Fundargerð bæjarráðs 336
336. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 11. maí 2006, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 144. fundur, 2. maí 2006.
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri er boðinn velkominn til starfa.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 78. fundur, 3. maí 2006.
Albert upplýsti fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum hafnarinnar og Siglingastofnunar. Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð, 78. fundur, 3. maí 2006.
Helgi lagði fram drög að teikningum að sundlaug dags. 9. maí til kynningar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda bréf til Alþingis vegna mikils ferðakostnað íþróttafélaga á landsbyggðinni.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 67. fundur, 3. maí 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 61. fundur 26. apríl l2006
Til kynningar.
2. 3ja mánaða staða
Ásta kynnti þriggja mánaða stöðu og er hún í samræmi við fjárhagsáætlun
3. Styrkumsókn frá Ungmennafélaginu Sindra
§ Bréf dags. 3. maí 2006
Bæjaráð samþykkir að veita Ungmennafélaginu Sindra aukið framlag til íþróttavalla og æfingasvæða að upphæð kr. 500.000.- og verður það tekið af óráðstöfuðu.
4. Umsóknir frá Fosshótel Vatnajökli og Jöklaseli um leyfi til áfengisveitinga
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfanna.
5. Bréf frá starfsfólki leikskólanna vegna frestunar á ákvarðanatöku um skipulagsbreytingu leikskólanna Lönguhóla og Krakkakots
Í bréfinu, dags. 27. apríl 2006 er lagt til að hér starfi tveir sjálfstæðir leikskólar fyrir 1 - 6 ára börn.
Greidd voru atkvæði um hvort fara eigi að tillögum leikskólastarfsmanna um tvo aðskilda leikskóla fyrir 1 – 6 ára börn. Atkvæði fóru þannig að Elín samþykkti breytingar á leikskólum en Halldóra Bergljót og Einar voru þeim andvíg. Kristín G. Gestsdóttir (áheyrnarfulltrúi) er samþykk tillögunni.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Íbúar þriggja húsa við Silfurbraut, dags. 7. maí 2006, ósk um framræsingu.
Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 9. mars 2006, vegna varna gegn mengun sjávar
Til kynningar
· Sigrún Árnadóttur, ódags., vegna styrkja til ungmennasamskipta á milli framhaldskóla á Austurlandi til Trier í Þýskalandi.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 14.000.-.
· Svavar G. Svavarsson, dags. 27. apríl, vegna álagningar fasteignagjalda í Landskrá fasteigna.
Til kynningar.
· Dropinn styrktarfélag sykursjúkra barna, ódagsett bréf – ósk um styrk
Bæjarráð hafnar beiðninni.
7. Önnur mál
Fundi slitið kl. 11:00


