Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 381
381. fundur
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 165. fundur 22. maí 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 93. fundur 23. maí 2007.
Bæjarráð samþykkir að fjórum kennslustundum verði bætt við í Grunnskólanum í Hofgarði vegna kennslu í 8. bekk við skólann. Rætt var um nafn og merki grunnskóla og merkingu á skólabílum. Einnig var rætt um gjaldskrá lengdrar viðveru. Stafsmanni falið að vinna að málinu.
Fundargerð samþykkt.
2. Ársfjórðungsuppgjör bæjarsjóðs og HSSA
Rekstrarstaða A-hluta sveitarsjóðs skilar um 92,6 m.kr. gjöldin eru í um 36% af fjárhagsáætlun en tekjur um 41 %. Handbært fé er um 357 m.kr. Rekstrarstaða A og B hluta eru um 145,9 m.kr. í afgang. Staða HSSA er um 4,4 m.kr. í afgang er framlög eru um 33% af fjárhagsáætlun en gjöld 31,4%.
3. a) Ósk um aukafjárveitingu til kaupa á fartölvum fyrir grunnskóla
· Bréf Guðmundar Inga Sigbjörnssonar skólastjóra Heppuskóla dags. 25. apríl 2007.
b) Ósk um símkerfi fyrir sameinaðan grunnskóla
Undir þessum lið var einnig tekið fyrir bréf, dags. 24. maí 2007, frá Pálínu Þorsteinsdóttur, skólastjóra Grunnskólans í Hofgarði þar sem óskað er eftir að starfsmenn skólans fái fartölvur til samræmis við aðra kennara sveitarfélagsins. Eftir yfirferð yfir þessi mál, símkerfi og tölvur, var samþykkt að ljúka ekki afgreiðslu á þessum fundi.
4. Innsend erindi
· Menntamálaráðuneytið, bréf 16. maí 2007, ný æskulýðslög.
Vísað til æskulýðs- og tómstundaráðs
· Alta, bréf dags. 18. maí 2007, kynning á vinnu við aðalskipulag fyrir Fljótsdalshérað.
Í bréfinu er óskað eftir að sveitarfélagið tilnefni tengilið vegna vinnu fyrirtækisins Alta við aðalskipulag Fljótsdalshéraðs. Bæjarráð leggur til að Haukur Ingi Einarsson verði tengiliður við Alta.
· SSA, bréf dags. 21. maí 2007, skipun í verkefnisstjórn „Svona gerum við“.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Jafnréttisstofa, bréf dags. 15. maí 2007, landsfundur jafnréttisnefnda.
Vísað til félagsmálastjóra.
· Skiplagsstofnun, bréf dags. 21. maí 2007, deiliskipulag frístundabyggðar í Haukafelli.
Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hafi yfirfarið gögn og geri ekki athugasemdir að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.
· Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 18. maí 2007, skipun í Hreindýraráð.
Í bréfinu er óskað eftir að Samband sveitarfélaga á Austurland beiti sér fyrir sameiginlegri tilnefningu sveitarfélaganna á fulltrúa þeirra í hreindýraráð.
· Forsætisráðuneytið, tölvubréf dags. 23. maí 2007, Þjónustuveitan Ísland.is.
Vísað til starfsmanna.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 16. maí 2007, ók um umsögn um tillögu að frumvarpi til laga um réttindi og skyldur eigenda og leigjenda lóða í skipulagðri frístundabyggð.
Slóð http://www.felagsmalaraduneyti.is/umraedan/umsogn/nr/3272
Vísað til starfsmanna.
5. Önnur mál
- Haukur Ingi greindi frá stöðunni við framkvæmdir á íþróttavelli. Einnig greindi hann frá ferð til Slóveníu þar sem skoðuð voru “mjúkhús” til að byggja yfir íþróttavelli o. fl.
- Björn Ingi spurði um samninga vegna byggingu á sundlaug , samning um heilbrigðisþjónustu og skýrslu ríkisendurskoðunar á rekstri HSSA. Upplýst var að skýrslan kæmi út um miðja júlí og samningur við ríkið um heilbrigðisþjónustu væri í yfirferð hjá viðkomandi ráðuneytum. Haukur Ingi upplýsti um gang mála varðandi tilboð í sundlaug. Málið verður tekið fyrir á næsta bæjarráðsfundi.
Fundi slitið kl. 12:25


