Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 396
396. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í ráðhúsi mánudaginn 22. október 2007 kl. 17:30.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar, 93. fundur 10. október 2007.
Rætt um undirbúning að ?Smiðjunni? (1. liður á dagskrá nefndarinnar) og leigu á Pakkhúsi þar sem tilboði hafi verið hafnað (3. liður á dagskrá nefndarinnar).
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 70. fundur 10. september og 71. fundur 11. október 2007.
Haukur greindi frá skoðunarferð umhverfisnefndar sem hann sagði hafa verið áhugaverða. Í þessu sambandi var rætt um lagfæringar í Nesjahverfi og nauðsyn þess að gera áætlanir um lagfæringar og endurbætur. Hauki Inga falið að vinna að þessum málum. Rætt um Staðardagskrá 21, þá vinnu sem fram fór á sínum tíma og framhald þeirrar vinnu.
Fundargerðir samþykktar.
· Starfshópur um félagslíf grunnskólanema, 1. fundur 16. október 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð fulltrúa sveitarfélagsins og Djúpavogshrepps 16. október 2007.
Til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2008
· Meiriháttar viðhald
· Framkvæmdir
Björn Imsland sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum. Halldóra óskaði eftir að þeim fjárhæðum (rauntölur) sem varið hefur verið til viðhaldsverkefna sem lokið er komi einnig fram á yfirlitsblöðum um viðhald fasteigna. Tillögur eru um að til viðhaldsverkefna verði varið 23,4 milljónum árið 2008.
Farið yfir 1. drög að áætlun um framkvæmdir árið 2008 og næstu ár á eftir.
Halldóra óskaði eftir skriflegu yfirliti um kostnað við lóðir o.fl. á fyrirhugaðri byggð á Leirusvæði
3. Innkaupareglur sveitarfélagsins - drög
Reglunum vísað til Ríkiskaupa og forstöðumanna og óskað eftir umsögnum þessara aðila.
4. Ósk um að sveitarfélagið tilnefni fulltrúa í verkefnisstjórn um lausn á meðferð og úrvinnslu úrgangs í Austurlandsfjórðungi
Bæjarráð tilnefnir Hauk Inga Einarsson sem fulltrúa sveitarfélagsins í verkefnisstjórnina.
5. Need verkefnið ? hugsanleg aðild sveitarfélagsins í verkefninu
Þorvarður Árnason forstöðumaður Háskólaseturs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Gerði hann grein fyrir verkefninu, helstu hugmyndum þess og áherslum. Um er að ræða 3ja ára verkefni og tryggja þarf 50% fjárframlag heimamann, þar af helming þess framlags með peningaframlögum.
Bæjarráð samþykkir að leggja allt að kr. 270.000.- árlega í 3 ár til verkefnisins. Enn fremur kom fram að sveitarfélagið komi hugsanlega að verkefnum sem tengjast Need-verkefninu.
6. Drög að leigusamningi vegna aðstöðu fyrir farsímasendi Símans hf. í skólahúsinu að Hofi í Öræfum.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að leigusamningi og jafnframt að leigutekjur renni til endurbóta o. fl. í Hofgarði. Reynir óskaði eftir að kannað verði hvort ástæða væri til að setja ljóskastara á mastrið til að lýsa upp a.m.k. hluta af lóðinni.
7. Drög að skipulagsskrá Starfsendurhæfingar Austurlands
Hjalti greindi frá því að hann hafi óskað eftir upplýsingum rekstrarkostnað vegna verkefnisins og ekki enn fengið svör. Ekki eru gerðar efnislegar athugasemdir við skipulagsskrána en gerður er fyrirvari um þátttöku sveitarfélagsins uns fyrir liggur kostnaður við þátttöku í því.
8. Tillögur að nýtingu húsnæðis í Nýheimum
Fyrir fundinum lá greinargerð, dags. í október 2007, sem varða málið. Halldóra velti upp hugmyndum um að aðilar sem þarna leigja húsnæði taki þátt í stofnkostnaði vegna húsbúnaðar í miðrými að einhverju marki.
