Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
200. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 18. febrúar 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 42. fundur 13. febrúar 2003.
Fram kom að það er bæjarráð sem úthlutar lóðum en ekki byggingar- og skipulagsnefnd og vísa ber þeim erindum til bæjarráðs til afgreiðslu.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð 87. fundur 11. febrúar 2003.
Rætt var um hvort þörf sé á skírari boðleiðum til þess að auðvelda almenningi að koma á framfæri tilkynningum til barnaverndarnefndar.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 45. fundur 12. febrúar 2003.
Bæjarráð hvetur til þess að fleiri verk Svavars Guðnasonar verði sett upp í stofnunum sveitarfélagsins en nú þegar er hluti þeirra í Ráðhúsi. Spurt var um kostnaðaráætlun og hönnunargögn varðandi endurbætur á Pakkhúsi. Aflað verður frekari upplýsinga um málið.
Fundargerð samþykkt.
2. Rafrænt samfélag – heimsókn þeirra sem sýnt hafa verkefninu áhuga
Fulltrúar frá Galdri, Hátíðni og Martölvunni mættu á fundinn og fóru yfir tillögur sínar að verkefnum sem fallið geti að verkefnislýsingu Byggðastofnunar um „Rafrænt samfélag“.
Kristín er hlynnt því að Sveitarfélagið Hornafjörður ábyrgist þær umsóknir sem munu berast varðandi Rafrænt samfélag og þær verði sendar til Byggðastofnunar sem taki afstöðu til þeirra.
Bæjarráð samþykkir að gefa þeim aðilum sem mættu á fundinn kost á að senda inn tillögu að umsókn um verkefnið Rafrænt samfélag og felur starfsmönnum að koma því á framfæri í samræmi við umræður á fundinum.
3. 3ja ára áætlun
Ásta fór yfir fyrstu drög að 3ja ára áætlun.
4. Innsend erindi og til kynningar
· Umhverfisverðlaunin Nations in bloom
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfisnefndar.
5. Önnur mál
Engin
Fundi slitið kl. 13:30


