Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 401
401. fundur
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Stjórn Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs, 36. fundur 21. nóvember 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 98. fundur 28. nóvember 2007.
Umræða skapaðist um útdeilingu stofnbúnaður. Bæjarráð felur tækni- og umhverfissviði að halda utan um áætlun um stofnbúnaðarkaup og vinna hana í líkingu við viðhaldsáætlun.
Bæjarráð vill benda á að gjaldskrá lengdrar viðveru lækki að raungildi, annað árið í röð. Þá vill bæjarráð benda á að í komandi vinnu að fjölskyldustefnu verði útgjöld fjölskyldufólks skoðuð sérstaklega.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 173. fundur 27. nóvember 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Svæðisráð Vatnatjökulsþjóðgarðs – Suðursvæði, 3. fundur 26. nóvember 2007.
Bæjarstjóri lagði fram tillögu um flutning Jöklasýningar í gestastofu við Stekkanes. Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og felur stjórnarmönnum í yfirstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs að fylgja henni eftir.
Til kynningar.
2. Útboð á stjórnsýsluvef – drög
Björg Erlingsdóttir mætti á fund undir þessum lið og fylgdi hún málinu úr hlaði.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög með áorðnum breytingu.
3. Samningur Menningarmiðstöðvar, FAS og nemendaráðs FAS um afnot af Pakkhúsi
Bæjarráð samþykkir samninginn.
Björg vék af fundi kl: 17:10
4. Viljayfirlýsing vegna vatnsnota
(Hjalti Þór vék af fundi undir þessum lið).
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu dags. 27. nóv. 2007.
5. Erindisbréf stýrihóps um mótun fjölskyldustefnu sveitarfélagsins
Nokkur umræða skapaðist um erindisbréfið. Ákveðið að taka málið aftur fyrir þann 17. desember en gert er ráð fyrir að bæjarstjórn fái málið endanlega til afgreiðslu.
6. Erindisbréf nefndar um stefnu í húsnæðismálum stofnana sveitarfélagsins og stefnu í eignarhaldi á öðru húsnæði sveitarfélagsins
Nokkur umræða skapaðist um erindisbréfið. Samþykkt að afgreiða erindisbréfið tilnefna í nefndina á bæjarráðsfundi þann 17. desember nk.
7. Ósk um stækkun lóðar að Litlubrú 1
Vísað til umsagnar í byggingar- og skipulagsnefnd.
8. Innsend bréf og erindi
· Menntamálanefnd Alþingis, bréf dags. 14. nóvember 2007, ósk um umsögn um tillögu til þingályktunar um aðgerðaáætlun um íslenskukennslu fyrir innflytjendur , 28. mál, sjá http://www.althingi.is/altext/135/s/0028.html.
Til kynningar.
· Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 26. nóvember 2007, niðurstöður könnunar á viðhorfi til starfsemi og þjónustu sambandsins, sjá http://www.samband.is/files/801092811capacent_konn.pdf.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 22. nóvember 2007, fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur til menntamálaráðherra um listgreinakennslu í framhaldsskólum og átlit umboðsmanns Alþingis á kostnaðarhlutdeild nemenda sjálfra á framhaldsskólaaldri.
Til kynningar.
9. Önnur mál
· Hjalti greindi frá upphæðum í fjárlagafrumvarpi 2008 sem renna til Hornafjarðar.
· Hjalti ræddi um borgarafund í Suðursveit og sagði að unnið sé að minnisblaði í ráðhúsinu um starfsemi sveitarfélagsins í dreifbýli. Nokkur umræða skapaðist um málið og samþykkt að leggja minnisblaðið fyrir næsta fund bæjarráðs.
- Umræða skapaðist um ruslagám í Nesjum. Starfsmanni falið að gera tillögur að nýrri staðsetningu.
- Rætt var um að koma á fundi með þingmönnum Suðlandskjördæmis varðandi nýtt vegstæði yfir Hornafjarðarfljót.
- Hjalti upplýsti um stöðu mála varðandi samning um resktur HSSA.
Fundi slitið kl. 18.10


