Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 291
291. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 291.fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, föstudaginn 6. maí kl. 12:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Félagsmálráð Hornafjarðar 123. fundur 26. apríl 2005. Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 68. fundur 25. apríl 2005.
(Haukur Helgi Þorvaldsson mætti á fundinn undir þessum lið). Björn spurði um heita potta við sundlaug. Kom fram að stefnt væri að skipta um potta í lok maí. Kristín spurði um breytingu varðandi umhirðu valla. Haukur gerði grein fyrir hugmyndum um verkaskiptingu milli sveitarfélagsins og umf. Sindra sem yrði þannig að sveitarfélagið sæi um almenna umhirðu, s.s. áburðargjöf, slátt og að fylgjast með grasvexti en Sindri hins vegar um merkingu og undirbúning fyrir íþróttaviðburði. Bæjarstjóra falið að ganga frá verksamningi við Bjarna Hákonarson í samræmi við umræður á fundinum. Fundargerð samþykkt.
2. Vaxtasamningur
Bæjarstjóri ræddi um fund með Baldri Péturssyni úr iðnaðarráðuneytinu. Þá gerði hann grein fyrir samtölum sínum við fulltrúa SSA og Þróunarstofu Austurlands og fyrirhugðum fundi með fulltrúum þessara aðila eftir helgi.
3. Ósk um uppsetningu upplýsingaskiltis um þjóðgarðinn í Skaftafelli
· Bréf UST/ Ragnars F. Kristjánssonar dags. 23. apríl 2005.
Kom fram að vegagerðin er að vinna tillögu um reitinn við Lónsafleggjara og hyggðist kynna hana fljótlega.
Erindinu vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
4. Ósk um að sveitarfélagið taki þátt í svæðisáætlun fyrir Austurland um meðhöndlun úrgangs
· Bréf Fljótsdalshéraðs, ódagsett.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs og umhverfisnefndar.
5. Ósk eftir umsögn vegna landsskipta, sameiningar og áréttingar á mörkum í landi Bjarnanesi I, Bjarnanesi II og Áss í Sveitarfélaginu Hornafirði
· Bréf landbúnaðarráðuneytisins, dags 27. apríl 2005. Bæjarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við sölu ráðuneytisins á Litlasandi. 6. Lögreglusamþykkt fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð Lagt fram uppkast að lögreglusamþykkt dags. 6. apríl 2005. Töluverður umræður sköpuðust um samþykktina. Bæjarráð vísar samþykktinni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
7. Ósk um að sveitarfélagið greiði hlut sinn í framkvæmdum í Laxárkirkjugarði
· Bréf sóknarnefndar Bjarnanessóknar dags. 2. maí 2005. Vísað til vinnu við endurskoðun á fjárhagsáætlun.
8. Landsmót skólahljómsveita 2006 Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð fagnar áformum um að Landsmót skólahljómsveita verði haldið á Hornafirði og samþykkir að mótshaldarar hafi aðgang að aðstöðu sem sveitarfélagið hefur yfir að ráða, s.s. skólastofnunum, félagsheimilum og fleira.
9. Innsend erindi og til kynningar
· Samgönguráðuneytið, höfnun á styrkveitingu til Jöklaseturs og jöklasýningar, bréf dags. 25. apríl 2005. Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið, varðar framkvæmdir við Hornafjarðarfljót, bréf dags.27. apríl 2005. Til kynningar.
· Samband íslenskra sveitarfélaga v.verðlauna fyrir rafrænnar stjórnsýslu, tölvubréf dags. 28. apríl 2005. Til kynningar.
· Samband íslenskra sveitarfélaga v.ráðstefnu um starfsmannastjórnunar á Norðurlöndum, tölvubréf dags. 28. apríl 2005. Til kynningar.
· Ólafur Gíslason og CO., nýjar slökkvibifreiðar, bréf dags.í apríl 2005. Til kynningar.
· Samgöngunefnd SSA, umsögn um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2005-2008. Til kynningar.
· Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 8. apríl 2005. Til kynningar.
10. Önnur mál
· Bæjarstjóri rædd fyrirhugaðan fund með forstjóra Alcoa.
· Einar spurði um framkvæmdir við fráveitu og hvenær þeim ljúki. Helgi Már gerði grein fyrir að afgreiðsla með dælur í fráveitukerfið hafi dregist. Þá kom fram að verkinu ljúki fyrir lok maí.
· Kristín sagði frá að 600 manns hafi sótt sýningu á Súperstar og að leikstjóri sýningarinnar hafi boðið leikhópnum að sýna verkið 18. og 19. júní í Loftkastalanum í Reykjavík.
Þá kom fram að samhliða því væru hugmyndir um kynningu á viðburðum og öðru sem Hornafjörður hefði upp á að bjóða í Loftkastalanum þessa daga.
Bæjarráð felur starfsmönnum að athuga með þátttöku sveitarfélagsins í þessum viðburði. Fundi slitið kl. 13.45


