Fundargerð bæjarráðs 311
311. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, mánudaginn 8. nóvember 2005, kl. 14:30.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður Halldóra B. Jónsdóttir og Björn Emil Traustason. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 64. fundur 1. nóvember 2005.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um endurútgáfu leyfa til eyðingar vargfugla
· Bréf Hauks Sveinbjörnssonar og Sigurðar Guðnasonar dags. 2. nóvember 2005. Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
3. Undirskrifalisti með áskorun til bæjarstjórnar
· Bréf ódagsett, vegna Lóðar nr. 38 við Hafnarbraut.
Bæjarráð felur starfsmönnum að koma áskoruninni á framfæri við Íslandspóst og felur starfsmönnum að ræða við Íslandspóst um málið.
4. Innsend erindi og til kynningar
· Bréf UST dags. 2. nóvember 2005 vegna Tillaga að starfsleyfi Olíudreifingar. Til kynningar.
· Bréf Nordisk handicaappolitisk Råd dags. ódags. um “Lýðræði fyrir alla“.
Til kynningar.
· Boðsbréf Hagstofu Íslands dags. 31. okt. 2005, vegna kynningar á hagsýslustarfsemi stofnunarinnar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga.
Til kynningar.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 1. nóvember 2005, vegna stofnframlaga til menningarmiðstöðva á Austurlandi.
Til kynningar.
5. Önnur mál
§ Bæjarstjóri tilkynnti að von væri á fulltrúum Búmanna til að ræða við bæjaryfirvöld um samstarf um húsnæðismál.
§ Lögð fram beiðni um launalaust skammtímaleyfi frá Hafdísi S. Roysdóttur í Grunnskólanum Öræfum. Samþykkt.
§ Gerð grein fyrir stöðu háhraðatenginga í dreifbýli og viðræðum við Samgönguráðuneytið og Póst- og fjarskiptastofnun um málið.
Kom fram að umtalsverð fjárhæð hafi verið ákveðin í verkefnið af hálfu ríkisstjórnarinnar og áætlað sé að hefja undirbúning framkvæmda á næstu mánuðum.
Bæjarráð óskar eftir samstarfi við hlutaðeigandi aðila um uppbyggingu háhraðatenginga í dreifbýli í sveitarfélaginu og að leitað verði úrbóta sem fyrst og felur starfsmönnum að fylgja málinu eftir.
Fundi slitið kl. 15.15


