveitarfélags.
Fjöldi hornfirskra nemenda á framhaldsskólaaldri stundar að eigin frumkvæði nám við ýmsa sérskóla, víða um land, sem ekki falla undir skólaskyldu. Bæjarráð telur það ekki skyldu sveitarfélagsins að taka þátt í námskostnaði við slíka skóla og hafnar því umsókninni.
5. Önnur mál
Líkamsræktartæki sveitarfélagsins
Tvö tilboð bárust. Annað var tilboð í eitt tæki og hitt var tilboð um að ganga inn í eldri samning við Orkuverið ehf. um tækin. Bæjarráð sammála um að taka ekki tilboði um að gengið verði inn í eldri samning við Orkuverið og leggur til að tækin verði auglýst aftur til sölu. Samþykkt að selja þetta eina tæki sem tilboð barst í.
Bréf frá Búmönnum þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið kaupi búseturétt að einni óseldri íbúð við Víkurbraut 32. Óskað eftir nánari upplýsingum um frekari áform Búmanna áður en afstaða verður tekin til erindisins.
Afgreiðsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á umsókn Sveitarfélagsins Hornafjarðar um stofnframlag vegna leigu á húsnæði fyrir handmenntakennslu. Sjóðurinn hafnaði umsókninni.
Halldóra Bergljót greindi frá stöðunni í viðræðum Launanefndar sveitarfélaga og samninganefndar grunnskólakennara um kjarasamninga.
Fundi slitið kl. 11:00


