Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 378
378. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 8. maí 2007 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 91. fundur 27. apríl 2007.
Fjallað um tilboð í viðgerð á aðalvélum í Birni lóðs og hvað hafi ráðið vali á tilboði því sem tekið var. Greint frá athugasemdum sem fram hafa komið við val á tilboði og jafnframt að hafnarstjórn muni fjalla um það mál á fundi í dag.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs og tómstundaráð Hornafjarðar 88. fundur 30. apríl 2007.
Björn Ingi sagði sundlaugina opna í of stuttan tíma yfir sumartímann, sérstaklega gerði hann athugasemd við opnunartíma um helgar þar sem gert er ráð fyrir að opið verði til 18:00 um helgar. Reynir tók undir þessi orð. Samþykkt að vísa opnunartíma sundlaugar til starfsmanna þar sem kostnaður o.fl. fleiri þættir verði skoðaðir. Fundargerð samþykkt.
· Nefndum íþróttamannvirki 34. fundur 2007.
Undir þessum lið voru afhent minnisblöð frá hönnuðum og arkitekt sundlaugar þar sem greint er tilboð það sem barst í sundlaugina. Samþykkt að tilboð í sundlaug verði tekið til afgreiðslu á næsta fundi bæjarráðs. Rætt um drátt sem hefur orðið á því að aka sandlagi á völlinn. Einnig fjallað um efnisnámur sem nýttar eru vegna framkvæmda við íþróttamannvirki.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um endurskoðun fjallskila 7. fundur 2. maí 2007.
Fundargerð samþykkt.
2. Húsnæði Nesjaskóla
Lagt fram minnisblað starfsmanna dags. 27 apríl 2006, tillögur um nýtingu á húsnæði Nesjaskóla. Tillögurnar lúta að því að húseignir Nesjaskóla verði auglýstar til sölu, fyrir utan kennsluhúsnæði. Bæjarráð felur starfsmönnum að halda áfram undirbúningi að sölu á Nesjaskóla, að hluta eða öllu leyti, í samvinnu við ríkið. Bæjarráð óskar eftir að fá gögn um sölumat, eignaskiptingu á milli ríkis og sveitarfélags og þróun nemendafjölda á næstu árum. Bæjarráð leggur áherslu á að ekki er stefnt að breytingu á skólahaldi í Nesjum með þessum hugmyndum.
3. Drög að fjallskilasamþykkt
Hjalti fór yfir stöðuna og greindi rá samskiptum sínum við landeigendur sem hlut eiga að máli.
4. Drög að samþykkt um búfjárhald í sveitarfélaginu
Farið yfir drög að samþykkt um búfjárhald utan lögbýla, dags. 21. febrúar 2007. Samþykkt að vísa drögunum til atvinnumálanefndar.
5. Drög að samningi um friðun vegsvæðis fyrir ágangi búfjár í Sveitarfélaginu Hornafirði
Fyrirliggjandi drög að samningi á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélagsins rædd. Samþykkt að vísa drögunum til atvinnumálanefndar.
6. Meiriháttar viðhald á Silfurbraut 2-4
Farið yfir minnisblað frá Ástu H. Guðmundsdóttur, dags. 27. apríl 2007. Annars vegar er um að ræða yfirlit yfir sölu eigna í kaupleigukerfinu og hins vegar meiriháttar viðhald á Silfurbraut 2 – 4. Björn Imsland kom inn á fundinn og greindi frá ástandi umræddrar eignar.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í meiriháttar viðhald á Silfurbraut 2 – 4. Árið 2007 verði farið í að skipta um glugga í húsinu.
7. Vínveitingaleyfisumsóknir
· Helga Erlendsdóttir v. Árnaness gistihús, umsókn dags. 26. mars 2007.
· Renato Grűnenfelder v. Fosshótels Vatnajökull, umsókn dags. 5. apríl 2007.
· Einar B. Einarsson v. Jökulsárlóns, umsókn dags. 27. apríl 2007.
Umbeðin vínveitingaleyfi samþykkt.
8. Endurskoðunarskýrsla 2006
Ásta greindi frá því að endurskoðandi muni koma hingað á næstunni til að aðstoða við að koma á vinnuferlum við innra eftirlit o.fl. sem þegar er farið að vinna eftir að nokkru leyti.
9. Innsend erindi
· Ósk um styrk, ódagsett bréf frá Dýnamó, Höfn.
Bæjarráð bendir á að óskir um styrkveitingar til íþrótta- og menningarstarfsemi fyrir árið 2007 voru auglýstar við gerð fjárhagsáætlunar sl. haust og þær afgreiddar. Umsókn synjað og bent á að senda inn umsókn þegar styrkveitingar verða auglýstar.
· Landskerfi bókasafna, bréf dags. 27. apríl 2007, aðalfundarboð.
Til kynningar.
10. Önnur mál
Rætt um ástand Garðsbrúnar 2. Fram kom að umrætt hús, viðhald þess og annað, er á höndum heilbrigðisráðuneytisins. Óskað er eftir að ráðuneytið auglýsi húsið til sölu.
Fundi slitið kl. 12:10


