Fundargerð bæjarráðs 404
404. fundur
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd, 86. fundur, 19. desember 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðar, 98. fundur, 21. desember 2007.
Björn Ingi spurði hvað gerðist í framhaldi af yfirlýsingu hafnarstjórnar um strand Axels? Reynir sagði sjópróf hafa farið fram og ekki ljóst hvert framhaldið verður.
Bæjarráð er sammála hafnarstjórn um að velja lægstbjóðanda, með tilboð sem er 75,8 % af kostnaðaráætlun, í Álaugareyjarbryggju stálþil.
Rætt um stöðu í viðræðum um stofnun útibús Siglingastofnunar á Höfn. Fram kom að málið liggur ekki ljóst fyrir á þessari stundu.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 87. fundur, 19. desember 2007
Árni ræddi liðinn læknamál í fundargerð og fyrirhugað málþing um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Þá greindi Árni frá stöðu í samningamálum við heilbrigðisráðuneytið um þjónustusamning og samtali hans við starfsmann heilbrigðisráðuneytis og vitnaði einnig til samskipta við fjármálaráðuneytið. Sagði hann að enn væri beðið eftir niðurstöðu frá fjármálaráðuneytinu vegna skerðingar á greiðslum frá Tryggingastofnun.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um félagslíf grunnskólanema, 6. fundur, 18. desember 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 749. fundur, 14. desember 2007
Í 15. lið á dagskrá stjórnar sambandsins er fjallað um tekjustofna sveitarfélaga og fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga. Bæjarráð tekur undir með stjórn sambandsins um skipan nefndar til að fjalla um þau mál.
Til kynningar.
2. Reglur um afslátt á fasteignaskatti í Sveitarfélaginu Hornafirði
Bæjaráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti með þeim breytingum að fjárliðir reglnanna hækki miðað við breytingu á launavísitölu frá nóvember 2006 til nóvember 2007.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi:
Verkferlar við álagningu og innheimtu fasteignagjalda 2008.
Innheimta fasteignagjalda verður á hendi fjármálasviðs sveitarfélagsins.
Sendir verða út greiðsluseðlar skv. gjalddögum, ef álagning er lægri en
15.000.- verður sendur út einn greiðsluseðill á gjalddaga 1. febrúar.
Ekki er gert ráð fyrir að hægt sé að greiða á annan hátt en skv. greiðsluseðli
nema ef fólk er í greiðsluþjónustu banka og leggst þá ekki á seðilgjald.
Hægt er að hafa samband við fjármálasvið ef óskað er eftir öðrum
greiðslumáta svo sem ef nýttur er staðgreiðsluafsláttur.
Gjalddagar verða fimm 1. febrúar 1. mars 1. apríl 1. maí og 1. júní
Eindagi verður 25 dögum eftir gjalddaga og reiknast þá dráttavextir frá
gjalddaga.
Seðilgjald verður 245 kr. og vanskilagjald 500 kr. 30 dögum eftir eindaga
Veittur verður 3% staðgreiðsluafláttur ef greitt er fyrir 28. febrúar. Regula lögmannsstofu sér um vanskilainnheimtu fasteignagjalda.
31. ágúst verða öll vanskil send Regula til innheimtu.
3. Skipun í nefnd um stefnu í húsnæðismálum stofnana sveitarfélagsins og stefnu í eignarhaldi á öðru húsnæði sveitarfélagsins
Samþykkt að nefndina skipi Reynir Arnarson sem jafnframt verður formaður nefndarinnar, Helga Lucia Bergsdóttir og Sigríður Kristinsdóttir.
4. Sala á húseignum Nesjaskóla, viðræður við tilbjóðanda
Stefán greindi frá viðræðum sem hann hefur átt við tilbjóðanda í húseignir skólans. Báðir aðilar, ríki og sveitarfélag hafa samþykkt að taka tilboði í hinn auglýsta hluta húsnæðisins. Bæjarráð sammála um að starfsmenn haldi áfram viðræðum við tilbjóðanda.
5. Innsend bréf og erindi
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 18. desember 2007, tilnefning í verkefnisstjórn vegna hagsmunagæslu í úrgangsmálum.
Til kynningar.
· Menningarráð Austurlands, bréf dags. 19. desember 2007, hlutdeild sveitarfélaga í kostnaði vegna samnings um menningarmál milli sveitarfélaga á Austurlandi, menntmálaráðuneytisins og samgönguráðuneytisins.
Til kynningar.
· Siglingastofnun, bréf dags. 12. 12. 2007, skoðanir og úttektir Eftirlitsstofnunar EFTA á vettvangi siglingaverndar.
Vísað til hafnarstjórnar.
· Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, bréf dags. 27. desember 2007, áætluð úthlutun framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2008.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 28. desember 2007, framlag vegna tekjumissis af tímabundnum samdrætti í aflamarki þorsks.
Bæjarráð ræddi ýmsar hugmyndir um ráðstöfun þess fjárframlags, 8.869.504., sem um er að ræða, sbr. bréf félagsmálaráðuneytis. Bréfi félagsmálaráðuneytis vísað til atvinnumálanefndar og óskað eftir tillögum nefndarinnar um nýtingu þessa fjár. Bæjarráð lagði áherslu á aukið virði sjávarfangs í sinni umræðu.
6. Önnur mál
(Björg Erlingsdóttir og Haukur Ingi Einarsson sátu fundinn undir þessum lið.) Tilboð í stjórnsýsluvef. Eftirfarandi tilboð bárust.
|
|
Tilboðsupphæð |
|
|
|
Uppsetning og hönnun |
Mánaðarleg Þjónusta |
|
Galdur ehf. |
990.000,- |
6.912,- |
|
Hátíðni ehf. (1) |
1.961.950,- |
45.000,- |
|
Hátíðni ehf. PHP |
364.938,- |
25.000,- |
Haukur Ingi og Björg gerðu grein fyrir tilboðunum. Bæjarráð samþykkir að fela starfsmanni að leita eftir ráðgjöf við mat á tilboðum.
Næsti fundur bæjarráðs verður væntanlega mánudaginn 21. janúar nk. kl. 8:00.
Föstudaginn 18. janúar nk. boðar stjórn Sambands ísl. sveitarf. til fundar á Egilsstöðum frá kl. 15 – 16. Allir sveitarstjórnarmenn eru velkomnir á þann fund.
Björn Ingi spurði um hvort framhald hafi orðið á hugmyndum um vatnsverksmiðju á Seljavöllum. Stefán sagðist ekki haf fregnað neitt sérstaklega af því frá því að bæjarráð samþykkti sína viljayfirlýsingu.
Björn Ingi gerði að umtalsefni styrki til stjórnmálaflokka. Fram kom að sveitarfélög hafa ákveðnar skyldur í þeim efnum, þ.e. að styrkja framboð sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn. Ákveðið að taka þessa umræðu á næstunni.
Fundi slitið kl. 19:05


