Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 372
372. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 20. mars 2007 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson, Árni Þorvaldsson, Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 75. fundur 14. mars 2007
Fram kom að óskað hafi verið eftir umsögn Umhverfisstofnunar vegna starfsmanna- og gestahúss í Óslandi þar sem þetta er á þeim hluta Óslandsins sem fellur undir friðland á svæðinu.
Undir þessum dagskrárlið greindi Hjalti frá hugmyndum um lóðir á Leirusvæðinu frá Ullu Pedersen.
Fundargerð samþykkt
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 161. fundur 13. mars 2007.
Fundargerð samþykkt
· Nefnd um íþróttamannvirki 33. fundur 14. mars 2007.
Rætt um girðingu um íþróttasvæðið og nauðsyn hennar bæði til að stýra gangandi umferð og útiloka umferð ökutækja annarra en þeirra sem erindi eiga inn á svæðið.
Undir þessum lið voru tekin til umræðu og afgreiðslu tilboð í jarðvegsskipti við sundlaugarmannvirki. Þrjú tilboð bárust: Jarðverk Hornafirði ehf. bauð kr. 11.000.000.-, Ólafur Halldórsson bauð kr. 8.250.000.- og Rósaberg ehf. bauð kr. 7.120.000.- Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Rósaberg ehf.
Fundargerð samþykkt
2. Allt hefur áhrif einkum við sjálf - samstarfsverkefni sveitarfélagsins og Lýðheilsustöðvar
Hulda Laxdal Hauksdóttir mætti á fundinn og gerði grein fyrir afrakstri af vinnu starfshópsins sem skilað hefur „Hugmyndabanka” um málefnið fyrir sveitarfélagið. Nokkur umræða skapaðist um hver bera muni ábyrgð á framkvæmd verkefnisins.
Bæjarráð fagnar framkomnum hugmyndabanka starfshópsins og telur brýnt að sveitarfélagið auki áherslur sínar um bætta lýðheilsu í sveitarfélaginu. Bæjarráð hvetur framkvæmdastjóra og forstöðumenn stofnana að kynna sér vandlega hugmyndabanka hópsins og innleiða áherslur í starf stofnana sem bætt geta almennt heilsu íbúanna. Enn fremur vísar bæjarráð hugmyndunum til skólanefndar, heilbrigðis- og öldrunarráðs, æskulýðs- og tómstundaráðs og menningarmálanefndar til umfjöllunar.
3. Náttúrustofa á Suðausturlandi - gögn áður send
Hjalti gerði grein fyrir fundi sem hann átti með þremur forstöðumönnum náttúrustofa ásamt Rögnvaldi Ólafssyni, stjórnarformanni Háskólasetursins á Höfn. Náið samstarf hefur verið haft við oddvita Skaftárhrepps um málið.
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að ganga til samninga um stofnun náttúrustofu í samræmi við framlögð gögn og umræður á fundinum.
4. Samningur við Gáma- og tækjaleiguna vegna dýpkunar í höfninni – gögn send í tölvupósti á mánudagskvöld
Bæjarráð tekur undir bókun Hafnarstjórnar frá 90. fundi stjórnarinnar þann 19. mars um að ganga til samninga við Gáma- og tækjaleiguna. Halldóra sagði að þar sem nú þegar væri búið að vinna allt að helmingi þessa samnings væri ekki um annað að ræða en að samþykkja hann.
5. Mánavellir
Sigríður Kristinsdóttir lögfræðingur Regula kom á fundinn og fór yfir fyrirliggjandi tillögur sem lúta að málinu. Annars vegar er um að ræða eign á landi því sem íþróttavellir við Mánagarð standa á og hins vegar eign á sjálfum íþróttavöllunum (mannvirkjunum). (Hjalti vék af fundinum undir þessum dagskrárlið eftir yfirferð Sigríðar). Bæjarráð samþykkir að fela framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs og Sigríði Kristinsdóttur lögfræðing Regula að ræða málið við stjórn Umf. Mána. Málið verði tekið fyrir aftur á næsta bæjarráðsfundi.
6. Drög að afnotasamningi vegna fyrirhugaðrar ferðaþjónustu á Höfn
(Sigríður Kristinsdóttir sat einnig fundinn undir þessum lið.) Hjalti fór yfir samninginn og gerði grein fyrir sínum athugasemdum. Einnig komu athugasemdir frá bæjarráðsmönnum og Sigríði um einstaka liði samningsins svo og um öryggi þeirra sem þarna munu vinna og ferðast. Að öðru leyti fagnar bæjarráð áformum um fyrirhugaða starfsemi. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við samningsaðila í samræmi við umræður á fundinum.
7. Innsend erindi og tilkynningar
· Dóms- og kirkjumálaráðuneytið vegna staðsetningu þyrlna, dags. 12. mars 2007.
Í bréfi ráðuneytisins er greint frá því að erindi sveitarfélagsins hafi verið framsent til Landhelgisgæslu Íslands.
· Sýslumaðurinn á Höfn, dags. 12. mars 2007, vegna landskipta á landgræðslusvæðinu í Skógey.
Til kynningar.
8. Önnur mál
· Rætt um vinnufund í bæjarstjórn þann 31. mars nk. og efni sem taka á til umræðu á fundinum.
· Halldóra gerði að umtalsefni skoðanakönnun vegna vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót. Nokkur umræða skapaðist um málið, svo sem um aðferðir o.fl.
Fundi slitið kl. 13:00


