Fundargerð bæjarráðs 383
383. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 19. júní í 2007 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Skólanefnd Hornafjarðar, 94. fundur 13. júní 2007.
Fram kom að skólanefnd samþykkti nafnið Grunnskóli Hornafjarðar á sameinuðum grunnskóla. Rætt var um niðurstöðu samræmdra prófa.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 89. fundur 4. júní 2007.
Haukur Ingi greindi frá stöðu mála varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og að verktaki hafi hafnað gagntilboði bæjarráðs. Þá var einnig rætt um uppbyggingu knattspyrnuhúss. Bæjarráð óskar eftir því við nefnd um íþróttamannvirki að hún komi saman og fundi um þessi mál.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um lóð fyrir bílastæði við mótorkrossbraut
· Bréf Gunnars P. Péturssonar 31. maí 2007.
Bæjarráð hafnar beiðninni. Bæjarráð samþykkir að bílastæði í tengslum við unglingalandsmótið verði á brennusvæðinu við Hafnarbraut.
Starfsmönnum falið að gera samning við Akstursíþróttafélag Austur-Skaftafellssýslu um svæðið við Drápskletta í samræmi við umræður á fundinum.
3. Skipulag Landgræðsluskógasvæðisins Drápsklettum Höfn
· Bréf Skógræktarfélags A-Skaftafellssýslu 31. maí 2007.
Bæjarráð beinir því til byggingar og skipulagsnefndar að farið verði skipulagsvinnu í þéttbýlinu.
4. Breytingar á aðalskipulagi
· Umhverfisráðuneytið bréf dags. 31. maí 2007, Brekka í Lóni.
· Umhverfisráðuneytið bréf dags. 31. maí , lagning ljósleiðara.
Málinu vísað til starfsmanna.
5. Ósk um styrk
· Bréf Golfklúbbs Hornafjarðar, dags. 7. júní 2007.
Vísað til fjárhagsætlunar árið 2008.
6. Símakerfi grunnskóla
Bæjarráð samþykkir að kaupa IP símstöð á kaupleigu. Kostnaður ársins 2007 er áætlaður um 700.000.- Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2007.
7. Miðtún 7 endurmat fasteignarinnar
Bæjarráð samþykkir endurmat Fasteignamats ríkisins.
8. Ósk um umsagnir á útgáfu veitinga- og gistileyfa
· Bréf sýslumannsins á Eskifirði v.útgáfu á endurnýjun leyfis fyrir gistiskála/veitingahús í Jöklaseli dags. 11. júní 2007.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
· Bréf sýslumannsins á Eskifirði v.útgáfu á leyfi fyrir veitingahúsinu Humarhöfninni, Hafnarbraut 4 dags. 11. júní 2007.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir
9. Safnvegaáætlun 2007
Bæjarráð telur að stefna beri að því að leggja bundið slitlag á safnvegi. Bæjarráð leggur áherslu á að vegurinn að Jöklaseli verði lagaður og byggður upp. Ennfremur leggur bæjarráð áherslu á að ákveðnir vegslóðar í sveitarfélaginu verði byggðir upp sem þjóðgarðavegir, sbr. fyrri bókanir bæjarráðs.
10. Innsend erindi
· Áhugafólk um útivist og íbúar Hafnar, undirskriftarlisti og bréf dags. 31. maí 2007, staðsetning mótorkrossbrautar við Drápskletta.
Hjalti gerði grein fyrir fundi sem hann átti með áhugafólki um útivist á Höfn.
· Hrafnkell Ingólfsson, bréf dags. 31. maí 2007, ósk um lagfæringu úrbætur á umhverfi við Hafnarbúð, Mönguhelli og víðar.
Bæjarráð vísar fyrsta lið bréfsins til starfsmanna, öðrum lið til umhverfisnefndar og þriðja lið til byggingar og skipulagsnefndar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 31. maí 2007, ný lög um gatnagerðargjald sem taka gildi 1. júlí n.k..
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 4. júní 2007, aðgangur að Grósku upplýsingakerfi félagsmálaráðuneytisins
Til kynningar
· Forsætisráðuneytið, bréf dags. 5. júní 2007, jafnréttisgátlistinn
Vísað til félagsmálaráðs.
· Brunabót, bréf dags. 6. júní , styrktarsjóður EBÍ árið 2007.
Vísað til Menningarmiðstöðvar
· Brunabót, bréf dags. 12. júní , tilkynning um aðalfund.
Til kynningar
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvupóstur dags. 13. júní 2007, um nágrannavörslu.
Til kynningar
· AFL – Starfsgreinafélag tölvupóstur 13. júní 200, um verkefnið Starfsendurhæfingu Austurlands.
Jón Kristján Rögnvaldsson verður tengiliður sveitarfélagsins við verkefnið
· SSA, bréf dags. 5. júní 2007, tilnefningar í Hreindýraráð.
Til kynningar.
11. Önnur mál
· Ásta kynnti samning um sölu á Garðsbrún 2. Bæjarráð samþykkir söluna fyrir sitt leyti.
Fundi slitið kl. 11.30


