Fundargerð bæjarráðs 391
391. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í ráðhúsi mánudaginn 10. september 2007 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Stefán Ólafsson.
Árni setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar, 92. fundur 5. september 2007.
Elín ræddi hugmyndir sem settar voru fram um smiðju fyrir ungmenni á aldrinum 18 – 26 ára (sbr. fundargerð), taldi hún þetta góða hugmynd. Var undir það tekið
Halldóra spurði hvar menn hygðust hafa þá smiðju. Einnig spurðist hún fyrir um leigu á Pakkhúsi, stöðuna varðandi Akurey og kvikmyndasýningar í Sindrabæ.
Hjalti sagði þessa hugmynd um smiðjuna nýja þannig að ekki hafa farið fram miklar umræður um hana. Hjalti sagði að uppi væri hugmynd um að bjóða Pakkhúsið út til leigu í allt að 3 ár með möguleika á áframhaldandi leigu. Hjalti greindi frá stöðunni varðandi Akurey. Þá sagði hann að fyrirspurnir um bíósýningar í Sindrabæ hafa verið sendar til æskulýðs- og tómstundaráðs til umsagnar.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar, 91. fundur 3. september 2007.
Elín spurði um 3. lið fundargerðarinnar, umsjón með íþróttamannvirkjum. Árni greindi frá með hvaða hætti sú umsjón hafi verið. Sagði hann mikilvægt að fara yfir þau mál og finna þeim heppilegan farveg.
Bæjarstjóra falið að gera tillögu að fyrirkomulagi um umsjón íþróttamannvirkja.
Rætt um lýðheilsumál, sbr. fundargerð ráðsins. Elín taldi að vinna við þessa skýrslu og útfærsla tillagna gæti hæglega átt heima hjá æskulýðs- og tómstundaráði.
Rætt um ungmennaráð og þá lagalegu skyldu að kjósa í það.
Æskulýðs- og tómstundafulltrúa falið að gera drög að reglum um ungmennaráð, hlutverk þess og val á fulltrúum í ráðið.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 745. fundur 30. ágúst 2007.
Til kynningar.
2. Rekstaryfirlit sveitarsjóðs 31.07.2007
Hjalti greindi frá vinnu við endurskoðun á fjárhagsáætlun þessa árs og fór yfir helstu niðurstöður rekstraryfirlits, dags. 31. júlí 2007.
3. Beiðni um uppsetningu minningartöflu v/Svíafellsjökul
· Bréf Sendiráðs Sambandslýðveldisins Þýskalands, f.h. Barböru Hinz og Birgitte Glinke, dags. 5. september 2007.
Halldóra benti á að leitað verði umsagnar svæðisráðs þjóðgarðsins og að byggingar- og skipulagsnefnd fái erindið til umsagnar. Einnig var velt upp í hvers eigu landið er sem um er rætt.
Bæjarstjóra falið að rita samúðarbréf til aðstandenda mannanna tveggja sem saknað hefur verið við Svínafellsjökul frá því í lok júlí. Varðandi beiðni aðstandenda þeirra um að setja upp minningartöflu við Svínafellsjökul að þá lýsir bæjarráð yfir fullum vilja til að koma að því máli en bendir á að samkomulag þarf að nást við landeigendur.
4. Innsend bréf og erindi
· Varasjóður húsnæðismála, bréf dags. 24. ágúst 2007, úthlutun framlaga vegna sölu félagslegra íbúða.
Hjalti greindi frá því að framlagið væri heldur minna en áætlað var. Sagðist hann muni óska skýringa á ástæðu þess.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf bréf dags. 23. ágúst 2007, fundargerð fundar um hagsmunagæslu í úrgangsmálum
Vísað til umhverfisnefndar.
· Ólafur Sigurðsson og Pálína Þorsteinsdóttir, tölvubréf dags. 30. ágúst 2007, málefni Flosalaugar.
Mikil umræða skapaðist um málefni Flosalaugar og önnur mál sem tengjast Öræfasveit.
· Rangárþing ytra, afrit af bréfi til Samvinnunefndar um miðhálendi Íslands, dags. 3. september 2007, vegna breytinga á aðalskipulagi miðahálendis innan
Skaftafellsþjóðgarðs.
Til kynningar.
· Jafnréttisstofa, tölvubréf dags. 5. september 2007, Karlar til ábyrgðar: Meðferð fyrir karla sem beita ofbeldi.
Vísað til félagsmálastjóra og framkvæmdastjóra HSSA.
· Framkvæmdasjóður fatlaðra, tillaga að úthlutun úr sjóðnum 9. ágúst 2007.
Til kynningar.
· Starfsfólk Skaftafellsþjóðgarðs, boð til afmælisdagskrár 15. september 2007 í tilefni 40 ára afmælis Skaftfellsþjóðgarðs.
Bæjarráð óskar þjóðgarðinum til hamingju með afmælið.
5. Önnur mál
· Halldóra spurði um hvort kominn væri dagsetning á fund með fjárlaganefnd. Upplýst að erindi hafi ekki enn borist frá fjárlaganefnd en búist við því á næstu dögum.
· Bæjarráð leggur til að næsti bæjarstjórnarfundur verði haldinn í Öræfum og af því tilefni verði haldinn borgarafundur
Fundi slitið kl. 17:20


