Fundargerð bæjarráðs 393
393. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í ráðhúsi mánudaginn 24. september 2007 kl. 17:30.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 84. fundur 19. september 2007.
Rætt um skerðingar á greiðslum Tryggingastofnunar. Bæjarráð tekur undir bókun heilbrigðis- og öldrunarráðs sem lýsir furðu sinni á að Tryggingastofnun skuli skerða greiðslur með þeim hætti sem gert er.
Hjalti greindi frá því að leitað hafi verið til ráðgjafa vegna stöðunnar í læknamálum.
Farið yfir og rætt um greinargerð um þróun heilbrigðis- og öldrunarmála.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 42. fundur 18. september 2007.
Haukur Ingi greindi frá því að verktaki við uppsteypu sundlaugar gæti farið að koma sér fyrir í október og að framkvæmdir hefjist í nóvember.
Haukur greindi frá því að kostnaður við girðingu, sambærilega við girðingu um leikskólalóðir, yrði um 8000 kr. á lengdarmetra. Reynir lagði til að menn einbeiti sér að því að girða völlinn sjálfan til að verja hann skemmdum. Árni sagði það skipta máli að afmarkað svæði væri fyrir áhorfendur, m.a. til að halda utan um innheimtu aðgangseyris. Samþykkt að unnin verði nákvæm kostnaðaráætlun fyrir verkið miðað við mismunandi efnisval og hæð á girðingu.
Bæjarráð tekur undir með meirihluta nefndarinnar um staðarval fyrir knattspyrnuhús en óskað er eftir að unnin verði þrívíddarmynd af húsinu og umhverfi þess til að upplýsa almenning um stærð þessa mannvirkisins.
Fundargerð samþykkt.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2007
Ásta fór yfir þær breytingar sem lagðar eru til að gerðar verði frá fjárhagsáætlun sem samþykkt var í desember 2006 fyrir árið 2007.
Bæjarráð samþykkir að vísa endurskoðaðri fjárhagsáætlun, dagsett 24. september 2007, til bæjarstjórnar.
Samþykkt að innleiða nýjustu útgáfu af Navision bókhaldsforritinu sem tekin verður af liðnum óráðstafað.
3. Innsend bréf og erindi
· Félagsmálráðuneytið, Jöfnunarsjóður, bréf dags. 12. september 2007, uppgjör á framlagi vegna fasteignaskatta 2007.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 14. september 2007, ósk um umsögn á stefnumótun sambandsins í skólamálum.
Stefán greindi frá helstu samskiptum við starfsmenn Sambands íslenskra sveitarfélaga á sviði skóla og uppeldismála. Um væri að ræða margháttaða aðstoð og upplýsingagjöf vegna launa- og kjaramála, ekki síst túlkun og framkvæmd kjarasamninga. Álit og ábendingar um lögfræðileg álitamál þurfi af og til að fá og sé það auðsótt. Þá stæði Samband ísl. sveitarf. fyrir námskeiðum fyrir skólanefndir, héldi ráðstefnur um skólamál, ætti samskipti við menntamálaráðuneytið um málaflokkinn og mótaði ramma um ákv. samskipti sveitarfélaga á sviði skólamála, svo sem um námsvist utan lögheimilissveitarfélags. Þá sæi Launanefnd sveitarfélaga um alla kjarasamninga vegna starfsemi skóla. Sambandið hafi þannig á þeim 11 árum sem liðin eru frá því að grunnskólinn fluttist yfir til sveitarfélaga í vaxandi mæli tekið að sér margháttuð verkefni vegna þessa skólastigs auk verkefna vegna leikskóla og tónlistarskóla.
Bæjarráð gerir engar efnislegar athugasemdir við drög að skólastefnu Sambands ísl. sveitarf. og fagnar því að hún muni brátt líta dagsins ljós. Samþykkir að vísa þessu erindi til skólanefndar.
· Lánasjóður sveitarfélaga, bréf dags. 17. september 2007, upplýsingar um breytingar á félagsformi sjóðsins.
Til kynningar.
· Byggðastofnun, tölvupóstur 18. september 2007, kynningarfundur um Norðurslóðaáætlunina á Grand Hótel Reykjavík 25. september 2007.
Til kynningar.
· Félag aldraðra, bréf dags. 17. september 2007, ósk um styrk vegna tölvunámskeiðs á vegum ÞNA.
Samþykkt að leggja krónur 100.000.- til þessa verkefnis. Tekið af liðnum óráðstafað.
· Anna Birna Elvarsdóttir og Birta Karlsdóttir, bréf dags. 17. september 2007, ósk um gerð skautasvells á Höfn.
Vísað til æskulýðs- og tómstundaráðs og bæjarstjóra jafnframt falið að svara bréfriturum.
4. Önnur mál
Rætt um ferð á fund fjárlaganefndar nk. föstudag.
Fundi slitið kl. 19:40


