Fundargerð bæjarráðs 324
324. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 15. febrúar 2006, kl. 12:00. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson og Helgi Már Pálsson,.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd 64. fundur 8. febrúar 2006. Rætt um olíutank á Austurfjörum og ósk um stækkun lóðar á Sandbakka 7. Bæjarráð samþykkir ekki stækkun lóðar að Sandbakka 7.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn 74. fundur 9. janúar 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 75. fundur 8. febrúar 2006. Mikil umræða skapaðist um stofnstyrki til menningarhúsa. Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 55. fundur 6. febrúar 2006. Bæjarráð ítrekar fyrri bókun sína um Green globe 21.
Mikil umræða skapaðist um þjóðgarð.
Fundargerð samþykkt.
2. Umsókn um geymslulóð
· Umsókn Jóns Inga Pálssonar dags. 6. febrúar 2006.
Hafnað.
3. Innsend erindi og til kynningar
· Samband ísl. Sveitarfélaga, tölvubréf dags. 6. febrúar 2006, um málstofu með rannsakendum skólamála. Vísað til skólanefndar.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, tölvubréf dags. 6. febrúar 2006, um ráðstefnu um tækifæri íslenskra sveitarfélaga í alþjóðlegu samstarfi. Til kynningar.
· Landbúnaðarráðuneytið, bréf dags. 6. febrúar 2006, um námuna Friðsæld. Starfsmönnum falið að vinna að málinu.
· Bjarni S. Bjarnason f.h. Jöklajeppa og Íss og ævintýra, bréf dags. 8. febrúar 2006, um endurbætur vegar upp að Jöklaseli.
Samþykkt að áframsenda bréfið til Vegagerðarinnar.
· Sjávarútvegsnefnd Alþingis, bréf dags. 9. febrúar 2006, ósk um umsögn á frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða, 448. mál, um hámark á krókaaflahlutdeild o.fl. Til kynningar.
4. Önnur mál
· Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs umboð til að framlengja starfssamning við skólastjórnendur í Hafnarskóla um eitt ár.
· Rætt um barnakóramót sem fyrirhugað er í apríl á Hornafirði. Bæjarráð staðfestir fyrri bókun sína um málið og felur starfsmönnum að aðstoða við undirbúning.
· Gerð grein fyrir samtali við Gísla Má Vilhjálmsson hóteleiganda um leigugjald fyrir húsnæði í eigu sveitarfélagsins.
· Halldóra ræddi um fuglaflensu og viðbrögð við henni. Hún ítrekaði að mikilvægt væri að fá upplýsingar um áætlun vegna hugsanlegrar flensu á þessu svæði.
Fundi slitið kl. 13.25


