Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 377
377. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss fimmtudaginn 3. maí 2007 kl. 13:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Halldóra Bergljót Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 163. fundur 24. apríl 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 80. fundur 18. apríl 2007.
Vegna fyrirspurnar frá Halldóru um ársreikninga Heilbrigðisstofnunar var greint frá því að hann verði tekinn fyrir í heilbrigðis- og öldrunarráði þann 7. maí nk. Árni gerði að umtalsefni samræmingu á gjaldskrá mötuneyta sveitarfélagsins, sbr. fundargerð nefndarinnar og að ákvarðanir um gjaldskrár allra mötuneyta verði teknar fyrir í bæjarráði. Hjalti ræddi aðgengi að hjúkrunarheimilinu o.fl. stofnunum, sbr. 5. lið fundargerðar.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 35. fundur 18. apríl 2007.
Rætt um skráningu gjafa sem berast gjafa- og minningarsjóðnum svo og gjafir sem berast beint til HSSA.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 75. fundur 26. apríl 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 90. fundur 11. apríl 2007.
Hjalti greindi frá fundi sínum og forstöðumanns Menningarstofnunar með Gísla Sverri Árnasyni um verkefnið Hafnarvík – Heppa. Greindi hann frá því að til væri fé til að vinna ákv. undirbúningsvinnu vegna verkefnisins. Bæjarráð samþykkir að leitað verði til Gísla Sverris með þá vinnu. Einnig greindi hann frá fyrirhuguðum fundi með útgáfufyrirtæki sem sýnt hefur áhuga á að gefa út bók um Svavar Guðnason. Rætt um undirbúning fyrir 110 ára afmælið og atvinnulífssýningu í sumar.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjaraðar 92. fundur 25. apríl 2007.
Bæjarráð er jákvætt fyrir því að næsta haust verði farið af stað með SOS-námskeið, sbr. 2. lið fundargerðar skólanefndar. Endanleg aðkoma sveitarfélagsins ræðst af framlagi starfsmenntasjóða til sinna félagsmanna.
Rætt um kennaraskort, sbr. 5. lið á dagskrá nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um endurskoðun fjallskila 6. fundur 16. apríl 2007.
Hjalti greindi frá störfum fjallskilanefndar. Fundargerð samþykkt.
· Verkfundur vegna v. íþróttasvæðis og sundlaugar. 23. apríl 2007.
Rætt um uppgröft og hvort dýpt grunnsins sé í samræmi við áætlanir.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn SSA 22. janúar og 5. mars 2007.
Rætt um lög um fjármál stjórnmálasamtaka, sbr. 5. lið á dagskrá stjórnar SSA þann 22. janúar. Starfsmönnum falið að koma með tillögur að útfærslu á stuðningi við stjórnmálasamtök.
· Samgöngunefnd SSA 22. febrúar 2007.
Halldóra spurðist fyrir um umsögn til samgöngunefndar Alþingis vegna samgönguáætlunar.
· Orku- og stóriðjunefnd SSA 30. janúar 2007. Til kynningar
2. Umhverfisskýrsla vegna Fljótavegar – send í tölvupósti
Hjalti greindi frá vinnu við matslýsingu vegna umhverfismats áætlunar um veglagningu yfir Hornafjarðarfljót. Farið yfir ýmsar ábendingar sem fram komu við matslýsinguna.
3. Ársreikningar – síðari umræða.
Halldóra óskar eftir minnisblaði vegna rekstrar Heilbrigðisstofnunar þar sem fram komi hvaða áhrif breytingar sem gerðar voru á stofnuninni á sl. ári hafi haft á rekstur hennar.
4. 3 mánaða rekstraryfirlit sveitarsjóðs
Kynnt var þriggja mánaða rekstraryfirlit og kemur þar fram að rekstur er jákvæður um 42,4 m.kr. Gjöldin eru í samræmi við fjárhagsáætlun en tekjur eru hærri eða um 28% af fjárhagsáætlun. Einnig kemur fram að handbært fé aðalsjóðs í ársbyrjun er um 184 m.kr. hærra en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir og þarf að taka tillit til þess í endurskoðaðri fjárhagsáætlun.
5. Tilnefning í svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs
Bæjarráð tilnefnir eftirfarandi í svæðisráð fyrir rekstrarsvæði 3 í Vatnajökulsþjóðgarði:
Hjalti Þór Vignisson, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson.
6. Ósk um tilnefningu fulltrúa á aðalfund Menningarráðs Austurlands 24. maí
Hermann Hansson, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björk Pálsdóttir.
7. Mótókrossbraut
Farið yfir minnisblað, dags. 26. apríl 2007. Fram kom frá Halldóru ábending að skilgreina þurfi svæði (lóð) brautarinnar. Var undir það tekið af öðrum nefndarmönnum. Bæjarráð samþykkir að veita kr. 500.000.- til uppbyggingar mótókrossbrautar. Féð verði tekið af fjármunum þeim sem ætlaðir eru til ungmennalandsmótsins sem haldið verður á Hornafirði í sumar. Samþykkt með skilyrði um að settar verði reglur um svæðið í samvinnu við bæjarfélagið, brautin verði vandlega afmörkuð á korti og að sérstaklega verði gætt að gangandi umferð um svæðið.
8. Breyting á opnunartíma skrifstofu sveitarfélagsins
Bæjarráð samþykkir breyttan opnunartíma á skrifstofu sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27. Virka daga verði skrifstofan opin frá 9:00 – 12:00 og 12:45 – 15:30. Símaskiptiborð í afgreiðslu verði opið frá kl. 9:00 – 12:00 og 13:00 – 15:00. Bent er á að ná má í starfsmenn utan opnunartíma skiptiborðs í gegnum bein númer.
9. Sorpmál – kynning á fundinum
Haukur Ingi greindi frá áhyggjum sínum af urðunarmálum. Þannig hafi kostnaður við hana hækkað u.þ.b. 35% á milli áranna 2005 og 2006 en engin magnaukning orðið. Þá sé að hans mati slæm nýting á urðunarsvæðinu. Samþykkt að stefna að útboði á vinnu við umsjón og frágang sorps á urðunarsvæðinu. Vísað til starfsmanna að koma með útfærslu og tillögur um málið í samræmi við umræður á fundinum.
10. Innsend erindi og tilkynningar
· Lánasjóður sveitarfélaga, tölvubréf dags. 16. apríl 2007, niðurfelling lántökugjalda. Til Kynningar
· Jöfnunarsjóður, bréf dags 18. apríl 2007 um kennsluráðgjafa fyrir blind og sjónskert börn.
Vísað til starfsmanna að upplýsa skólana um þessa ráðstöfun.
· Regula lögmannsstofa, bréf dags. 20. apríl 2007, tilkynnin um arf til sveitarfélagsins.
Í bréfi frá Regula er tilkynnt að Einar Hálfdánarson, sem lést þann 15. nóvember 2006, hafi erft Sveitarfélagið Hornafjörð að skógarreitnum í Miðfjárhúshól á Höfn.
· SSA, tölvubréf dags. 24. apríl 2007, tilkynning um námskeið. Til kynningar
· SSA, tölvubréf dags. 25. apríl 2007, tilkynning um aðalfund SSA. Til kynningar
· Vegagerðin,bréf dags. 24. apríl 2007, svar vegna vegaslóða í Vatnajökulsþjóðgarði.
Vísað til starfsmanna.
11. Önnur mál
Engin önnur mál.
Fundi slitið kl. 15:55


