Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
162. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 12. mars 2002, kl 08:00.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Egill Jón Kristjánsson, Gísli Sverrir Árnason, Margrét Ingólfsdóttir og Hermann Hansson.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórnar Hornafjarðarhafnar 35. fundur 4. mars 2002.
Gísli Sverrir sagði frá opnum fundi um endurreisn gamla hafnarsvæðisins sem haldinn var 7. mars s.l.
Fundargerð samþykkt.
· Þjónustuhópur aldraðra 8. fundur 6. mars 2002.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga
· Frumvarp til laga um verndun hafs og stranda, 492. mál, bréf dags.27. febrúar 2002.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við frumvarpið.
3. Innsend erindi og til kynningar
· Jarðhitaleit við Skaftafell, bréf Náttúruverndar ríkisins dags. 6. mars. 2002.
Fram kom að þegar hafa verið boraðar 3 tilraunaborholur í Svínafelli og nú er verið að bora í Skaftafelli.
Til kynningar.
4. Önnur mál
· Gísli Sverrir sagði frá því að í dag á afmælisdegi Þórbergs Þórðarsonar verður opnaður nýr vefur um Þórberg. Vefur þessi er unninn af Galdri ehf. í samvinnu við áhugamenn um stofnun Þórbergssafns á Hala. Gísli ræddi einnig um að Leikfélag Hornafjarðar er 40 ára í dag og af því tilefni verður hátíðarsýning í Mánagarði. Bæjarstjóri mun í lok sýningar afhenda afmælisstyrk til Leikfélagsins og færa þeim kveðju og árnaðaróskir bæjarráðs.
· Umsókn um niðurfellingu eða lækkun á fasteignagjöldum vegna sérstakra aðstæðna.
Ásta sagði frá beiðni sem borist hefur um lækkun á fasteignargjöldum vegna sérstakra aðstæðna.
Bæjarráð veitir Ástu heimild til að ganga frá málinu.
· Beiðni hefur borist um fjarveitingu til að ráða stuðningsfulltrúa við Hafnarskóla og að núverandi starf „ritara“ við Heppuskóla verði gert að fullu starfi.
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að skoða málið.
Bæjarstjóri sagði frá kynningarfundi hjá Þróunarstofu Austurlands í dag sem haldinn verður í Nýherjabúðum.
Stefán sagði frá viðræðun við nýja starfsmenn, verktaka á sviði fræðslu- og félagsmála.
Bæjarráð samþykkir að breyta fundartíma bæjarráðs. Fundir hefjast hér eftir kl 8:10.
Fundi slitið kl. 9:00


