Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 411
411. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 10. mars 2008 kl. 16:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 178. fundur 21. febrúar 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 101. fundur 27. febrúar 2008.
Bréf leikskólastjóra um viðbótarstarfsdag, þ.e. dag þar sem börnin mæta ekki í leikskólann. Bæjarráð samþykkir að fjölga „starfsdögum” um einn í samræmi við bréf leikskólastjóranna. Jafnframt er tekið undir sjónarmið skólanefndar um að „starfsdagar” leikskóla og grunnskóla falli saman. Undir þessum lið var einnig rætt um mönnun félagsmiðstöðvar og ýmsum spurningum varpað fram.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um stefnu í húsnæðismálum sveitarfélagsins, 2. fundur 26. febrúar 2008.
Fundargerð samþykkt
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga 751. fundur 22. febrúar 2008.
Til kynningar.
2. Ósk um styrk vegna fornleifarannsókna
Samþykkt að veita kr. 150 þús. í hvort verkefni sem um er sótt. Tekið af óráðstöfuðu. Bæjarráð leggur áherslu á að óskir um styrki til fornleifarannsókna berist á réttum tíma, þ.e. í október ár hvert fyrir næsta ár.
3. Ósk um umsagnir á endurútgáfu rekstrarleyfa fyrir Fosshótel Vatnajökul og Fosshótel Skaftafell
Bæjarráð gerir engar athugasemdir við útgáfu leyfisins.
4. Alþingi, ósk um umsagnir á frumvörpum til laga:
· Skipulagslög, 374. mál heildarlög, http://www.althingi.is/altext/135/s/0616.html.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar og umhverfisnefndar. Hjalti lagði áherslu á að menn kynni sér vel þetta frumvarp til laga og var undir það tekið.
· Mannvirki, 375. mál, heildarlög, http://www.althingi.is/altext/135/s/0617.html.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Brunavarnir, 376. mál, flutningur verkefna Brunamálastofnunar o.fl., http://www.althingi.is/altext/135/s/0618.html.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
5. Kosning fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfund Menningarráðs Austurlands 7. apríl 2008 á Seyðisfirði
Bæjarráð samþykkir að einn fulltrúi frá hverju framboði sitji aðalfundinn fyrir sveitarfélagið.
6. Áskorun frá kennurum um greiðslu frá sveitarfélaginu vegna aukins álags í starfi í vetur
(Árni vék af fundi undir þessum lið.) Starfsmönnum falið að skoða hvað önnur sveitarfélög hafa verið að gera í þessum efnum og málið tekið fyrir á næsta fundi.
7. Innsend bréf og erindi
· Umferðarstofa, tölvubréf 25. febrúar 2008, ályktun umferðaráðs um merkingar vegavinnusvæða.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Úrvinnslusjóður,bréf dags. 27. febrúar 20008, greiðsla fyrir brennslu á óflokkuðum umbúðum til orkuframleiðslu.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 26. febrúar 2008, bæklingurinn Umhverfi og heilsa barna í norrænum leikskólum.
Vísað til skólanefndar.
· Ásmundur Ásmundsson, bréf dags. 29. febrúar 2008, samgöngumál.
Samþykkt að vísa erindinu til umfjöllunar í byggingar- og skipulagsnefnd.
8. Önnur mál
- Tekið fyrir bréf frá Lex lögmannsstöðu vegna leigusamninga á urðunarsvæði í landi Syðri-Fjarðar og álit Regula lögmannsstofu á því bréfi. Bæjarstjóra falið að ræða við þá sem hlut eiga að máli.
- Bréf frá Skinney-Þinganesi þar sem tilkynnt er að selja eigi Skinney SF 30, sknr. 0250. Bæjarráð nýtir ekki forkaupsrétt.
- Tekið fyrir erindi framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissvið um eftirlitsmyndavélarbúnað í sundlaug og kostnaðarauka vegna breytinga frá tilboði verktaka. Bæjarráð samþykkir viðbótarkostnað vegna eftirlitsmyndavéla í nýja sundlaug að upphæð kr.1.240.000.-
- Í framhaldi fyrirspurnar Halldóru var greint frá og rætt um fund með framkvæmdastjóra og formanni SSA í lok síðustu viku. Fundurinn fjallaði einkum um samstarf sveitarfélagsins á vettvangi austfirskra sveitarfélaga og um leið velt upp spurningum um hvort taka eigi upp samstarf við Samband sunnlenskra sveitarfélaga (SASS).
- Halldóra spurði um skýrslu frá Flugstoðum um Hornafjarðarflugvöll. Skýrslan verður send á alla aðal- og varmenn í bæjarstjórn.
- Halldóra spurði hvort gengið hafi verið frá samningum um sölu á Nesjaskóla. Hjalti greindi frá stöðunni. (Ásta vék af fundi undir þessum lið annarra mála.)
Fundi slitið 17:40