9. Innsend bréf og erindi
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 9. október 2007, svar við bréfi með bókun bæjarráðs 17. september um öryggis- og eftirlitsþætti á Hornafjaðarflugvelli.
Til kynningar. Halldóra spurði um hvert nýlegar samþykktir bæjarráðs og bæjarstjórnar um þessi mál hafi farið. Stefán greindi frá hvert þær ályktanir hafi farið.
· Jöfnunarsjóður, bréf dags. 12. október 2007, reglur um ráðstöfun 1.400 millj. kr. aukaframlags, úthlutanir framlaga.
Til kynningar. Ásta fór yfir framlög Jöfnunarsjóðs. Undir þessum lið var rætt um hvort fjárhagsáætlun 2008 eigi að byggja á endurskoðaðri fjárhagsáætlun 2007 eða ?útgönguspá? (spá um ársreikning) fyrir árið 2007.
· Hestamannafélagið Hornafirðingur, ódagsett fundargerð v. fundar fulltúra viðkomandi aðila, um reiðleiðir m.t.t. hringavegar um Hornafjarðarfljót.
Til kynningar. Hjalti greindi frá samtali við bréfritara, Örn Þór, um hugsanleg undirgöng o.fl. atriði sem snúa að reiðleiðum hestamanna.
· Dagur íslenskrar tungu, menntamálráðuneytinu, bréf dags. 15. október s.l. , Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember n.k..
Vísað til skólanefndar.
· Ríkiskaup, tölvubréf dags. 17. október 2007, fræðsluröð Ríkiskaupa ? málstofa um greiningu og skipulag innkaupa ásamt yfirferð um verkefnastjórnun í útboðum.
Til kynningar.
10. Önnur mál
a) Samkomulag var um að fundir verði sem hér segir í nóvember og desember:
Mánudaginn 29 okt. - fundi bæjarráðs frestað til fimmtudagsins 1. nóv.
Fimmtudaginn 1. nóvember. Bæjarráð fundar kl. 10:00, forstöðumenn mæti á fundinn.
Fimmtudaginn 1. nóvember. Hefðbundinn fundur í bæjarstjórn.
Fimmtudaginn 15. nóvember. Fjárhagsáætlun ? fyrri umræða í bæjarstjórn.
Fimmtudaginn 6. desember. Hefðbundinn fundartími í bæjarstjórn. Fjárhagsáætlun síðari umræða. Þriggja ára áætlun fyrri umræða.
Mánudagana 12., 19. og 26. nóv. fundar bæjarráð kl. 16:00.
Mánudaginn 10. desember fundar bæjarráð kl. 16:00.
Mánudaginn 17. desember fundar bæjarráð kl. 16:00.
Mánudaginn 7. janúar 2008 fundar bæjarráð kl. 16:00 og svo áfram á hefðbundnum fundardögum.
Fimmtudaginn 31. janúar fundar bæjarstjórn í stað 7. febrúar. Gert er ráð fyrir að ekki verði fundað oftar í janúar og að hefðbundinn fundur í febrúar falli niður. Þessi fundartími kann að breytast ef aðkallandi erindi/mál berast.
b) Fundur með bæjarfulltrúum og þingmönnum Suðurkjördæmis ? samþykkt minnisblað sem lagt verður fram á fundinum.
c) Halldóra óskaði eftir upplýsingum um stöðu þjónustusamnings vegna Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Hjalti greindi frá fundi með starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins sl. föstudag. Halldóra lagði áherslu á að bæjarstjórn stilli saman strengi sína í þessu máli og lagði til að oddvitar framboðanna mynduðu starfshóp ásamt bæjarstjóra og framkvæmdastjóra HSSA. Reynir taldi ekki tímabært að skipa slíkan hóp, taldi rétt að málið verði í þeim farvegi sem það nú er. Árni taldi þetta ekki tímabært enn sem komið er. Útilokaði þó ekki að slíkur starfshópur yrði myndaður síðar.
Fundi slitið kl. 20:45


