Fundargerð Bæjarráðs 219
219. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn. 7. ágúst 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Friðrik Ingvaldsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 52. fundur 16. júlí 2003
Fundargerð samþykkt.
2. Sparisjóður Hornafjarðar – fundur stofnfjáreigenda
Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti sínum að auknu stofnfé sparisjóðsins.
Bæjarráð Hornafjarðar felur bæjarstjóra að fara með umboð sveitarfélagsins á fundi stofnfjáreigenda Sparisjóðs Hornafjarðar sem boðaður hefur verið 13. ágúst n.k.
3. Forkaupsréttur hluta jarðarinnar Fell
Bréf Bjarna Þórhallssonar dags. 23. júlí 2003.
Bæjarráð Hornafjarðar hafnar tilboði dags. 23. júlí sl. um kaup á hluta jarðarinnar Fell en mun taka afstöðu til nýtingar forkaupsréttar á jarðarhlutanum ef/þegar kauptilboð liggur fyrir. Bæjarráð vekur athygli á að skv. 32. gr. Jarðalaga nr. 65/1976 skal söluverð og aðrir skilmálar tilgreindir á tæmandi hátt forkaupsréttarhafa.
4. Orkustofnun – styrkur vegna áframhaldandi jarðhitaleitar í Hoffelli í Nesjum
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við hugsanlega samstarfsaðila að verkefninu.
5. Umsókn Olíufélagsins ehf um leyfi til uppsetningar afgreiðslustöðvar fyrir olíu í Álaugarey
Bæjarráð samþykkir, að fengnu áliti tæknideildar, fyrirhugaða staðsetningu afgreiðslustöðvar Olíufélagsins ehf í Álaugarey að því gefnu að sá lögaðili sem starfsemi hefur á lóð sé einnig umráðaaðili lóðarinnar. Lóðaleigusamningar á svæðinu í heild verða yfirfarnir m.t.t. þessa.
Fyrir liggur umsögn Skipulagsstofnunar þar sem fram kemur að framkvæmdin þarf að fara í grenndarkynningu, enda liggi fyrir jákvæðar umsagnir hafnarstjórnar, heilbrigðisnefndar og brunamálayfirvalda.
6. Innsend erindi og til kynningar
Umhverfisstofnun – bréf dags. 26. júlí 2003 v. athugasemda við drög að Náttúruverndaráætlun 2003-2008.
Til kynningar.
Samband íslenskra sveitarfélaga – bréf dags 25. júlí 2003 v. fyrirkomulags og kostnaðarskiptingar tónlistarkennslu.
Til kynningar.
Fornleifavernd ríkisins – bréf dags. 14. júlí 2003- kynning á starfsemi stofnunarinnar.
Fram kom að Fornleifavernd ríkisins hefur gert athugasemd við framkvæmdir við golfvöllinn vegna hugsanlegra fornleifa í hólminum. Þegar er hafin úttekt á því hvers eðlis þær minjar eru.
7. Önnur mál
Mötuneytismál
Stefán fór yfir stöðuna í mötuneytismálum skóla. Samþykkt var að Stefán ræði við þá aðila sem hugsanlega vilja taka þátt í verkefninu.
Inga Jóna greindi frá fyrirspurn sem borist hefur um meðferð persónuupplýsinga á vefnum hornafjordur.is
Friðrik spurði um stöðu kennararáðninga í grunnskólum sveitarfélagsins.
Stefán upplýsti að útlit er fyrir að það takist að manna allar stöðurnar.
Halldóra lagði til að gerður verði listi yfir lausar byggingalóðir í sveitarfélaginu og þær auglýstar.
Halldóra spurði hvort samband hafi verið haft við tæknideildina vegna endurbóta á veginum við Almannaskarð.
Bæjarstjóri sagði svo ekki vera en eðlilegt sé að þessir aðilar ræði saman og að allar upplýsingar liggi fyrir hér um framgang framkvæmdanna.
Fundi slitið kl. 12:00


