Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 402
402. fundur
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar , 84. fundur 29. nóvember 2007.
Haukur Ingi fór yfir fyrri bókun sem samþykkt var á 78. fundi byggingar- og skipulagsnefndar þar sem ályktað er um hraða innanbæjar. Árni upplýsti að þetta mál verði tekið upp í nefndinni aftur. Urðu í framhaldi af þessu nokkrar umræður um hámarkshraða.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar, 86. fundur , 5. desember 2007.
Halldóra gerði að umtalsefni bókun hör, sbr. 4. lið á fundi nefndarinnar. Sagðist hún ekki sammála þessari bókun. Þá ítrekaði hún ósk um ýmis gögn sem hún hafði beðið um á næstsíðasta fundi bæjarstjórnar, þ.e. heildstætt plagg um hvað menn hyggjast semja við ríkisvaldið. Hjalti fór yfir stöðu mála og sagði enn fátt um svör frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti og fór jafnframt yfir nýja verkaskiptingu félagsmálráðuneytis og heilbrigðismálaráðuneytis.
Fundargerð samþykkt.
2. Erindisbréf stýrihóps um mótun fjölskyldustefnu sveitarfélagsins
Hjalti fór yfir tillögu að erindisbréfi og helstu þætti þess. Lagði hann áherslu á að allt ætti að vera undir sem tengist fjölskyldunni og því ekki ástæða fyrir væntanlega nefnd að binda sig eingöngu við þá þætti sem fram koma í erindisbréfinu. Halldóra spurði um vinnu við starfsmannastefnu og hvernig henni væri háttað. Þá spurði hún um tengsl þessara tveggja stefna og hvort þau væru einhver. Vísað til bæjarstjórnar.
3. Erindisbréf um stefnu í húsnæðismálum stofnana sveitarfélagsins og stefnu í eignarhaldi á öðru húsnæði sveitarfélagsins
Hjalti sagði að verið væri að steypa saman tveimur hugmyndum, þ.e. húsnæðisþörf grunnskólans og svo annað húsnæði sveitarfélagsins. Halldóra sagðist telja æskilegra að þessi tvö mál væru jafnframt á hendi tveggja nefnda. Reynir sagði það sína skoðun að húsnæðismálin væru það saman tvinnuð að þau rúmuðust í einni nefnd. Árni sagði nefndinni í sjálfsvald sett hvernig hún ynni einstaka þætti, húsnæði skólanna annars vegar og húsnæði í eigu sveitarfélagsins almennt.
4. Skipun í nefnd um stefnu í húsnæðismálum stofnana sveitarfélagsins og stefnu í eignarhaldi á öðru húsnæði sveitarfélagsins
Frestað.
5. Rekstaryfirlit 31. október 2007
Ásta fór yfir rekstraryfirlit 31. október 2007. Sagði stöðuna góða og útlitið jafnframt gott.
6. Tilboð í loftræstikerfi í sundlaug
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Vélsmiðjunnar Borg að upphæð kr. 12.791.550.
7. Innsend bréf og erindi
· Jöfnunarsjóður, tilkynning um framlag vegna nýbúafræðslu 2008.
Vísað til skólaskrifstofu.
· Lánasjóður sveitarfélaga, bréf dags. 28. nóvember 2007, varðar greinargerð um stofnun Fasteignafélags sveitarfélaga.
Hjalti sagðist hrifinn af þessari hugmynd, taldi þetta skynsamlega leið og sagðist sjá ástæðu til að fagna þessari hugmynd. Halldóra sagðist ekki sammála Hjalta og varaði við miðstýringu sem þessu fylgdi. Reynir sagði það gott framtak að fara yfir þessi mál og tók Árni undir þau orð.
· Dóms og kirkjumálaráðuneytið , bréf dags. 29. nóvember, reglugerð nr. 1127, um lögreglusamþykktir.
Vísað til starfsmanna.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags,. 29. nóvember 2007, um skýrsluna Ungt fólk 2007 – Grunnskólanemar, helstu niðurstöður. Slóðin að skýrslunni er http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/ungt_folk_2007.pdf.
Til kynningar.
· Norræna félagið, ódagsett bréf, ráðstefna gegn illri meðferð á börnum á Hótel Nordica 18.-21. maí 2008. Slóðin að dagskrá og upplýsingum er http://www.congress.is/nfbo2008/
Vísað til félagsmálaráðs.
8. Önnur mál
- Halldóra spurði um fund í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs og niðurstöðu í ráðningu framkvæmdastjóra. Hjalti sagðist hafa lagt fram tillögu um að framkvæmdastjóri byggi á Hornafirði. Sagði hann þá tillögu ekki hafa fengið hljómgrunn í stjórninni. Ákveðið að framkvæmdastjóri yrði ráðinn án þess að staðsetning kæmi fram en hann jafnframt hvattur til að búa á áhrifasvæði þjóðgarðsins.
- Tilkynnt að næsti fundur verði miðvikudaginn 19. desember.
Fundi slitið kl. 17:15


