Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
201. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 27. febrúar 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Starfshópur um stofnun Jöklaseturs á Hornafirði 2. fundur 17. febrúar 2003.
Fundargerð samþykkt.
· HAUST 34. fundur 12. febrúar 2003 til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun - 10 ára áætlun
Ásta lagði fram fyrstu drög að 10 ára áætlun. Bæjarráð óskar eftir því að tækni- og umhverfissvið geri áætlun um fyrirhugaðar holræsaframkvæmdir bæði fjárþörf og framkvæmdatíma. Bæjarráð telur einnig æskilegt að kannaðir verði kostir þess að flýta framkvæmdum vegna fyrirsjáanlegra stórframkvæmda í landinu á næstu árum. Bæjarráð vísar áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3. Kjarasamningsumboð til Launanefndar sveitarfélaga
Bæjarráð samþykkir að veita Launanefnd sveitarfélaga kjarasamningsumboð sveitarfélagsins gagnvart Vökli stéttarfélagi og Matvís.
4. Beiðni um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Bæjarráð telur ekki fært að verða við þessari beiðni um skólavist utan lögheimilissveitarfélags og felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að upplýsa viðkomandi sveitarfélag um ákvörðunina.
5. Erindi SSA vegna kynningar á og samráðs um umsögn á:
· Tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2003-2006, 563. mál.
· Samgönguáætlun fyrir árin 2003 – 2014 469. mál.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við áætlunina.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Árgjöld sveitarfélaga til SSA 2003.
Til kynningar.
· Samstarf Úrvinnslusjóðs og sveitarfélaga/sorpsamlaga um endurnýtingu úrgangs – bréf úrvinnslusjóðs dags. 11. febrúar 2003.
Óskað er upplýsinga frá tækni- og umhverfissviði um hvort þessu samstarfi fylgi aukinn kostnaður fyrir sveitarfélagið.
· Tilnefning SSA á sameiginlegum fulltrúum sveitarfélaga í Hreindýraráð - bréf SSA 11. febrúar 2003.
Til kynningar.
· Ráðstefna um fráveitumál á Grand Hótel 7. mars n.k.. – bréf Fráveitunefndar Umhverfisráðuneytisins 21. febrúar 2003.
Erindinu vísað til tækni- og umhverfissviðs.
· Kynning á Fs neti - bréf Fræðslunets Austurlands dags. 21. febrúar 2003.
Til kynningar. Undir þessum lið var rætt um mikilvægi þess að efla fjarnám á framhalds- og háskólastigi. Í því skyni gæti ráðning nýs starfsmanns sem sinnti þessum málum í Nýheimum orðið mikið framfaraspor. Starfsmaðurinn gæti verið ráðinn sameiginlega af FAS, FNA og Háskólasetri á Hornafirði en ljóst er að aukið fjármagn þarf til að koma þessu starfi á laggirnar.
· Rammasamningur Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um 2. áfanga við Hjúkrunarheimilið Skjólgarð.
Bæjarstjóri kynnti samninginn.
· Átak gegn verslun með konur - bréf Félagsmálaráðuneytis dags. 21. febrúar 2003.
Til kynningar.
· Ráðstefna á Kirkjubæjarklaustri um landkosti Skaftárhrepps 8.-.9. mars 2003.
Til kynningar.
· Ráðstefna á Kirkjubæjarklaustri um Staðardagskrá 21, 14. – 15. mars 2003.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
· Endurmæling á grunnstöðvanetinu árið 2004 – bréf Landmælinga Íslands dags 14. febrúar 2003.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
7. Önnur mál
Rafrænt samfélag
Tvær tillögur um verkefni bárust. Önnur frá Hátíðni sem barst á tilskyldum tíma en hin frá Martölvunni sem barst tæpum sólarhring eftir tilskilinn frest án þess að óskað hafi verið eftir lengri skilafresti fyrirfram.
Bæjarráð samþykkir að leita eftir samvinnu við Hátíðni, sem skilaði mun ítarlegri gögnum á tilskyldum tíma, um frekari útfærslu á verkefninu með það í huga að unnt verði að skila inn umsókn til Byggðastofnunar 4. mars n.k.
Kristín Gestsdóttir tók ekki afstöðu til málsins þar sem hún taldi sig ekki hafa haft nægan tíma til að kynna sér gögnin.
Rætt var um samkomulag menntamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis um verkefni á sviði byggðamála
Bæjarráð samþykkti eftirfarandi bókun vegna málsins:
„Bæjarráð Hornafjarðar fagnar þeirri ákvörðun menntamálaráðherra og iðnaðarráðherra að lagt skuli aukið fé til átaks í uppbyggingu menntunar og menningar á landsbyggðinni. Háskólasetrið á Hornafirði hóf starfsemi sína árið 2002. Eru bundnar miklar vonir við starfsemi þess á sviðum rannsókna og kennslu á háskólastigi. Fjárframlag til setursins er af mjög skornum skammti og útilokað að það nái að vaxa og dafna ef fjárhagsstaða þess verður ekki bætt. Því skorar bæjarráð á menntamálaráðherra og iðnaðarráðherra að sjá til þess að aukið fjármagn renni til Háskólasetursins á Hornafirði og að það sitji við sama borð og aðrar sambærilegar stofnanir á landinu.“
Fundi slitið kl. 12:00


