Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 264
264. fundur
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson og Hjalti Þór Vignisson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Félagsmálaráð Hornafjarðar 114. fundur 14. september 2004.
Fundargerð samþykkt.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 61. fundur 9. september 2004.
Kristín spurði af hverju dæling á Grynnslunum væri ekki hafin. Bæjarstjóri upplýsti að það stæði á verktakanum sem er í öðrum verkefnum fyrir Siglingastofnun.
Fundargerð samþykkt.
Menningarmálanefnd Hornafjarðar 59. fundur 15. september 2004.
Bæjarráð hefur einungis séð drög að ráðstöfun á 14 millj. kr. stofnfjárstyrk til menningarhúsa. Bæjarráð kallar eftir endanlegum tillögum um ráðstöfun fjárins til staðfestingar.
Bæjarstjóri upplýsti að síðustu afskipti sín varðandi varðveislu Akureynnar hafi verið þau að í viðræðum við formann útvegsmannafélagsins hafi komið fram að félagið myndi hafa frumkvæði í málinu.
Kristín vakti máls á því að í tengslum við þau gögn um líf og starf Svavars Guðnasonar og verk hans sem til eru nú hjá sveitarfélaginu hvort hugmyndir væru uppi um að gera þau aðgengileg fræðimönnum. T.d. í tengslum við Háskólasetrið og Listaháskólann svo og öðrum fræðimönnum á listasviðinu til rannsóknar og skoðunar. Þetta væri stór þáttur í menningartengdri ferðaþjónustu.
Fundargerð samþykkt.
Skólanefnd Hornafjarðar 63. fundur 14. september 2004.
Halldóra Bergljót ítrekaði að dagsetning á fyrirhuguðu skólamálþingi yrði ákveðin sem fyrst.
Kristín ræddi um nýjar starfsreglur leikskólanna í Hornafirði og lýsti ánægju með þær en benti á að reglur fyrir leikskólanna þarf að taka fyrir sem sérstakan lið á næsta fundi bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
Umhverfisnefnd Hornafjarðar 45. fundur 13. september 2004.
Fram kom að umhverfisnefnd fær drög að reglugerð um stækkaðan Skaftafellsþjóðgarð til umsagnar.
Fundargerð samþykkt.
Heilbrigðisnefnd Austurlands 49. fundur 13. ágúst 2004 og 50. fundur 15. september 2004 til kynningar.
Albert tilkynnti að heilbrigðisfulltrúi sveitarfélagsins láti af störfum fljótlega. Bæjarráð samþykkir að framkvæmdarstjóri HAUST vinni að lausn málsins.
Fundargerð Launanefndar sveitarfélaga 195. fundur 15. september 2004.
Til kynningar.
2. Fundur með fjárlaganefnd Alþingis
Albert lagði fram og fór yfir minnisblað fyrir fundinn með fjárlaganefnd.
3. Yfirlýsing gerð í Skaftafelli vegna þjóðgarðsins í Skaftafelli 12. september 2004.
Albert upplýsti fundarmenn að hann hafi óskað eftir fundi með umhverfisráðherra n.k. mánudag til að fara yfir reglugerð um þjóðgarðinn í Skaftafelli og kynningu á stækkun þjóðgarðsins í Sveitarfélaginu.
4. Innsend erindi og til kynningar
Samband íslenskra sveitarfélaga v/fjármálaráðstefnu sveitarfélaga, bréf dags. 3. september 2004
Til kynningar.
Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga ,bréf dags. 7. september 2004.
Halldóra B. spurði um lánamál sveitarfélagsins og hvort vinna væri hafin við skuldbreytingar á lánum sveitarfélagsins. Ásta dreifði og fór yfir minnisblað um skuldbreytingu á langtímalánum, dags. 22. september. Ásta skýrði frá því að viðræður væru hafnar um skuldbreytingar hjá viðkomandi lánadrottnum.
Prestssetrasjóður v/jarðanna Leitis og Jaðars, bréf til Landbúnaðarráðuneytisins, bréf dags. 7. september 2004.
Til kynningar.
Naust v/Vatnajökulsþjóðgarðs, bréf til Umhverfisráðuneytisins, dags. 9. september 2004.
Til kynningar.
Félagsmálaráðuneytið v/úrskurðarnefndar um félagsþjónustu, bréf dags. 9. september 2004.
Til kynningar.
Sambands íslenskra sveitarfélaga v/ráðstefnunnar Ungt fólk – lýðræði og þátttaka, tölvubréf dags. 10. september 2004.
Erindinu vísað til æskulýðs- og tómstundaráðs.
Samband íslenskra sveitarfélaga, um kynningarfund um breiðbandsvæðingu,tölvubréf dags. 13. september 2004.
Til kynningar.
Ársfundur náttúruverndarnefnda og Umhverfisstofnunar 8. október 2004.
Erindinu vísað til umhverfisnefndar.
Til kynningar.
Sjöunda landsráðstefna Staðardagskrár 21 8. október 2004.
Til kynningar.
5. Önnur mál
· Emil Björnsson frá Fræðsluneti Austurlands mætti á fundinn og kynnti niðurstöður könnunar á þörf fyrir fræðslu og menntun í Sveitarfélaginu Hornafirði. Bæjarráð mun fjalla um málið í framhaldi af þessu og taka málið aftur upp á næstu bæjarráðsfundum.
· Inga Jóna sagði frá ósk fulltrúa Vökuls Stéttarfélags um fund til að ræða bókun I í síðasta kjarasamningi:
„Aðilar samnings þessa eru sammála um að endurskoða innröðun starfa í launaflokka eigi síðar en 31. desember 2002. Framangreind endurskoðun getur leitt til allt að tveggja til fjögurra prósentna launahækkunar frá 1. des 2002.“
Bæjarráð hefur vísað kjarasamningsumboði vegna samninga við Vökul til Launanefndar. Þar er unnið hörðum höndum að gerð nýs starfsmats m.a. með aðkomu Vökuls Stéttarfélags.
Bæjarráð telur ótímabært og ekki eðlilegt að farið verði að vinna annað starfsmat sérstaklega fyrir Vökul þegar unnið er að heildstæðu og samræmdu mati á landsvísu á vegum LN og launþegasamtaka.
· Ásgeir Ásgeirsson sem ráðinn hefur verið til að gera úttekt á fjárhagsstöðu Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands mætti á fundinn og fór yfir minnisblað sem lagt verður fram í viðræðum við fulltrúa heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis n.k. föstudag. Á minnisblaðinu er rökstuðningur fyrir óskum um leiðréttingu á fjárframlögum til stofnunarinnar.
· Bæjarráð samþykkir sölu á Hæðargarði 7.
· Spurst var fyrir um safnvegaáætlun Vegagerðarinnar. Bæjarstjóri hefur þegar óskað eftir fundi um málið.
· Bæjarráð óskar eftir að samhliða vinnu við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2005 verði unnið samhliða að greiðsluáætlun fyrir Sveitarfélagið.
Fundi slitið kl. 12.00


