Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 273
273. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 2. desember kl. 8:15.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 14. fundur 23. nóvember 2004.
Kristín tók undir mikilvægi þess að fylgja eftir verkefnum eins og um málþingið um klasa sem haldið var 12. nóvember s.l.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 63. fundur 24. nóvember 2004.
Bæjarráð samþykkir tilboð sem borist hefur í framkvæmd við þekju á Krosseyjarbakka.
Halldóra óskaði eftir því að starfsmönnum í Ráðhúsi verði falið að taka saman atriði um samgöngumál í lofti, láði og á legi og kynna fyrir bæjarráði.
Halldóra spurðist fyrir um erindi Litlahorns ehf vegna samstarfs um viðlegukant á Austurfjörum innanverðum fyrir útskipun á fyllingarefnum.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 64. fundur 22. nóvember 2004.
Rætt um forvarnir í sveitarfélaginu og hugmyndir æskulýðsfulltrúa um stofnun VÁ-HORN hóps. Skiptar skoðanir voru um málið.
Bæjarráð samþykkti tillögur um hækkun gjaldskrár í sundlaug
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 51. fundur 24. nóvember 2004.
Til kynningar.
· Stjórn Sambands íslenskrar sveitarfélaga 719. fundur 19. nóvember 2004
Til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2005
Fundur með forstöðumönnum hófst kl. 8:15. Eftirfarandi forstöðumenn komu og gerðu grein fyrir máli sínu og skiptust á skoðunum og upplýsingum við bæjarráð og starfsmenn:
Þorvaldur Jón Viktorsson, skólastjóri Nesjaskóla,
Arnbjörg Stefánsdóttir, skólastjóri Hafnarskóla,
Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, skólastjóri Heppuskóla,
Pálína Þorsteinsdóttir, skólastjóri Grunnskólans í Hofgarði (í síma),
Þorbjörg Arnórsdóttir, skólastjóri Hrollaugsstaðaskóla (í síma),
Snæfríður Svavarsdóttir, leikskólastjóri Krakkakots,
Margrét Ingólfsdóttir, leikskólastjóri Lönguhóla,
Jóhann Morávek, skólastjóri Tónskóla A-Skaft.,
Kjartan Jónsson, forstöðumaður áhaldahúss,
Haukur Þorvaldsson, æskulýðs- og tómstundafulltrúi,
Maren Sveinbjörnsdóttir, fulltrúi málefna fatlaðra,
Að loknum fundi með forstöðumönnum var gert fundarhlé til kl. 16:00.
· Ákvarðanir um gjaldskrárhækkanir, breytingar á rekstrarrömmum, stofnbúnaði deilda, styrkjaramma, meiriháttar viðhald og framkvæmdir.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi breytingar á gjaldskrám fyrir árið 2005:
Sorphreinsigjald verði kr/einingu 10.800.-, sorpurðunargjald verði kr/einingu 5.700.- og hundaleyfisgjöld verði 7.350.-. Leikskólagjöld, mötuneytisgjöld og tónskólagjöld hækki um 4,5% frá 1. janúar 2005.
Bæjarráð samþykkir breytingar á rekstrarrömmum skv. meðfylgjandi minnisblaði, dags. 2/12 2004. Einnig samþykkt að rammi fyrir styrki verði 14,5 mkr. fyrir meiriháttar viðhald 17,0 mkr. og fyrir stofbúnað deilda verði 3,0 mkr. auk 1,0 mkr sem verður óráðstafað. Auk þess eru í rekstrarrömmum deilda um 6,2 mkr. vegna rekstrarleigu á tölvum.
3. Ósk um að malarnáma verði tekin inn í aðalskipulag
· Bréf Ómars Antonssonar dags. 19. nóvember 2004.
Erindinu vísað til starfsmanna tæknideildar vegna aðalskipulagsgerðar og umsagnar í umhverfisnefnd.
4. Jarðhitamál
· Tölvubréf Ómars Bjarka Smárasonar vegna jarðhitaleitar, dags. 24. nóvember2004.
Samþykkt að klára verkið eins og því var lýst þegar samningar við Orkusjóð og Rarik voru gerðir og taka málið fyrir aftur þegar niðurstöður liggja fyrir.
5. Tillögur um breytingar á yfirstjórn sveitarfélagsins
Undir þessum lið var einnig tekin til umfjöllunar fundargerð Menningarmálanefndar Hornafjarðar, 62. fundur, dags. 1. desember 2004.
Bæjarstjóri fór yfir tillögur um breytingarnar sem fram koma á minnisblaði bæjarstjóra og framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs dagsett 26. nóvember 2004 og gerði grein fyrir þeim samtölum og fundum sem hann og framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs hafa átt við ýmsa aðila sem tengjast málinu. Lögð var fram umsögn Menningarmálanefndar og sérálit Þorbjargar Arnórsdóttur sem framkoma í 62. fundargerð Menningarmálanefndar. Sömuleiðis yfirlýsing Gísla Sverris Árnasonar forstöðumanns Menningarmiðstöðvar vegna áðurgreindra tillaga svo og bréf starfsfólks stofnunarinnar um málið.
Kristín lýsti yfir andstöðu við tillöguna og taldi rétt að auglýst yrði staða framkvæmdastjóra Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og lögð yrði niður staða framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs og sá starfsmaður tæki að sér framkvæmdastjórastöðu HSSA.
Með tilliti til aðstæðna, m.a. fjárhagslegra og að þrjú framkvæmdastjórastörf hafa losnað um svipað leyti, samþykkir bæjarráð að haldið verði áfram að vinna úr tillögunum, þær kynntar nefndum og stofnunum bæjarins eins og við verður komið og lagðar endanlega fyrir bæjarráð á næsta fundi.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Bréf Samkeppnisstofnunar vegna málefnis Galdurs ehf.. dags. 18. nóvember 2004.
Til kynningar.
· Bréf SSA til samgönguráðherra vegna endurskoðunar samgönguáætlunar 2005-2008, dags. 21. nóvember 2004.
Til kynningar.
· Tölvubréf Barnamenningarsjóðs dags. 22. nóvember 2004.
Vísað til æskulýðs- og íþróttaráðs, Menningarmiðstöðvar og félagsmálastjóra.
· Bréf Menntamálaráðuneytisins um skipulagningu skólahalds út skólaárið, dags. 22. nóvember 2004.
Til kynningar.
Undir þessum lið greindi Stefán frá umræðum í hópi skólastjórnenda um hvort sveitarfélagið mundi kaupa ákveðna daga af kennurum, svo sem starfs- og foreldradaga, til að nýta til kennslu.
· Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kynningarrits um norræna aðgengissamkeppni dags. 23. nóvember 200.4
Til kynningar.
· Áfangaskýrsla nefndar um flutning verkefna á sviði heilbrigðismála frá ríki til sveitarfélaga.
Vísað til Heilbrigðis- og öldrunarráðs.
· Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, dags. 25. nóvember 2004, vegna umsagnar um framvarp til laga um tekjuskatt og eignarskatt (www.althingi.is/altext/131/s/0400.html).
Til kynningar.
· Ályktun XVIII. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 26. nóvember 2004 og ný lög sambandsins
Til kynningar.
7. Önnur mál
· Bæjarstjóri kynnti drög að samkomulagi um framtíð og varðveislu Akureyjar. Bæjarstjóra heimilað að undirrita fyrirliggjandi samkomulag.
Fundi slitið kl. 18.00


