Fundargerð Bæjarráðs 255
255. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 16. júní 2004, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Björk Pálsdóttir, Einar Karlsson . Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H.Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Atvinnumálanefnd 12. fundur 4. júní 2004
Fram komu ábendingar um fjölda atvinnuauglýsinga í seitarfélaginu á sama tíma og atvinnulausir á skrá voru samtals 30 þann 4. júní sl.
Fundargerð samþykkt.
• Byggingar- og skipulagsnefnd 53. fundur 9. júní 2004
Fundargerð samþykkt
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 112. fundur 8. júní 2004
Fundargerð samþykkt
• Hafnarstjórn Hornafjarðar 58. 2. júní 2004 og 59. fundur 9. júní 2004
Búið er að skrifa undir verksamning við Ísar ehf. vegna framkvæmda við Krosseyjarbakka. Fram kom að sjóvarnargarður á Suðurfjöru hafi sigið vegna ágangs sjávar. Það þurfi að laga. Einnig kom fram að garður út í Einholtskletta myndi styrkja Suðurfjörur á umræddu svæði og draga verulega úr álagi á sjóvarnargarðinn.
Fundargerðir samþykktar.
2. Innsend erindi og til kynningar
• Þjóðahátíð Austfirðinga, bréf dags. 2. júní 2004 með beiðni um styrk
Umsókn um styrk hafnað.
• Samband íslenskra sveitarfélaga, bref dags. 8. júní 2004 um útgáfu á norrænu hugmyndahefti um Staðardagskrá 21
Til kynningar
3. Önnur mál
Deiliskipulag á tjaldsvæði. Engar athugasemdir hafa borist á auglýsingaferlinu, en deiliskipulagstillagan hefur verið til kynningar frá 5. maí sl. eða í 6 vikur eins og kveður á um í lögum. Mistök urðu hins vegar á dagsetningum í auglýsingu ( 20. maí í stað 4. júní ) og nauðsynlegt er því að endurtaka auglýsingaferlið.
Náttból ehf. hefur með bréfi dagsettu 15. júní 2004 ítrekað og endurnýjað umsókn um lóðaúthlutun fyrir 10 smáhýsi á tjaldsvæði í Hrossabithaga samkvæmt deiliskipulagstillögu frá bæjarráði sem er í lokavinnslu.
Fyrir liggur að deiliskipulagstillaga hefur verið auglýst í tilskilinn tíma og engar athugasemdir komið fram vegna hennar. Frágangur þessara húsa gefur alltaf möguleika á tilfærslum og flutningi án mikillar fyrirhafnar og ekki er um varanlega jarðröskun að ræða.
Bæjarráð telur ekki ástæðu að láta formsatriði og dagsetningar tefja viðkomandi framkvæmdir þar sem næstu vikur er mikilvægur framkvæmdatími og deiliskipulagið á aðeins eftir að fá formlega staðfestingu.
Bæjarráð samþykkir viðkomandi lóðaúthlutun og felur bæjarstjóra og starfsmönnum tækni- og umhverfissviðs að ganga frá málinu samkvæmt meðfylgjandi teikningu og tillögu að samningi við Náttból.
Albert gerði grein fyrir athugasemdum yfirdýralæknis við fjárflutninga á milli Hornafjarðar og Álftafjarðar. Málinu vísað til atvinnumálanefndar.
Samþykkt að veita eftirtöldum aðilum vínveitingaleyfi:
• Renato Grunenfelder f.h. Fosshótels Vatnajökuls Lindarbakka í Hornafirði, umsókn dags. 5. apríl sl.
• Tryggva Guðmundssyni vegna Hótels Eddu Nesjaskóla, umsókn dagsett 13. apríl sl.
• Ásmundi Gíslasyni vegna Þorpsins veitingasölu í Árnanesi, umsókn dags. 16. apríl sl.
Kynning framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs á tillögum um sérstakan stuðning í Hafnarskóla skólaárið 2004 – 2005. Fram kom í máli hans og Ragnheiðar Jóhannsdóttur sérkennslufulltrúa að veruleg þörf er fyrir slíkan stuðning vegna fjölda barna sem greinst hafa með náms- og hegðunarvanda.
Samþykkt að afgreiða fram komna tillögu á næsta fundi bæjarráðs.
Albert gerði grein fyrir stöðunni í málefnum HSSA.
Stefán gerði grein fyrir samtölum við embættismenn í félagsmálaráðuneytinu vegna málefna fatlaðra.
Albert geindi frá því að kjördeildir verði með hefðbundnu sniði í forsetakosningum í lok júní.
Fundi slitið kl. 11:15


