Fundargerð bæjarráðs 335
335. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 4. maí 2006, kl. 8:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerðir
· Skólanefnd Hornafjarðar 81. fundur 27. apríl 2006.
Fyrir lá umsókn Hafnarskóla um að halda áfram með sama skipulag og verið hefur undanfarin tvö ár, þ.e. að ráða tvo aðstoðarkennara og einn stuðningsfulltrúa. Bæjarráð samþykkir umsóknina til eins árs.
Fundargerð samþykkt.
2. Beiðni um skipti úr landi
· Bréf Regulu lögmannsstofu dags. 25. apríl 2006
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við skiptin en bendir á að kynna þurfi landeigendum hugmyndir Vegagerðarinnar um framtíðarþjóðvegastæði á þessum slóðum.
3. Bryggja á Austurfjörum
· Minnisblað AE dags 28. apríl 2006
Lögð fram drög að samningi á milli Hornafjarðarhafnar og Litlahorns ehf. um aðstöðu á Austurfjörum. Bæjarráð heimilar að skrifað verði undir samninginn. Einnig samþykkir bæjarráð að veita Litlahorni ehf. lóð á innanverðum Austurfjörum.
4. Skólamál
· Gerð grein fyrir breytingu á samningi við skólasálfræðing. Bæjarráð samþykkir.
· Fyrir lá ósk um stofnbúnað í handmenntastofu. Samþykkt að taka af óráðstöfuðu.
· Stefán gerði grein fyrir samtali við fulltrúa Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um leiðréttingu á akstursskýrslum frá Sveitarfélaginu Hornafirði vegna aksturs nemenda frá Öræfum að Kirkjubæjarklaustri.
· Fyrir lá umsókn Brynju Kristjánsdóttur um námsleyfi. Samþykkt.
5. Vinnuskóli
Lögð fram drög að reglum, fræðslu og uppbyggingu vinnuskóla. Bæjarráð fagnar framkomnum drögum og felur æskulýðs- og tómstundaráði að vinna áfram í þessum anda.
Rætt um laun ungmenna. Bæjarráð samþykkir að hækka launin um 3% frá árinu áður.
6. Beiðni um umsagnir um þingmál
· Frv. til laga um Atvinnuleysistryggingar, 742. mál, http://www.althingi.is/altext/132/s/1078.html
Til kynningar.
· Frv. til laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 788. mál, http://www.althingi.is/altext/132/s/1194.html
Til kynningar.
· Frv. til laga um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum, 743. mál. http://www.althingi.is/altext/132/s/1079.html
Til kynningar.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Krísuvíkursamtökin,tölvubréf dags. 26. apríl 2006, ósk um styrk v. afmælisútgáfu
Vísað til starfsmanna.
· Þróunarfélag Austurlands, tölvubréf dags. 27. apríl 2006, ráðstefna um nýsköpun og hagnýtingu tengslaneta innan fiskeldis.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, dags. 26. apríl 2006, vegna fullnaðarafgreiðslu ársreikninga sveitarsjóðs.
Til kynningar.
· SÁÁ, ódags., vegna styrkbeiðni í tengslum við álfasölu SÁÁ.
Til kynningar.
8. Önnur mál
· Lagt fram minnisblað um húsnæðismál, dags. 3. maí 2006 um kaupleiguíbúðir. Nokkrar umræður sköpuðust um rekstur kaupleigukerfisins. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og framlögð gögn.
· Kristín gerði flugáætlun til Hornafjarðar að umtalsefni og sagði að flugáætlun stæði uppsetningu viðburða fyrir þrifum, þar sem ekkert flug væri á laugardögum. Kristín taldi þörf á að sveitarfélagið legðist á árarnar með þeim standa fyrir viðburðum um aukið samstarf við flugrekstraraðila um úrbætur á flugáætlun eða viðbótarflug þegar viðburðir eru settir upp á Hornafirði. Samþykkt að taka upp málið á næsta fundi.
· Dreift bréfi frá starfsfólki leikskólanna, dags. 27. apríl 2006, vegna frestunar á ákvarðanatöku um skipulagsbreytingu leikskólanna Lönguhóla og Krakkakots. Tekið fyrir á næsta fundi.
· Rætt um verslunarmál í sveitarfélaginu.
Fundi slitið kl. 9.30


