Fundargerð bæjarráðs 323
323. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 9. febrúar 2006, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Björn Emil Traustason og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Guðrún Júlía Jónsdóttir. (Guðrún vék af fundi kl. 10.30).
1. Fundargerðir
- Félagsmálaráð Hornafjarðar 139. fundur 31. janúar 2006. Fundargerð samþykkt.
- Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 65. fundur 31. janúar 2006. Fundargerð samþykkt.
2. Samþykkt Launanefndar sveitarfélaga frá 28. janúar sl.
Lagðir fram útreikningar á kostnaði.
Bæjarráð samþykkir að nýta heimild launanefndar vegna starfsmanna sem taka laun skv. starfsmati og leikskólakennara.
3. Hrollaugsstaðaskóli
Rætt um rekstur og þróun í skólamálum á Hrollaugstöðum. Umræður sköpuðust um framtíð Hrollaugstaðaskóla.
Bæjarráð vísar málinu til skólanefndar og felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs jafnframt að boða fund með starfsmönnum og foreldrum nemenda skólans til að ræða framtíð hans.
4. Norðurljósaverkefnið
Lagt fram minnisblað um norðurljósaverkefni, dags. 6. febrúar 2006. Þar er ferill verkefnisins skráður, framlag sveitarfélagsins og staða verkefnisins. Kom fram að á fundi sem haldinn var á Mývatni, 7. febrúar sl. hafi fulltrúi sveitarfélagsins farið úr verkefnisstjórn og í staðinn hafi Óðinn Eymundsson tekið sæti sem fulltrúi ferðaþjónustuaðila á Hornafirði.
5. Tilnefning í starfshóp um málefni innflytjenda
- Bréf SSA, dags. 28. janúar 2006.
Bæjarráð tilnefnir félagsmálastjóra.
6. Rafræn stjórnsýsla
Lagt fram minnisblað um rafræna stjórnsýslu, dags. 6. febrúar 2006.
Í minnisblaðinu kemur fram að hugmynd sé að innleiða rafrænt skjala- og málakerfi auk þess að senda út fundarboð rafrænt. Ennfremur að gera stjórnsýsluna meira rafræna, t.d. með því að bjóða upp á þann kost að sækja um ýmsa þjónustu í gegnum netið. Bæjarráð samþykkir að innleiða rafræna stjórnsýslu.
7. Innsend erindi og til kynningar
- Félag fagfólks í frítímaþjónustu, bréf dags. 19. janúar 2006, kynning. Vísað til æskulýðs- og tómstundaráð.
- SSA, bréf dags. 30. janúar 2006, ýmis málefni. Til kynningar.
- Landbúnaðarráðuneytið, afrit bréfs til Landverndar dags. 30. janúar s.l. um námuna Friðsæld. Til kynningar.
- Samband íslenskra sveitarfélaga, tölvupóstur dags. 30. janúar s.l. um viðmiðunarreglur vegna leikskóladvalar barna utan lögheimilissveitarfélags. Vísað til skólanefndar.
- Samband íslenskra sveitarfélaga, tölvupóstur dags. 31. janúar s.l. um málefni innflytjenda. Vísað til félagsmálaráðs.
- Reykjavíkurborg, bréf dags. 2. febrúar 2006, um landsfund jafnréttisnefnda sveitarfélaga. Vísað til félagsmálaráðs.
- Ósk um umsögn á drögum að frumvarpi til laga um heilbrigðisþjónustu, drögin má finna á http:www.heilbrigðisráðuneyti.is.
- Guðrún Júlía fór yfir frumvarpið. Vísað til heilbrigðis- og öldrunarráðs.
8. Önnur mál
- Lagður fram tölvupóstur frá Nordjobb á Íslandi þar sem svarað er fyrirspurn starfsmanna um framkvæmd vegna hugsanlegra Nordjobb starfa á Hornafirði, dags. 7. febrúar 2006.
Sveitarfélagið samþykkir að bjóða upp á tvær Nordjobb stöður næsta sumar.
- Lagður fram tölvupóstur frá Geirlaugu Jóhannsdóttur, verkefnisstjóra á Bifröst, vegna námskeiðsins Máttur kvenna, dags. 6. febrúar 2006.
Erindinu hafnað.
- Lagður fram úrskurður frá félagsmálaráðuneytinu, dags. 3. febrúar, vegna ákvörðunar bæjarráðs um að hafna beiðni um að sveitarfélagið greiði kostnað vegna tónlistarnáms við Tónlistarskólann í Reykjavík.
Samkvæmt úrskurðinum er ákvörðun sveitarfélagsins gild.
- Samþykkt að framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs hafi heimild til viðræðna við sálfræðing um áframhaldandi þjónustu.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna að sölu á ærgildum sem tilheyra sveitarfélaginu.
Fundi slitið kl. 11.50


