Fundargerð bæjarráðs 370
370. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 6. mars 2007 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson, Árni Þorvaldsson, Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Áður en gengið var til dagskrár var samþykkt að taka fyrir á fundinum 32. fundargerð nefndar um íþróttamannvirki, send út í tölvupósti.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, dags. 27. febrúar 2007, 160. fundur.
Fundargerð samþykkt
· Nefnd um endurskoðun fjallskila, dags. 27. febrúar 207, 4. fundur.
Hjalti greindi frá störfum nefndarinnar, svo sem upplýsingaleit hjá öðrum sveitarfélögum, áliti lögfræðinga á einstökum atriðum o.fl.
Fundargerð samþykkt
· Nefnd um íþróttamannvirki, dags. 1. mars 2007, 32.fundur
Bæjarráð sammála um að bjóða út jarðvegsskipti undir sundlaugarmannvirki. Hákon nefndi ýmis atriði sem hafa þarf í huga áður framkvæmdir hefjast, svo sem girðingar umhverfis vinnusvæði, dælingu vatns úr holu, eftirlitsmann með verkinu o. fl. (Hákon Valdimarsson kom inn á fundinn.)
Fundargerð samþykkt
2. Stefnumótun í menningar- og safnamálum Hornafjarðar 2007-2017
· Bréf menningarmálanefndar, dags. 14. febrúar 2007
· Stefnumótun í menningar- og safnamálum Hornafjarðar 2007-2017 samþykkt af menningarmálanefnd 14. febrúar 2007.
(Björg Erlingsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið) Björg fór yfir vinnu að stefnumótun í menningar- og safnamálum, útskýrði einstaka þætti hennar og svaraði fyrirspurnum. Bæjarráð þakkar menningarmálanefnd fyrir góða vinnu við stefnumótunina. Bæjarráð samþykkir að vísa stefnumótun í menningar- og safnamálum til vinnufundar í bæjarstjórn.
3. Mánavöllur – kynnt á fundinum
(Hjalti vék af fundi undir þessum dagskrárlið)
Farið yfir fyrirliggjandi gögn sem varða málið. Samþykkt að senda lögfræðingi sveitarfélagsins gögnin og fá hans álit þeim.
4. 3ja ára áætlun
Rekstraráætlun 2008-2010 er á föstu verðlagi og allar upphæðir miðast við fjárhagsáætlun 2007. Gert er ráð fyrir varanlegum fjárfestingum að upphæð 439,0 m.kr., á árunum 2008 til 2010.
Áætlunin gerir ráð fyrir að aðalsjóður framkvæmi fyrir 340 m.kr. og taki langtímalán að upphæð 290,0 m.kr. á móti eru afborganir langtímalána 292,0 m.kr. Langtímalán aðalsjóðs lækka því á tímabilinu um 2,0 m.kr.
Framkvæmdir á vegum hafnarsjóðs eru 40,0 m.kr.,ný langtímalán að upphæð 37,0 m.kr. á móti afborgun langtímalána að upphæð 37,8 m.kr. Langtímalán hafnarsjóðs hækka því á tímabilinu um 0,8 m.kr. Samþykkt að vísa 3ja ára áætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn.
5. Umsókn um byggingarlóðir á Dalbraut 2a, 2b og 2c
Bæjarráð samþykkir að úthluta umsækjanda ofangreindum lóðum. (Hákon vék af fundi)
6. Umhverfismál – kynnt á fundinum
Haukur fór yfir gögn, dags. 01.03. 2007. Í gögnunum er farið yfir ýmsa möguleika á aukinni flokkun sorps, kostnað við sorpurðun og hagræðingu samfara aukinni flokkun. Einnig farið yfir hugmyndir að grenndargámastöð við Sindrahúsið og nýjan samning vegna urðunar sorps í Lóni. Bæjarráð lýsir yfir ánægju með tillögurnar en settar voru spurningar við einstaka þætti. Bæjarráð samþykkir að unnið verði áfram að útfærslu fram kominna hugmynda í samræmi við umræður á fundinum. Samþykkt að gengið verði til samninga við móttökuaðila.
7. Umsögn um leyfi til reksturs gistiskála
Bæjarráð samþykkir umsókn um rekstur gistiskála í landi Bölta, Skaftafelli.
8. Innsend erindi og tilkynningar
Engin hafa borist.
9. Önnur mál
· Skólamáltíðir í leik- og grunnskólum. Afhent voru gögn sem sýna þróun verðs á skólamáltíðum í leik- og grunnskólum árin 2005 – 2007. Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að vinna að tillögum um matarverð til nemenda í sambandi við breytingar á virðisaukaskatti á matvæli. Einnig samþykkt að skoða verð á mat framleiddum á HSSA.
Fundi slitið kl. 12:10


