Fundargerð Bæjarráðs
204. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 20. mars 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 42. fundur 13. mars 2003.
Gera þarf leiðréttingu á lista yfir þá sem mættu á fundinn.
Kristín spurði um grenndarkynningu vegna fyrirhugaðs byggingarsvæðis Búmanna. Helgi sagði þetta byggingarsvæði vera á Aðalskipulagi og því ekki skyldu að fara með málið í grenndarkynningu. Bæjarráð samþykkir að úthluta Búmönnum lóðunum Víkurbraut 32 og 34, nýtingarhlutfallið verði 0,22 - 0,25 og að grenndarkynning fari fram. Elín sat hjá við afgreiðslu á nýtingarhlutfalli lóðanna. Bæjarráð veitir ekki leyfi fyrir því að skilti verði sett upp á Hafnarbraut 25 á meðan ekki hefur verið tekin ákvörðun um framtíð hússins.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 88. fundur 25. febrúar 2003 og 89. fundur 11. mars 2003.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðar 44. fundur 17. mars 2003.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð 186. fundar Launanefndar sveitarfélaga - til kynningar.
2. Samningur vegna framkvæmda á Sindravöllum
Bæjarstjóri kynnti drög að samstarfssamningi milli knd. Sindra og sveitarfélagsins um uppbyggingu og framkvæmdir á Sindravöllum. Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að ganga til samninga við knd. Sindra á grundvelli fyrirliggjandi draga.
3. Drög að stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta og tómstundamálum á Hornafirði
Bæjarráð leggur til að stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum verði samþykkt með eftirfarandi breytingum: Stefnumótunin sjálf verði sérstakt skjal en staðan í dag (liðir 1 og 2) og kostnaðarútreikningar fylgi með sem fylgiskjöl.
Bæjarráð vísar stefnumótuninni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
4. Tilnefning tveggja fulltrúa í nefnd til undirbúnings byggingu 2. áfanga við hjúkrunarheimilið Skjólgarð.
Bæjarráð tilnefnir Halldóru B. Jónsdóttur og Jóhann Ólafsson fulltrúa sveitarfélagsins í nefndina.
5. Lánsfjármögnun
Ásta upplýsti að tilboð í verðtryggt lán að upphæð 150 milljónir hefðu borist frá Landsbanka Íslands, Íslandsbanka og Kaupþingi. Bæjarráð felur fjármálastjóra að gera samanburð á tilboðunum og stefnir að því að ákvörðun um lántöku verði tekið á næsta bæjarráðsfundi sem haldinn verður 26. mars n.k.
6. Uppgjör gatnagerðargjalda
Elín vék af fundi undir þessum lið.
Lagt var fram minnisblað fjármálastjóra um málið dags. 11.mars s.l . Bæjarráð heimilar kaup á þremur 2ja herbergja íbúðum á Silfurbraut 2-4 sem greiðslu upp í skuld vegna gatnagerðargjalda. Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga til viðræðna við aðila skv. tillögu II á minnisblaðinu.
7. Dagvistarmál
Eftirfarandi bókun var samþykkt í skólanefnd á fundi þann 19. mars síðastliðinn: Öll börn í Óla priki sækja nú leikskóla eftir hádegi. Mikilvægt er að festa ríki í starfi skólans, bæði hvað varðar vistunartíma barna og starfsmannahald. Því leggur skólanefnd til að einungis verði boðið upp á vistun eftir hádegi frá og með fimmtudeginum 20. mars 2003
Í ljósi bókunar skólanefndar samþykkir bæjarráð að Leikskólinn Óli prik starfi einungis eftir hádegi frá og með 20. mars 2003.
Stefán kynnti málefni leikskólans í Hofgarði.
8. Aðgangur að Suðurfjörum
· Bréf Björgunarfélags Hornafjarðar dags. 17. mars 2003.
Bæjarráð lýsir áhyggjum af því ástandi sem skapast hefur varðandi aðgengi að Suðurfjörum. Bæjarráð leggur til að fulltrúar tækni- og umhverfissviðs leiti eftir samvinnu við Vegagerðarina, Landgræðsluna og landeigenda um viðunandi úrbætur.
9. Innsend erindi og til kynningar
· Þátttaka er lífsstíll – málþing um æskulýðsmál haldið í Borgarholtsskóla í Reykjavík 29. mars n.k.
Til kynningar.
· Jafnréttisþing – haldið í Ketilshúsinu á Akureyri 7. april n.k.
Til kynningar.
10. Önnur mál
Næsti bæjarráðsfundur verður haldinn miðvikudaginn 26. mars n.k. kl. 12.
Dreift var minnisblaði um framkvæmdir á urðunarsvæði í Lóni
Verkefni Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Hátíðni í „Rafrænt samfélag“ var ekki meðal þeirra fjögurra verkefna sem komust í forval.
Halldórs spurðist fyrir um fyrirhugaðar framkvæmdir við Hafnarbraut. Helgi upplýsti að verkið verður boðið út í næsta mánuði og verklok eru áætluð í júnílok.
Fundi slitið kl. 13:00


