Fundargerð bæjarráðs 409
409. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 18. febrúar 2008 kl. 17:30.
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd 37. fundur 13. febrúar 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð 177. fundur 12. febrúar 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd, 97. fundur 13. febrúar 2008.
Bæjarráð tekur undir það sjónarmið að nýting Miklagarðs og nærliggjandi húsa í eigu sveitarfélagsins verði tekin til endurskoðunar. Starfsmönnum hafnarinnar, Menningarmiðstöðvar falið að gera tillögu um nýtingu og umsjón ofangreindra húsa.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 44. fundur 7. febrúar 2008.
Tilboð í rennibraut, sbr. fundargerð nefndarinnar. Endanleg ákvörðun verður tekin þegar tilboð hafa borist í rennibraut sem og aðrar kostnaðartölur vegna þessara breytinga frá fyrri áformum en ekki er gerð athugasemd við nýja útfærslu.
Fundargerð samþykkt.
· Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulþjóðgarðs, minnisblað eftir fund 13. febrúar2008.
Hjalti greindi frá fundi í umhverfisráðuneyti í dag (18. 2.) um málefni þjóðgarðsins.
2. Samþykkt um búfjárhald í sveitarfélaginu – síðari umræða
Hjalti greindi frá breytingum frá fyrri umræðu um málið. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti fram lögð drög að samþykkt um búfjárhald með áorðnum breytingum og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.
3. Ræktunarlönd
Farið yfir drög að samningum um afnot af slægju- og beitilandi.
4. Fjallskilasamþykkt – síðari umræða
Farið yfir drög að nýrri fjallskilasamþykkt. Endanlegri afgreiðslu frestað til næsta fundar bæjarráðs.
5. Framtíð frumkvöðla- og nýsköpunarstarfs
Bæjarráð leggur áherslu á að tryggja þurfi áfram aðstöðu fyrir frumkvöðla. Björn Ingi Jónsson spurði hvað muni gerst eftir tvö til þrjú ár. Bæjarráð er sammála því að unnið verði á þeirri braut sem fram kemur í minnisblaði bæjarstjóra. Í samningum um þetta mál þurfi skýrt að koma fram að hugmyndafræði, logo og kennitala Frumkvöðlaseturs lifi áfram. Væntanlegir samningar á milli Nýsköpunarmiðstöðvar og sveitarfélagsins verða lagðir fram í bæjarráði.
6. Umsókn um landsskipti út úr Stafafelli í Lóni
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti ósk um landsskipti út úr Stafafelli, sbr. bréf Nönnu Sigurðardóttur, dags. 14. 08. 2007.
7. Umsögn um heilsársveg um Öxi
Bæjarráð samþykkir drög að umsögn með áorðnum breytingum um heilsársveg um Öxi.
8. Innsend bréf og erindi
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 5. febrúar 2008, stefnumótun sambandsins í málnefnum innflytjenda.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 6. febrúar 2008, XXII. landsþing sambandsins 4. apríl n.k.
Til kynningar. Bæjarráð villa kanna möguleika á að halda landsþing sveitarfélaga
· Samtök iðnaðarins, bréf dags. 7. febrúar 2008, lög um opinber innkaup.
Til kynningar.
· Ríkiskaup, tölvupóstur 13. febrúar 2008, kynningarfundur um handbók um opinber innkaup.
Til kynningar.
9. Önnur mál
- (Hjalti vék af fundi undir þessum lið) Leiga á Holti á Mýrum. Leigusamningur við sambýlið í Hólabrekku rennur út 25. febrúar næstkomandi. Bæjarráð samþykkir að sambýlið hafi óbreytt afnot af Holti þangað til fyrir liggja úttekt og tillögur nefndar um húsnæðismál sveitarfélagsins.
· Á 407. fundi bæjarráðs var starfsmönnum í ráðhúsi falið að koma með tillögu í framhaldi af fyrirspurn um hugsanlegan styrk sveitarfélagsins til heilsueflingar starfsmanna. Það er tillaga þeirra sem með málið hafa farið að litið verði til hagsmuna heildarinnar ef ákvörðun verður tekin um aðkomu sveitarfélagsins. Því verði lögð áhersla á ráðgjöf til starfsmanna og leiðsögn. Bæjarráð sammála því að unnið að tillögum um heilsueflingu starfsmanna í þessum anda.
Fundi slitið kl. 19:50


