Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 421
421. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 26. maí 2008kl. 16:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 182. fundur 20. maí 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 104. fundur 21. maí 2008.
Rætt um leikskólagjöld og samning talmeinafræðinga við Tryggingarstofnun.
Fundargerð samþykkt.
· Atvinnumálanefnd, 39. fundur 22. maí 2008 .
Björn Ingi spurði um umræður um Skógeyjarmál. Hjalti upplýsti um viðræður sínar við Landgræðslustjóra og starfsmenn í landbúnaðarráðuneytinu.
Árni spurði um umræður í atvinnumálanefnd um landareign sveitarfélagsins í Nesjum. Bæjarstjóra falið að fara yfir landareign sveitarfélagsins í Nesjum og samninga um það.
Björn Ingi spurði um girðingarmál meðfram þjóðvegi í nágrenni Hafnar og í Nesjum. Í framhaldinu skapaðist umræðu um lausagöngu búfjár. Hjalti lýsti samskiptum sínum við Vegagerðina vegna málsins. Bæjarráð leggur mikla áherslu á að Vegagerðin komi girðingarmálum í ásættanlegt horf sem fyrst. Bæjarráð hefur áður lýst yfir fullum vilja til að koma að málum með því að leggja fram eftirlitsmann með þjóðvegunum og lýsa yfir lausagöngu banni.
Rætt um drög að samþykktum um rannsókna- og atvinnuþróunarsjóð. Björn Ingi gerði tillögu um að stjórn sjóðsins óski eftir faglegu áliti á umsóknum áður en úthlutað verður úr sjóðnum. Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um fjölgun starfsfólks í lengdri viðveru í Hafnarskóla
Bæjarstjóra falið að afla frekari upplýsinga um óskina.
3. Fráveitumál
Hjalti og Haukur gerðu grein fyrir heimsókn í Hveragerði, Reykjavík og Egilsstaði. Sögðu þeir að óskað hefur verið eftir hugmyndum frá tveimur aðilum um næsta áfanga í fráveitumálum á Höfn. Ennfremur verða fengnar hugmyndir frá þessum aðilum um lausn á fráveitumálum í Nesjahverfi.
Miklar umræður sköpuðust um málið en samþykkt að taka málið fyrir þegar nánari hugmyndir um útfærslu liggja fyrir.
4. Jarðgerð
Hjalti og Haukur gerðu grein fyrir heimsókn á Stykkishólm, Sauðárkrók og Akureyri til að meta kosti til jarðgerðar. Kom fram að skylda er til að draga stórlega úr urðun lífræns úrgangs. Kom fram að óskað hafi verið eftir greinargerð frá Mannvit hf. um þá kosti sem eru raunæfir fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð en fyrirtækið hefur komið að uppbyggingu jarðgerðar á Sauðárkróki og Akureyri.
5. Ráðning tómstundastjóra
Björg Erlingsdóttir, forstöðukona Menningarmiðstöðvar, mætti á fundinn undir þessum lið. Gerði hún grein fyrir mati umsókna. Sagði hún að farið hafi verið yfir umsóknir og mat lagt á þær útfrá menntun, reynslu af félagsstörfum og vinnu með unglingum og eins ef meðmæli fylgdu. Björg Erlingsdóttir ræddi við tvo umsækjendur sem voru metnir hæfastir út frá menntun og öðrum fyrirliggjandi gögnum.
Björg gerði tilögu um að Helga Rún Guðjónsdóttir verði ráðin í starf tómstundastjora. Helga Rún hefur menntun sem nýtist í starfi og hefur mikla starfsreynslu af starfi með unglingum og félagsstörfum. Hún er vel að sér í hugmyndafræði klasasamstarfs og þess vegna vel til þess fallin að koma að þróunarstarfi innan málaflokksins.
Bæjarráð samþykkir tillögu Bjargar um að Helga Rún Guðjónsdóttir verði ráðin tómstundastjóri.
6. Innsend bréf og erindi
· Grunnskóli Hornafjarðar og Ísjakarnir, ódagsett þakkarbréf.
Bæjarráð óskar Ísjökum til hamingju með frábæran árangur í First Lego League keppninni.
· Minnispunktar Hauks Inga Einarssonar frá ferð á umhverfissýningu í München í Þýskalandi.
Til kynningar.
7. Önnur mál
· Hjalti lagði fram drög að umsókn að aðild Sveitarfélagsins að ÞNA. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að senda það til stjórnar ÞNA.
· Lögð fram ósk um umsögn um umsókn Sjómanndagsráðs vegna Sjómanndagsleiks. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við erindið.
· Reynir óskaði eftir yfirliti yfir eyjur og hólma í eigu sveitarfélagsins í Hornafirði og nýtingu á þeim.
· Reynir óskaði eftir að starfsmenn leituðu eftir upplýsingum frá Skipulagsstofnun um hvernig vinnu við mat á umhverfisáhrifum í tengslum við nýjan Fljótaveg miðar.
Fundi slitið kl. 17:50


