Fundargerð bæjarráðs 364
364. fundur
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Reynir bar upp þá tillögu að bréf kennara við grunnskólana á Hornafirði verði tekið fyrir undir liðnum innsend erindi. Samþykkt.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 73. fundur 10. janúar 2007.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagstillögu að Haukafelli og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að vísa aðalskipulagsbreytingu á Víkurbraut 11-13 til bæjarstjórnar.
Hjalti gerði grein fyrir vinnu við aðalskipulagsbreytingu vegna vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót og vinnu að gerð umverfisskýrslu í tengslum við þá breytingu.
Rætt um lóð fyrir Íslandspóst og hugmyndir að staðsetningu.
Umferðamálum, sbr. 1. lið fundargerðar byggingar- og skipulagsnefndar, vísað til vinnufundar í bæjarstjórn.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 157. fundur 9. janúar 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarmál, 77. fundur, 9. janúar 2007.
Árni gerði grein fyrir samræðum við heilbrigðisráðherra sem heimsótti Heilbrigðisstofnun Suðausturlands í sl. viku.
Halldóra óskar eftir að fá í hendur þau drög að þjónustusamningi sem nú liggja fyrir. Sagði hún það sína skoðun að hér eigi að vera að lágmarki þriggja lækna hérað og eðlilegast að stefna að fjórða lækni.
Bæjarráð tekur undir bókun heilbrigðis- og öldrunarráðs og leggur mikla áherslu á að þær athugasemdir sem þar koma fram verði teknar til greina við gerð nýs samnings.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir að Ríkisendurskoðun geri stjórnsýslu- og fjárhagsúttekt á HSSA.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 8. janúar 2007.
Lagt fram minnisblað frá Sigurlaugu Gissurardóttur, formanni umhverfisnefndar, um umverfismál, dags. 14. janúar 2007. Þar er rætt um ýmis mál sem nýr framkvæmdastjóri þarf að vinna að, yfirlit yfir hvernig standa beri að endurskoðun á Staðardagskrá 21 og upplýsingar um GreenGlobe vottunarkerfið.
Rætt um refa- og minkaveiðar.
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um endurskoðun á staðardagskrá 21.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um endurskoðun fjallskila 1. fundur 10. janúar 2007.
Stefnt að því að nefndin hitti bæjarstjórn á fundi í febrúar.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 66. fundur 3. janúar 2007.
Til kynningar
2. Verklagsreglur um tilkynningaskyldu starfsmanna leik- grunn og framhaldsskóla til barnaverndarnefnda
Reglurnar samþykkar samhljóða.
3. 3ja ára áætlun
Ásta fór yfir þriggja ára áætlun útskýrði grunn hennar sem er fjárhagsálætlun 2007. Halldóra spurði um framkvæmdir og skuldir og áætlanir um þær samkvæmt þessari áætlun. Samþykkt að koma þeim upplýsingum til bæjarráðsmanna í tölvupósti. Bæjarráð samþykkir að taka áætlunina aftur fyrir á næsta fundi ráðsins.
4. Álagning fasteignagjalda 2007
Ásta fór yfir málið og kynnti verklagsreglur við innheimtu fasteignagjalda. Halldóra velti upp spurningu af hverju innheimtan skuli færð frá Gjaldheimtu Austurlands til sveitarfélagsins. Einnig spurði hún um stöðu á innheimtu á vegum sveitarfélagsins. Ásta sagði innheimtu almennt ganga vel. Því var og svarað að breytingar á fasteigngjaldakerfinu sem koma frá Fasteignamati ríkisins gerði það að verkum að innheimta fasteignagjalda væri best komin í höndum sveitarfélagsins. Verklagseglum vísað til næsta fundar í bæjarráði.
5. Náttúrustofa Suðausturlands
Rætt um fund sem bæjarráð átti með sveitarstjórn Skaftárhrepps um málið. Hjalti gerð grein fyrir samtölum sínum við Þorvarð Árnason, forstöðuman Háskólasetursins um þetta mál. Samþykkt að Hjalti og Þorvarður fái heimild til þess að ljúka við greinargerð um stofnun náttúrustofu í samvinnu við aðila úr Skaftárhreppi.
6. Stjórn Háskólaseturs á Hornafirði
Þorvarður Árnason, forstöðumaður Háskólasetursins á Hornafirði, mætti á fundinn og fór yfir það helsta sem er á döfinni hjá setrinu. Einnig fór hann yfir uppbyggingu setursins og framtíðarmöguleika. Sagði hann þrjú meginhlutverk setursins vera rannsóknir, menntunarhlutverk og samfélagshlutverk með þátttöku setursins í uppbyggingu blómlegs samfélags. Einnig gerði Þorvarður grein fyrir hvernig stjórn háskólasetursins er nú skipuð og hugmyndir að breytingum á stjórninni. Bæjarráð er fyrir sitt leyti samþykkt að stjórnin verði þannig uppbyggð að þrír komi frá Háskóla Íslands, einn frá Sveitarfélaginu Hornafirði og einn frá Skaftárhreppi. Bæjarráð tilnefnir Stefán Ólafsson sem fulltrúa sveitarfélagsins í stjórnina.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 22. des. 2006, breytingar á grunnskólalögum nr. 66/1995 og endurskoðaður almennur hluti aðalnámskrár grunnskóla frá 1999.
Vísað til skólanefndar.
· Félagsmálaráðuneytið bréf dags. 29. desember 2006, uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 2006.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið bréf dags. 3. janúar 2007, varðar úthlutun á framlagi til sveitarfélaga vegna nýbúafræðslu.
Til kynningar.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 20. des. 2006, verklagsreglur um tilkynningarskyldu starfsmanna leik- grunn- og framhaldsskóla til barnaverndarnefnda.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið bréf dags.3. janúar 2007, úthlutun framlangs vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2007.
Til kynningar.
· SSA, tölvubréf dags. 5. janúar 2007, um vaxtarsamning Austurlands.
Til kynningar.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 8. janúar 2007 um breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins Hornafjaðrar 1998-2018, grjótnám vestan Falljökulskvíslar.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Þroskahjálp, bréf dags. 9. janúar 2007, um kostnað á viðhaldi á sambýlum.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Bréf kennara við grunnskóla á Hornafirði, dagsett 2. nóvember 2006.
Sbr. dagsetningu hefur dregist að taka þetta bréf fyrir, það misfarist með einhverjum hætti.
Til kynningar.
8. Önnur mál
- Bæjarráð fagnar því að óvissu um verslunarmál er nú aflétt. Enn fremur fagnar bæjarráð þeirri ákvörðun stjórnenda Samkaupa að setja upp Nettó verslun í Miðbæ.
- Halldóra benti á að gögn sem send eru í tölvupósti til aðalmanna í nefndum á milli funda verði einnig send á varamenn nefnda.
Fundi slitið kl. 12:30


