Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 254
254. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 3. júní 2004, kl 8:30
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir og Reynir Arnarson. Áheyrnarfulltrúi var Eyjólfur Guðmundsson.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H.Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 111. fundur 25. maí 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Æskulýðs- og tómstundaráð 60. fundur 24. maí 2004.
Haukur Þorvaldsson mætti á fundinn. Rætt var um að æskulýðs- og tómstundaráð og tækni- og umhverfissvið leggi fram áætlun um hvernig skipulagi Vinnuskólans verði hagað næstu árin en ljóst er að um samstarfsverkefni á milli þessara aðila er að ræða þótt skipulagslega heyri verkefnið undir æskulýðs- og tómstundaráð. Bæjarráð tekur undir nauðsyn þess að koma á sameiginlegri vallarstjórn yfir öllum íþróttavöllum í sveitarfélaginu og felur Hauki að óska eftir tilnefningum frá hlutaðeigandi aðilum. Bæjarráð lýsti ánægju með að gerðar verði tilraunir með að hafa sundlaugina opna á stórhátíðisdögum og að opnunartíminn verði lengdur á Humarhátíð.
Fundargerð samþykkt.
2. NPP verkefnið
Inga Jónsdóttir mætti á fundinn og fór yfir í hverju þetta verkefni felst og hvaða ávinning sveitarfélagið hefur af þátttöku. Bæjarráð telur verkefnið mjög áhugavert og samþykkir að Sveitarfélagið Hornafjörður taki þátt í því og tryggi framlag að upphæð 20.400 evrur á 3. ára tímabili, þar af helminginn í reiðufé ( kr. 300.000 á ári) en helmingurinn er í formi vinnuframlags og aðstöðu.
3. Innsend erindi og til kynningar
• Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 27. maí sl. v. þjónustusamnings.
Framkvæmdastjórum fjármálasviðs og stjórnsýslusviðs er falið að svara erindinu.
• Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, bréf dags. 18. maí um Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs.
Til kynningar.
• Nefnd um sameiningu sveitarfélaga, bréf dags. 26. maí sl. þar sem sveitarfélaginu er boðið að senda fulltrúa á fund sem haldinn verður á Vík 3. júní 2004.
Til kynningar.
• SSA, bréf dags. 31. maí sl. um málþing um þekkingarsetur og þekkingarnet á Austurlandi og tengsl rannsókna, atvinnulífs og háskólanáms á Austurlandi sem haldið verður á Egilsstöðum 11. júní n.k.
Til kynningar.
• HAUST, bréf dags. 22. maí sl. um samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss nr. 263/2004.
Í bréfinu kemur fram að samþykktin gefi HAUST tryggari stöðu en áður hefur verið til að aðstoða viðkomandi sveitarfélög í umhverfisátökum eins og gjarnan fara fram á vorin en gert er ráð fyrir frumkvæði frá viðkomandi sveitarfélagi eða íbúum. Bæjarráð felur umhverfisnefnd og tækni- og umhverfissviði að móta starfsreglur í samræmi við samþykktina til að vinna eftir.
• Vegagerðin, bréf dags. 24. maí sl. v. umsóknar í styrkvegasjóð.
Til kynningar.
• Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 25. maí sl. v. ágangs hreindýra vestur yfir Jökulsá.
Til kynningar.
• Ferðamálaráð Íslands, bréf dags. 24. maí sl. um leiðbeiningar um uppbyggingu tjaldsvæða
Til kynningar
4. Önnur mál
Sala á líkamsræktartækjum sveitarfélagsins
Tilboð að upphæð kr. 1.250.000 hefur borist í öll líkamsræktartæki sveitarfélagsins. Bæjaráð samþykkir að taka tilboðinu.
Svæði fyrir motocross
Bæjarráð er sammála um að úthluta svæði við Drápskletta tímabundið.
Rætt var um hvort setja eigi reglur varðandi heimild starfsmanna til töku launaðs námsleyfis.
Bæjarráð kallar eftir ýmsum upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi málið. Erindið verður tekið fyrir síðar.
Reynir þakkaði samstarfið í bæjarráði en hann tekur nú stöðu varamanns.
Fundi slitið kl. 10:25


