Fundargerð Bæjarráðs
182. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 19. september 2002, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 77. fundur 10. september 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 38. fundur 9. september 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 31. fundur 9. september 2002.
Fundargerð samþykkt.
2. Tölvuvæðing grunnskóla
Bæjarráð vísar erindinu til skólaskrifstofu og skólanefndar til skoðunar. Bæjarráð telur nauðsyn á bæð þarfa- og kostnaðargreiningu.
3. Innsend erindi og til kynningar
· Sisimiut kommune – vinabæjarsamband – greinargerð Halldóru B. Jónsdóttur dags. 11. sept. 2002
Halldóra sagði frá fundi með fulltrúum Sisimiut. Bæjarráð sammála um að taka þurfi vinabæjarsamstarf í heild til endurskoðunar. Málið verður tekið fyrir síðar.
· Bréf fjárlaganefndar Alþingis vegna fundar um fjárlagaárið 2002
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá fundartíma með nefndinni og yfirliti yfir erindi sem æskilegt er að taka fyrir.
4. Önnur mál
Lengd viðvera
Bæjarráð samþykkir að boðið verði upp á lengda viðveru í grunnskólanum á þessu skólaári og er það í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins. Mikil umræða hefur verið um málið og m.t.t. bókunar í fundargerð skólanefndar frá 3. sept. s.l. samþykkir bæjarráð að fela skólaskrifstofunni að leita hagkvæmra leiða til að koma sem best til móts við þarfir þeirra sem þurfa eða vilja notfæra sér þessa þjónustu. Gert er ráð fyrir að lengd viðvera hefjist 1. október.
Umsókn um viðbótarlán frá Íbúðarlánasjóði
Bæjarráð heimilar að sótt verði um 30 milljónir til viðbótarlána frá Íbúðarlánasjóði 2003. Kostnaður bæjarfélagsins vegna þessarar lántöku getur orðið 1,5 milljón.
Niðurstaða á opnun tilboðs í viðgerð á sundlaug
Eitt tilboð barst frá G. Þorsteinssyni að upphæð kr. 3.138.000,-. Tilboðið er 92,2% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð hafnar tilboðinu. Tæknideild er falið að vinna áfram að málinu.
Staða framkvæmda og viðhalds
Helgi lagði fram og fór yfir yfirlit um stöðu framkvæmda og viðhalds í sveitarfélaginu.
Kristín benti á þörf á endurmati á húsnæði í eigu sveitarfélagsins og skoðun á nýtingu þess.
Beiðni frá Heppuskóla um ráðningu stuðningsfulltrúa.
Bæjarráð vísar erindinu til skólaskrifstofu til umsagnar.
Fundi slitið kl. 12:20
Halldóra B. Jónsdóttir
Elín Magnúsdóttir
Ólafur Sigurðsson
Kristín Gestsdóttir


